Aðventfréttir - 01.01.2003, Blaðsíða 18

Aðventfréttir - 01.01.2003, Blaðsíða 18
Suðurnesjahóþurmn. Kirkja Sjöunda Dags Aðventista 35. aðalfundur Skýrsla Æskulýðsdeildar Breyttar áherslur A síðsta vetrarfundi deildarinnar vöktu margir formenn Sambandanna ar- hygli á því í skýrslum sínum að æskan í löndum þeirra væri sífellt virkari í boð- unarstarfinu. Á liðnum árum hefur æskulýðsstarfið oft snúist um það að hafa ofan af fyrir unga fókinu með ferð- um og skemmtunum af ýmsu tagi í þeim tilgangi að viðhalda áhuga þeirra fyrir kirkjunni. Þetta er af hinu góða, en eins og sífellt fleiri hafa áttað sig á er jafnvel enn mikilvægara að virkja æskuna til beinnar þáttöku í starfinu fyrir Guð. Svo sannarlega er það ástæðan fyrir tilvist kristinnar æsku. Þetta er sú breyting sem við þurfum að vinna að á Islandi, breyt- ing sem ég trúi að sé þegar farin að eiga sér stað. Suðurnesja-verkefnið Á Suðurnesjum var venjan að hafa prest í 25% starfi. Það starf er nú í hönd- um ungs fólks sem mér er mikil ánægja að segja að hefur varið ómældum tíma og fyrirhöfn til þess að fylla þetta skarð. í byrjun, þegar ég minntist á þetta verk- efni við hópinn, var það virkilega hríf- andi að verða vitni að því þegar æsku- fólk á ýmsum aldri kom saman á hverj- um degi til að fasta saman og biðja um leiðsögn Guðs varðandi þátttöku þeirra í þessu verkefni. Eg er mjög bjartsýnn á framtíð kirkjunnar ef unga fólkið tekur störf að andlegum málum safnaðarins svona alvarlega. Síðastliðið ár hefur gef- ið þessu unga 'fólki mjög dýrmæta reynslu af safnaðarstarfi og nú óska þau eindregið eftir að leggja krafta sína fram í þágu útbreiðslustarfsins. Námskeið í Kikhavn Fjögur okkar fóru til Kikhavn og hittu um 150 aðra æskulýðsleiðtoga frá ýsmum löndum Norður-Evrópu og víðar. Það var mjög uppörvandi að sjá þessa breytingu á starfi æskunnar sem ég nefn- di hér í upphafi skýrslunnar. Æskulýðs- leiðtogi Suður-Kyrrahafsdeildarinnar, sagðist aldrei áður hafa hitt hóp æsku- lýðsleiðtoga sem var jafn ábyrgur og áhugasamur um boðun fagnaðarerindis- ins eins og þann sem þarna var saman kominn. Það var mjög gott fyrir litla hópinn frá íslandi að vera hluti þessa stóra hóps, endurnýja eldmóðinn og fá nýjar hugmyndir fyrir starfið í Keflavík. Aðventskátar Ég er Maxwell Ditta og öllum hinum leiðtogunum sem endurreistu skátastarf- ið hér fyrir tveimur árum fjarskalega þakklátur. í síðustu viku var þriðja skáta- vígluathöfnin síðan starfið hófst á ný. Ég veit að það hefur verið mikið starf að gera skátastarfið svona árangursríkt, auk þess hófst leiðtoganámskeið nú fyrir stuttu. Á þessum tíma hafa skátarnir tekið þátt í skátamóti í Póllandi. Þegar krakkarnir okkar voru þar bundust þeir vináttuböndum við þýsku skátana og þeir munu heimsækja ísland eftir tvo mánuði. Bænavika æskunnar - boðun í brennidepli Það er gleðiefni hvað við höfum fengið góða ræðumenn til að tala á bænaviku æskunnar undanfarin ár. Á síðasta ári mættu u.þ.b. 50 ungmenni til að hlusta á Cindy Tutch, sem er skín- andi gott. Á fundi í æskulýðsdeildinni fyrir nokkrum mánuðum, ákváðum við að í framtíðinni vildum við að ræðu- maðurinn tæki að sér að meiri þjálfun en væri ekki bara með ræður á kvöldin. Við ákváðum þessvegna að nota það fjármagn sem úthlutað er til bænaviku þessa árs til þess að fá einhvern til að vera með okkur yfir helgi og leiðbeina 18 Aðventfréttir

x

Aðventfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Aðventfréttir
https://timarit.is/publication/973

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.