Ársrit Nemendasambands Laugaskóla - 01.01.1934, Qupperneq 62
60
Um hvert þessara fjögurra atriða er rétt að fara
nokkrum orðum til skýringar.
1. Þátttaka sambandsins í stjórn skólans er þegar
hafin að því leyti, að tveir menn, kosnir af meðlim-
um sambandsins, eiga sæti í skólanefnd Laugaskóla,
og hefur sambandið þannig meiri rétt til afskipta af
málum skólans en aðrir aðilar, sem ekki hafa þar
nema einn fulltrúa hver, og er tæpast að veröleikum
eða í hlutfalli við styrk þann, er skólinn hefur af
nemendasambandinu og verður rætt um það, hvort
hann geti ekki orðíð meiri á einhvern hátt.
2. stjórn N. L. ritaði nemendasamböndum hinna
héraðsskólanna bréf, sem birt er á öðrum stað hér
í ritinu, og samdi jafnframt frumdrætti að lögum fyr-
ir landssamband nemendafélaga. Lög þessi ættu fé-
lagar nemendasambandsins að athuga, því að ef til vill
verður stofnun landssambands komið það langt, er
næsta mót verður haldið, að þau eöa svipuð lög liggi
fyrir til samþykktar.
3. Verði af stofnun landssambands, verður að
breyta lögum nemendasambandsins í samræmi við
lög landssambandsins. Enda gæti komið til lítilsháttar
breytinga hvort sem er.
4. Breyting á útgáfu Ársritsins var til umræðu á
síðasta móti, en þá var samþykkt að gefa það út ineö
sama sniði. En fram komu ýmsar raddir um, að breyt-
inga væri þörf, og munu þær taka á sig ákveðnara
form á næsta móti.
Eigi hafa komið fram raddir frá þeim, er sótt hafa
mótið, um að tími sá, er valinn hefur verið til mót-
anna, værióheppilegur, heldur hefur hann þvert á móti
líkað vel. Verður því til þessa móts valinn sami tími.
Dagarnir 14.—16. júní. 17. júní er almennur hátíðis-
dagur um land allt, og var það sumum til baga að