Ársrit Nemendasambands Laugaskóla - 01.01.1934, Page 32

Ársrit Nemendasambands Laugaskóla - 01.01.1934, Page 32
30 skuggum, en lengra út er allt opið og ekkert að sjá nema himinblámann. Nú leggur hann sig fyrir og sofnar. Næsta morgun breiðir landið sig út fyrir fót- um hans, heilt konungsríki af frumskógi og beiti- löndum. Hann heldur ofan í dalinn. Þarna er iðgræn hlíð, en lengra niður frá blikar á vatn, það er áin. Héri skýzt fyrir tré á bakkanum, tekur sig upp og hendist yfir um ána í einu stökki. Maðurinn kinkar kolli ánægjulega, eins og honum finnist að svona eigi árnar að vera: Ekki breiðari en svo, að hérarnir leiki sér að því að stökkva þær. Rjúpa þýtur upp úr skorn- ingi, flögrar til og tyllir sér svo og hvæsir á móti honum. Maðurinn hneigir sig aftur af velþóknun. Bæði fuglar og villidýr. Það er eins og það á að vera! Hann kafar í bláberjalyngi, hann veður um smá- burknastóð og öslar gegnum grasflækjur og skógar- stjörnur. Hér og þar nemur hann staðar og krafsar ofan í jörðina með járni. Nú líkar honum: moldin er þvöl og feit, hér hafa greinar af trjám fúnað nið- ur um þúsundir ára og lauffallið hlaðizt niður öld eftir öld og komið rækt í jörðina. Enn kinkar maður- inn kolli og hugsar með sér: hér er þó verandi, gott undir bú, það má nú segja. Hann er staðráðinn í að setjast að. Tvo daga er hann á ferli þarna í kring að kanna landið, en á kvöldin kemur hann aftur og leggur sig til svefns á fleti, sem hann er þegar búinn að koma sér upp undir berum himni, neðan til í hlíð- inni, skammt frá hamri einum. Nú kann hann við sig, er alveg eins og heima hjá sér, strax búinn að eignast ból til að sofa í. Verst hafði verið að finna staðinn, þennan sem enginn hafði yfir að segja nema hann sjálfur. Nú er nóg að gera; hann fer og flær næfra af trjánum; ein- mitt núna er heppilegi tíminn til að taka þá. Hann
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Ársrit Nemendasambands Laugaskóla

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Nemendasambands Laugaskóla
https://timarit.is/publication/871

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.