Aðventfréttir - 01.01.2003, Qupperneq 7
Kirkja Sjöunda Dags
Aðventista
35. aðalfundur
Skýrsla Boðunarstarfsins
1. Inngangur
A síðasta aðalfundi Kirkjunnar var
mér m.a. falið að sinna verkefnum í
tengslum við boðunarstarf safnaðarins.
Þau verkefni sem ég hef sinnt í því sam-
bandi á þessu tímabili eru eftirfarandi:
• Net 98 - Umsjón með fullnaðarfrá-
gangi og útgáfu á efni á myndbönd-
um
• Yfirlestur og frágangur til útgáfu á
Discover Bible School námsflokkn-
um
• Umsjón með útgáfu á myndbanda-
röðinni „Leitin“ („The Search“)
• Umsjón með þýðingu og útgáfu á
myndböndunum „Ferð á fund hins
yfirskilvitlega“ („A Trip Into the
Supematural") með Roger Morneau
sem var fjármögnuð af einkaaðilum í
Vestmannaeyj um
• Umsjón með þýðingu og yfirlestur á
bókinni „Náttúruleg safnaðarupp-
bygging" eftir Christian Schwarz
• Utgáfa á Veginum til Krists í formi
myndskreyttra rita fyrir hvern kafla
2. Þættir í árangursríku boðunar-
starfi
Við upphaf þessarar skýrslu langar
mig til þess að birta nokkrar tilvitnanir
sem skilgreina boðunarstarf safnaðarins,
undirstrika mikilvægi þess og benda á
leiðir til árangurs.
a. Hlutverk fylgjenda Krists
í heiminum kemur skýrt fram í orð-
um Páls postula:
„Vér erum því erindrekar Krists, eins
og það væri Guð, sem áminnti, þegar
vér áminnum. Vér biðjum í Krists stað:
Látið sættast við Guð“ 2 Kor 5.20.
Ellen G. White segir um þetta:
Okkar er að vera fulltrúar Krists eins og
Kristur var fulltrúi föður síns. Við viljum
geta laðað sálir til Jesú, beint þeim til
lambsins frá Golgata sem tekur burt synd
heimsins. Kristur hylur ekki synd með rétt-
læti sínu heldur fjarlægir hann syndina, og
í hennar stað veitir hann sitt eigið réttlæti.
Þegar synd þín hefur verið fjarlægð fer rétt'
læti Krists fyrir þér og dýrð Drottins verður
Eric Quðmundsson
hlutskipti þitt. Áhrif þín verða þá á ákveð-
inn hátt Krists megin því i' stað þess að gera
sjálfið miðlægt munt þú gera Krist að
þungamiðju og munt finna að þér hefur ver-
ið treyst fyrir guðlegum fjársjóði (Reflecting
Christ, 213).
b. Máttur trúarinnar
„Eg bið þess að vitnisburður þinn nái
hjörtum áheyrenda þinna og að þeir sjái hve
auðugur þú ert að góðum verkum í trúnni á
Krist Jesú" Fíl 6 (Lifandi orð).
Frammi fyrir söfnuðinum liggur bar-
átta við öfl myrkursins. Um þetta segir
Ellen G. White eftirfarandi þar sem hún
fjallar um reynslu lærisveinanna og sem
á við starf okkar einnig:
„Til þess að ná árangri íslíkum átökum
hefðu þeir orðið að ganga til verks með öðru
hugarfari. Trú þeirra varð að styrkjast við
heitar bænir ogföstur og auðmýkingu hjart-
ans. Þeir urðu að tæmast af sjálfshyggju og
fyllast anda og mætti Guðs. Einlæg og þol-
góð bæn til Guðs í trú - trú sem leiðir til
fullkomins trausts á Guði og skilyrðislausr-
ar helgunar í starfi fyrir hann - getur ein
dugað til að afla mönnum hjálpar heilags
anda í baráttunni við tignimar og völdin,
við andaverur vonskunnar í himingeimn-
um. ...Þó að tálmanir þær, sem Satan
hleður upp á leið þinni, virðist jafnóyfirstíg-
anlegar og hin eilífu fjöll munu þær hjaðna
fyrir skipun trúarinnar. „Ekkert verður
yður um rnegn" (Þrá aldanna, bls. 320-
321).
c. Máttur skipulagningarinnar
„Til þess að söfnuðurinn nái ár-
angri við framkvæmd boðunarskip-
unar Krists (Mt 28.16-20) verða ein-
staklingar innan safnaðarins og söfn-
uðurinnn í heild á skipulagðann hátt
að stefna að því að mynda tengsl við
fólk sem þekkir ekki Krist með það
að markmiði að það verði heilshugar
fylgjendur hans og virkir þátttakend-
ur í lífi kirkjunnar og samfélagsins.
Með því að starfrækja viðeigandi
þjónustuhópa og stofna til gefandi
persónulegra tengsla geta fylgjendur
Krists leitt aðra inn í fjölskyldu
Krists" (Robert Logan og Thomas
Clegg: Releasing Your Church’s
Potential, bls. 8-1).
d. Boðun er starf alls safnaðar-
ins
„Skipun Krists til lærisveinanna
nær til allra trúaðra. Henni er beint til
allra þeirra sem á Krist trúa, allt til
endalolca tímans. Það er geigvænleg
villa að fmynda sér að starfið sálum til
frelsunar sé bundið við vígða presta.
Öllum, sem meðtekið hafa himneskan
innblástur, er trúað fyrir fagnaðarerindinu.
Allir, sem meðtalca líf Krists, eru vígðir til
starfa meðbræðum smum til frelsunar. Til
þessa starfs var kirkjan stofnuð og allir sem
gangast undir heilög heit hennar eru um leið
skuldbundnir til samstarfs með Kirsti" (Þrá
aldanna, bls. 613).
Þegar Kristur steig til himins færði
hann kirkjuna og alla hagsmuni hennar
sem guðdómlegan fjársjóð í hendur fylgj-
endum sínum og fól þeim að sjá til þess
að henni væri viðhaldið í blómstrandi
ástandi. Þetta er ekki verk sem má hvíla
á herðum prestanna einna eða hjá fáein-
um leiðtogum safnaðarins. Sérhver safn-
aðarmaður skyldi sannreyna að
hann/hún hefur gert háleitan sáttmála
við Drottinn um að starfa á sem skil-
virkastan hátt að málefni hans á sér-
hverjum tíma og undir sérhverjum
kringumstæðum. Hverjum og einum
skyldi úthlutað verkefni, ábyrgðarhlut-
verki að sinna (Gospel Workers, 200).
e. Boðun í víðara samhengi
„Boðunin er ekki eingöngu fólgin í pré-
dikunum. Þeir eru þátttakendur í boðun-
inni sem annast sjúka og þjáða, hjálpa
nauðstöddum, tala hugguruxrarorð til þeirra
sem örvænta og eru veikir í trúnni. Nær og
fjær má finna menn sem sektarvitundin
íþyngir. Það eru ekki erfiðleikar, strit eða
fátækt sem niðurlægja mannkynið. Það er
sekt og ranglæti. Sekt og ranglæti vekja
óróa og óánægju. Kristur vill að þjónar
hans liðsinni syndasjúkum heimi" (Þrá ald-
anrta, bls. 613-614).
Aðventfréttir
7