Prentarinn - 01.03.2004, Qupperneq 15
FRÆÐSLUSJÓÐUR BÓKAGERÐARMANNA
EFNAHAGSREIKNINGUR 31. DESEMBER 2003
EIGNIR :
Eignir: Skýr. 2003 2002
Bundnar bankainnstæður Viðskiptareikningur FBM Eignir samtals 3 13.678.271 117.206 13.795.477 12.956.928 12.956.928
EIGIÐ FÉ OG SKULDIR:
Eigið fé:
Höfuðstóll ................................... 12 13.795.477 12.322.999
Eigið fé samtals 13.795.477 12.322.999
Skuldir:
Viðskiptareikningur FBM ...................... 633.929
Skuldir samtals 633.929
Eigið fé og skuldir samtals 13.795.477 12.956.928
FRÆÐSLUSJÓÐUR
BÓKAGERÐARMANNA
Sjóðurinn styrkir m.a. námskeið
sem félagsmenn sækja hjá Tóm-
stundaskólanum um 50% eða allt
að kr. 12.000. Einnig hafa almenn
tungumálanámskeið verið styrkt.
Sjóðurinn stendur straum af kostn-
aði námskeiða hjá Prenttækni-
stofnun fyrir atvinnulausa félags-
menn. Einnig styrkir hann félaga
til náms erlendis. Alls voru veittir
23 styrkir til lengra náms innan-
lands, að upphæð kr. 1.029.657,
68 styrkir til almenns náms eða
tómstunda, kr. 555.095, 5 sfyrkir
vegna atvinnulausra á námskeið
hjá Prenttæknistofnun, 3 styrkir,
kr. 110.000, til náms erlendis á
stutt námskeið og 3 sfyrkir til
lengra náms erlendis, kr. 335.000.
Stjóm Fræðslusjóðs skipa
Georg Páll Skúlason, Sæmundur
Arnason og Harald Dean Nelson
frá Samtökum iðnaðarins.
SJÚKRASJÓÐUR
Sjúkrasjóðurinn hefitr nú sem
hingað til komið sér vel fyrir þá
sem eiga um sárt að binda vegna
veikinda. Eins hefúr sjóðurinn
styrkt félaga í forvamarstarfi og
þegar sjúkraþjálfun eða sjúkra-
nudd hefúr verið nauðsynlegt. A
síðasta ári fengu 21 félagsmenn
greidda sjúkradagpeninga að upp-
hæð u.þ.b. 9,1 milljón. Afar mis-
munandi er hve lengi hver og einn
þarf á sjúkradagpeningum að
halda. Réttur til sjúkradagpeninga
er 80% af launum fyrstu 26 vik-
umar og 50% næstu 78 vikumar.
Vignir Arason í Prentlœkni.
Þannig geta sjúkradagpeningar
varað frá einum degi og allt að
tveimur árum. Eins og reglugerð
sjóðsins kveður á um veitti hann
útfararstyrki vegna þeirra félaga er
létust á árinu, en þeir voru 8 tals-
ins. Styrkurinn er nú kr. 160.000.
Sjúkrasjóðurinn veitti 370 styrki
vegna heilsuverndar og forvarnar-
starfs að upphæð kr. 2.423.000.
Styrkir vegna krabbameinsleitar
voru alls 56 eða kr. 160.200. Aðrir
styrkir sem sjóðurinn veitti voru
að upphæð kr. 526.940.
Fjóla Phuong Thao og Jakob Luu í Svansprenti.
Sigrún Sœmundsdóttir i Viðey.
PRENTARINN ■ 15