Aðventfréttir - 01.01.2003, Page 8
Hljómsveit œskunnar spilaði á guðspjónustu á HDS 24. maí 2003.
f. Fullvissa um árangur
„(Kristur) bjó jarðveginn alveg undir
það að starfið yrði framkvæmt og tók á eig-
in herðar ábyrgð á árangri þess. Meðan þeir
hlýddu orðum hans og ynnu í samfélagi við
hann gæti þeim ekki mistekist" (Þrá ald-
anna, bls. 613).
3. Net 98 á íslandi
• Net 98 er heiti á samkomuröð sem
sjónvarpað var um gervihnött í októ-
ber og nóvember 1998.
• Ræðumaður var Dwight Nelson,
prestur við söfnuð Andrewsháskól'
ans í Michigan í Bandaríkjunum.
• Umfjöllunarefnið er aðventboðskap'
urinn um frelsið í Jesú Kristi í ljósi
þeirra tíma sem við lifum á.
• Námskeiðið spannaði 31 fyrirlestur.
• Þýðandi Sigrún Einarsdóttir, fjöl-
földun annaðist SAM fjölföldun.
• Enn eru til þó nokkur sett af þessari
þáttaröð hjá Frækominu
4. Biblíubréfaskólalexíurnar
Discover Bible School
• Biblíubréfaflokkur sem er 26 lexíur
og er gefinn út af Voice of Prophecy
(Rödd spádómanna) í Bandaríkjun-
um.
• Þýðandi Omar Torfason.
• Efnið er tilbúið til notkunar sem
biblíubréfaflokkur í hefðbundnu
formi eða sem fræðsluefni á netinu.
5. Þáttaröðin „The Serach“
(Leitin)
• 20 myndbandsþættir sem gefnir hafa
verið út af ástralska sambandinu.
• Þýðandi Sigrún Einarsdóttir, fjöl-
földun annaðist SAM fjölföldun.
• Þættirnir eru byggðir upp sem sjón-
varpsefni þar sem myndefni og við-
tölum víða að úr heiminum er skeytt
inn í frásögn sögumanns.
• Þættirnir, sem eru í háum gæða-
flokki eru sérstaklega til þess hann-
aðir að einstaklingar horfi á þá með
vinum sínum á heimilum og ræði
síðan efni þáttarins á eftir.
• Hver þáttur tekur 30 mínútur og sér-
stakur spurningalisti til umræðu fylg-
ir hverjum þætti.
• Nokkuð magn er enn til hjá
Frækorninu af þessum þáttum.
6. Myndböndin „Ferð á fund hins
yfirskilvitlega"
• Viðtal við Roger Morneau og konu
hans um lausn hans úr viðjum anda-
trúarinnar.
• 2 myndbönd, 2 tímar hvert.
• Þýðandi Sigrún Einarsdóttir, fjöl-
földun annaðist SAM fjölföldun.
• Hér er um afar merkilega reynslu-
sögu að ræða sem á brýnt erindi til
margra í okkar samfélagi í dag.
• Tilvalið efni til fræðslu fyrir safnað-
arfólk og til að deila með þeim sem
glíma við spurningar tengdar anda-
trúnni.
• Nokkrir þættir eru enn til hjá
Frækorninu.
7. Þýðing og útgáfa á bókinni
„Náttúruleg safnaðaruppbygg-
ing“
• Bók um safnaðaruppbyggingu eftir
þýskan höfund, Christian Schwarz,
sem hefur náð mikilli útbreiðslu í
mörgum vestrænum löndum.
• Við þýðingu og yfirlestur unnu auk
undirritaðs sr. Valdimar Hreiðarsson,
sr. Vigfús Ingvar Ingvarsson og Omar
Torfason.
• Megin kenning bókarinnar er að
með því að kynnast og komast í sam-
hljóman við lífræn lögmál (lögmál
sem lúta að lifandi verum) sem stýra
allri náttúru Guðs, einnig lífi safnað-
arins, mun náttúrulegur vöxtur eiga
sér stað samkvæmt fyrirætlan Guðs.
• Kenningar bókarinnar og þær könn-
unaraðferðir sem þar er lýst hafa leitt
til styrkingar safnaða víða um lönd,
ekki minnst aðventsafnaða.
• Bókin fæst hjá Frækorninu.
8. Útgáfa á Veginum til Krists í
formi myndskreyttra rita fyrir
hvern kafla
• Ritin sem eru prentuð hjá Matteson-
skólanum í Danmörku eru ætluð til
gjafa til almennings.
• Aðferðin er sú að dreifa boðsmiðum
í heimahús þar sem ritflokkurinn er
boðinn sem gjöf. Ritunum, einum
kafla í senn, er síðan skilað til þeirra
sem áhuga hafa með persónulegri
heimsókn.
• Þetta form hefur borið góðan árang-
ur í Danmörku
9. Niðurlag
Margt hefur verið gert hvað varðar
boðun á vegum Kirkjunnar á síðustu
þremur árum, og flest merkara en það
sem hér um getur, sem vonandi verður
tíundað í öðrum skýrslum. Hér hefur
eingöngu verið hreyft við þeim mála-
flokkum sem ég hef borið ábyrgð á.
Hvað framtíðina snertir sé ég það
allra mikilvægast að þjálfa hinn al-
menna safnaðarmann til þátttöku í boð-
unarstarfinu og færa honum í hendur
þau tæki sem til eru og sem hér hafa ver-
ið nefnd, svo og önnur sem okkur kunna
að bjóðast í framtíðinni. Ég vil benda á
að sérhver söfnuður þarf að starfrækja
slíkar þjálfunarbúðir fyrir boðun. Einnig
ættu söfnuðirnir að taka höndum saman
og hvetja hvem annan í þessu starfi. Við
erum ekki það mörg á þessu landi að það
taki því að skipta okkur í marga smá-
hópa. Við verðum að muna að það er
máttur í sameinuðu átaki.
I þessu samhengi vil ég líka leyfa mér
að benda á þá möguleika sem aðstaðan á
Hlíðardalsskóla gefur til slíkrar þjálfunar
og til eflingar sameinaðs átaks. Þar getur
safnaðarfólk komið saman til lengri eða
skemmri dvalar til bænagjörðar, biblíu-
lestrar og virkrar þjálfunar og þannig
nálgast Guð, nálgast hvert annað og
fyllst Heilögum anda. Ef eining skapast
milli Guðs og manns og manna í milli
innan safnaðarins mun söfnuðurinn
verða að máttugu verkfæri í hendi
Drottins sem allt óvinarins veldi mun
ekki geta yfirbugað.
Eric Guðmundsson
8
Aðventfréttir