Ársrit Nemendasambands Laugaskóla - 01.01.1934, Síða 35
33
. hvaö sem nú hefur valdið því. ísak skildi það ekki.
Það skyldi annars vera, að hann hafi ekki skilið það.
Hver vill ráða sig hjá einsetumanni og flytja til hans
inn í óbyggðir, óraleiðir frá allri annari mannabyggð.
Svo var nú maðurinn sjálfur ekki par fríður fyrir
augað, né sérstaklega indæll í viðkynningu og sam-
búð. Og ætli þeim þyki hann nógu þýðlegur í röddinni,
eða háfleygur í orðavali? Líklega varla. Frekar þetta
ruddafenginn í rómnum og minna um of á tarf.
Jæja, svo er þá bara að láta sér lynda einlífið.
Næsta vetur ér fsak mikið heima í kofa sínum og
smíðar trékirnur og selur þær í byggðinni jafnóðum,
og ber þær heim til kaupendanna. í bakaleið flutti
hann svo með sér verkfæri og matvörur og kafaði
snjóinn. Það var dálítið erfitt og engum örkvisa ætl-
andi að vera slíkur áburðarklár jafnt og þétt á
milli merkur og manna. Og svo voru það skepnurnar,
hann aleinn við hirðinguna og gat ekki verið nema
sem stytzt að heiman, hvernig fór hann að því? Vand-
ræðin glæða hugvitið og ísak hafði vel byggðan haus
og óþreyttan, sem þó var farinn að æfast í að greiða
fram úr ýmiskonar vandamálum. Framan af hafði
hann alltaf látið út geiturnar, þegar hann fór að
heiman og lofað þeim að darka, þangað til hann kom
aftur. Nú datt hann ofan á annað ráð: Hann flutti
dall niður að á og kom honum svo fyrir þar, að vatn
vætlaði ofan í hann,svo að hann varðfullurál4klukku-
tímum. En á sömu stundu og út af flóði ílátinu hafði
það náð þeim þunga, að það fór úr jafnvæginu og
rambaði um. Og um leið kippti stampurinn í spotta,
sem í hann var festur og náði alla leið heim í hey-
hlöðu, hleri opnaðist og dagsgjöf handa þremur geit-
um valt inn til þeirra í jötuna.
Svona fór hann að því.
3