Ársrit Nemendasambands Laugaskóla - 01.01.1934, Síða 26
24
næmar, og engin sögn getur um að gæfa hafi fylgt
þeim.
Ekki var það einungis framtíðin, sem átti að vera
hægt að sjá með krystalsspám þessum, heldur einnig
liðnir atburðir og viðburðir í fjarlægð, sem gerðust á
sama tíma og þeir sáust í kúlunni.
Þeir gimsteinar, sem hér hafa verið nefndir, eru
aðeins hinir merkari. Þó er mörgum sleppt, sem eiga
sér merkilega sögu. En að telja þá upp, yrði allt of
langt mál.
Auðugust lönd að gimsteinum eru Indland, Ceylon,
Suður-Afríka og Brazilía.
Gimsteinarnir finnast í ýmsum fjöllum og klettum
eða framburði straumvatna. Sumir þeirra hafa orðið
til jafnhliða því, að kletturinn, sem þeir liggja í,
storknaði, en aðrir hafa skapazt smátt og smátt fyrir
atbeina lofts og vatns.
Gimsteinarnir eru unnir með ýmsu móti. Sumstaðar
eru enn í dag notaðar sömu aðferðir og fyrir þúsund-
urn ára, en sumstaðar fer vinnzlan fram meö nýtízku
vélum.
Á Ceylon finnst mest af gimsteinum í héraðinu
Ratnapura (Gimsteinaborgin). Þar eru notaðar gam-
aldags aðferðir og innfætt verkafólk. Unnið er í smá-
hópum, að arðinum skipt þannig, að jarðeigandi fær
fimmtapart, og sá, sem leggur fé til fyrirtækisins
annan fimmtung. Afganginum er síðan skipt milli
verkafólksins.
Fyrst er jarðvegurinn athugaður með einskonar
jarðbor, og eiga æfðir menn hægt með að sjá, hvort
gimsteinar finnast, og hversu djúpt þeir liggja, því
þeir ei’u harðari en borinn og rispa hann, ef þá er að
finna. Hafi fundizt álitlegt gimsteinasvæði, er aðfei'ð-