Aðventfréttir - 01.01.2003, Blaðsíða 11
Unnur Halldórsdóttir.
haldin á Selfossi, Vestmannaeyjum,
Hafnarfirði og í Reykjavík. Þátttakend-
urnir voru flestir utansafnaðarfólk.
Helgarnámskeið var haldið á Hlíðar-
dalsskóla í október 2001. Gestir mótsins
og fyrirlesarar voru Edda og Ole Bakke.
Þetta voru frábærir og mjög tímabærir
fræðsluþættir, sem enginn hefði átt að
missa af.
Heilsusýning var sett í gang í Hafn-
arfirði í október/ nóvember 2002. Þetta
var gert samhliða fyrirlestraröð þar sem
Margrét Ospina flutti 4 fyrirlestra um
mataræði og lífstíl og lagði aðal áherslu
á sykursýki og hjartasjúkdóma, sem
dæmi um vandamál vegna lífstíls nútím-
ans. Hún endaði þetta verkefni með
matreiðslunámskeiði í Suðurhlíðarskóla.
Andri Sigurgeirsson flutti einn fyrirlest-
ur í þessari röð fyrirlestra. Hann fjallaði
um mikilvægi hreyfingar á heilsuna.
Fjöldi annarra safnaðarmeðlima tók
einnig virkan þátt í undirbúningi og
flutningi þessa verkefnis, þar sem lögð
var áhersla á 8 atriði heilsuboðskaparins.
Það voru stöðvar í salnum fyrir hvert at-
riði og flestir gestanna komu við á öllum
stöðvunum, en þær voru eftirfarandi:
1. Næringarfræði (létt kynning á
heilsufæði).
2. Hreyfing ( boðið upp á þolpróf fyrir
hjartað).
3. Vatn (upplýsingar um hvenær og
hversu mikið vatn við þurfum að
drekka daglega).
4. Sólskin (boðið upp á blóðþrýstings-
mælingar).
5. Bindindi (fólki boðið að vigta sig og
mæla % fitu í líkamanum).
6. Loft (boðið upp á lungnaþolpróf).
7. Hvíld (boðið upp á nudd fyrir axlir
og bak, ásamt heilráðum um að slaka
á og losa sig við streitu með því að
leggja áhyggjur lífsins í hendi Guðs).
8. Að treysta Guði (þar voru ráðgjafar
til staðar, sem voru tilbúnir til að
hlusta á andleg og líkamleg vanda-
mál gesta).
9. Að lokum gat fólkið tekið þátt í að fá
áætlaðan lífsaldur sinn í samræmi
við lífsvenjur þeirra nú. Við þetta er
notað sérstakt tölvuforrit sem hefur
verið samið eftir rannsóknum á lífstíl
fólks.
10. Lokaatriði þáttaraðanna var svo
matreiðslunámskeið í Suðurhlíðar-
skóla þann 24- nóvember.
I Vestmannaeyjum 2. febrúar 2002
fluttu Margrét Ospína og Melanie Dav-
íðsdóttir fyrirlestra um næringarfræði og
ofnæmi. Þar var einnig matreiðslunám-
skeið.
Vinátta.
Á Selfossi, í febrúar 2001, flutti Edda
Bakke fyrirlestra um næringarfræði. Á
matreiðslunámskeiðinu og eftir fyrir-
lestrana komu upp margar spurningar
sem hún svaraði óhikað. I lok þessara
námskeiða flutti Edda ræðuna í safnað-
arheimilinu á hvíldardeginum. Öllum
þátttakendum og fjölskyldum þeirra var
boðið að koma og snæða hádegisverð í
safnaðarheimilinu. Þetta var auglýst í
bæjarblaðinu sem „Grænmetis hlað-
borð“ og var vel sótt af samfélaginu.
Heilsuhornið hefur verið fastur liður
í Aðventfréttum. Þar eru gefin holl ráð
og uppskriftir af hollum mat.
Einnig var heilsusíða á netinu undir:
www.brunnurinn.is/heilsa
Á sumarmótinu 2001 og 2002 voru
heilsuþættir hluti af dagskránni.
Lögð hefur verið áhersla á að söfnuð-
irnir taki upp þá hefð að bjóða upp á ein-
falda máltíð á hverjum hvíldardegi. Við
kusum að kalla þetta „hvíldardagssúpu“.
Markmiðið er að stuðla að nánara sam-
félagi meðal safnaðarfjölskyldunnar,
auðvelda fólki að stunda gestrisni í kirkj-
unni og minnka íburðarmikla „lukku-
potta“, sem oft skapa rnikla vinnu á
hvíldardögum.
Við gerðum einnig tilraun til að
koma á degi í Suðurhlíðarskóla, þar sem
safnaðarfólk, nemendur og fjölskyldur
þeirra, gátu keypt grænmetismat. Mark-
miðið var að kynna mataræði kirkjunn-
ar fyrir utansafnaðarnemendum og fjöL
skyldum þeirra, ásamt því að setja í gang
fjáröflun fyrir skólann. Hugmyndin var
að setja upp matstofu þar einu sinni í
mánuði eða viku, ef áhugi væri fyrir
hendi.
Við viljum minna ykkur öll á þá
staðreynd að Jesús Kristur er ennþá hinn
mikli læknir og enn í dag eru krafta-
verkalækningar lifandi þáttur í lífi hinn-
ar kristnu kirkju. Við lítum á líkama
okkar sem musteri Heilags anda og erum
ábyrg fyrir því að meðhöndla hann sem
eign Guðs. Hinu megum við samt ekki
gleyma, að bænin er ennþá máttugasta
aflið sem við eigum, það er hún sem
kemur okkur í náið samband við lækn-
inn mikla. Án hans er engin lækning og
ekkert líf.
Biðjum hvert fyrir öðru og fyrir söfn-
uði Guðs á jörðu.
Unnur Halldórsdóttir, formaður
HeilsU' og bindindisdeildarinnar.
Bæn
Þegar raunir þjaka mig,
þróttur andans dvínar,
þegar ég á aðeins þig,
einn með sorgir mínar,
gef mér kærleik, gef mér trú,
gef mér skilning hér og nú.
Ljúfi Drottinn lýstu mér,
svo lífsins veg ég finni.
Láttu ætíð ljós frá þér
ljóma í sálu minni.
Gísli frá Uppsölum
Aðventfréttir
11