Aðventfréttir - 01.01.2003, Qupperneq 16
Kirkja Sjöunda Dags
Aðventista
35. aðalfundur
Skýrsla tónlistarstjóra
„Tónlist var gerð til að þjóna helgu
markmiði, til að beina huganum að því,
sem er hreint, göfugt og háleitt, og til þess
að vekja sálina til þakklætis og helgunar í
Guði.“ CE 62.3.
Starf tónlistarstjóra Kirkju Sjöunda
dags aðventista felur það í sér að vera
samtökunum innan handar um ýmis
verkefni sem þau óska eftir að séu unn-
in.
Helst ber að nefna eftirfarandi:
Sameiginlegar guðsþjónustur
Einkum hefur það falið í sér að und-
irbúa undirleik fyrir sálmasöng fyrir sam-
eiginlegar guðsþjónustur. Hljómsveitin,
sem hefur á að skipa breiðum aldurshóp,
þó aðallega börn og unglinga, hefur tek-
ið þátt í þessum sameiginlegu guðsþjón-
ustum með hljóðfæraleik sfnum og verið
mikil blessun. Það er ánægjulegt að sjá
að sá hópur virðist fara stækkandi.
Hljómsveitin er opin öllum sem geta
spilað á strcngja- eða blásturshljóðfæri.
Leiðbeiningar um tónlist í kirkjum
aðventista á íslandi
Samkvæmt beiðni voru gerðar leið-
beiningar um tónlist í kirkjum að'
ventista á Islandi. Tónlistarleiðbeining-
ar Aðalsamtaka sjöunda dags aðventista
Elísa Elíasdótdr
Ester Ólafsdóttir
voru hafðar til hliðsjónar, (það er það
skjal sem hvað mest er beðið um hjá Að-
alsamtökunum). Leitað var eftir megin-
reglum í Ritningunni, í ritum Ellen G.
White og nútímatónlistar-rannsóknum.
Þessar leiðbeiningar voru lesnar yfir af
leiðtogum safnaðarins og síðan sam-
þykktar af stjórn Kirkju Sjöunda dags
aðventista 10 júlí 2001. Vitað er til þess
að erlendar aðventkirkjur hafi tekið upp
þessar leiðbeiningar og enn aðrar haft
þær til hliðsjónar við gerð sinna eigin
leiðbeininga.
Mótsöngvar fyrir sumarmót
Það hefur fallið í hlut tónlistarstjóra
að sjá um uppsetningu, prófarkalestur og
að koma mótsöngvum í prentun fyrir
sumarmót. S.l. ár hafa mótsöngvar verið
valdir með efni mótsins í huga og hefur
val á sálmum verið í höndum formanns
Þórdís Jónsdóttir
kirkjunnar, fjármálastjóra og annarra
starfsmanna kirkjunnar ásamt tónlistar'
stjóra. Við erum einstaklega lánsöm í
okkar kirkju að eiga fólk sem er hagmælt
og er tilbúið að þýða og semja ljóð. Þetta
er dýrmætt fyrir okkur sem söfnuð og vil
ég þakka öllum þeim sem hafa þýtt eða
samið sálma fyrir okkur. Að öllum ólöst'
uðum vil ég sérstaklega fá að nefna Jón
Hj. Jónsson.
Sálmabókin
Nauðsynlegt er halda utan um
sálmabókina. Þegar undirrituð tók við
þessu starfi kom í ljós að tölvugeisladisk-
ar með sálmabókinni á voru horfnir úr
öryggisskáp samtaka Kirkjunnar. Það lá
fyrir að verk fyrir stórfé væri glatað. Bet-
ur fór en á horfðist, því að sá sem setti
upp sálmabókina átti ennþá afrit af
sálmabókinni í gamalli tölvu úti í bíÞ
skúr. Búið er að gera afrit en það þarf að
uppfæra diskana svo að hægt sé að opna
skjölin og koma því yfir á PC tölvuforrit.
I þessu liggur ennþá mikil vinna. Til
stóð að setja sálmabókina inn á „Brunn-
urinn.is" en ofangreint vandamál hefur
hamlað því.
Einnig er nauðsynlegt að halda utan
um þær villur og lagfæringar sem þarf að
gera í sálmabókinni. Gerður hefur verið
villulisti og vonandi verður hægt að
leiðrétta þær á tölvudisknum fyrr en síð-
ar.
Barnasálmabók
Nú er verið að vinna að því að setja
upp sálmabók fyrir böm. Margir hafa
unnið þar mikilvæga forvinnu. Kristín
Jónsdóttir setti saman sálmabók fyrir
börnin fyrir nokkrum árum einnig hafa
Krystyna Cortes og Sigríður Kristjáns-
dóttir tekið saman langan lista af sálm-
um. Tónlistamefnd (sem hefur á að
skipa tónlistarstjórum og öðru tónlistar'
fólki úr öllum söfnuðum) fjallaði um til-
vonandi barnasálmabók og var það sam-
Helena Þórólfsdóttir
16
Aðventfréttir