Aðventfréttir - 01.01.2003, Blaðsíða 20

Aðventfréttir - 01.01.2003, Blaðsíða 20
Frá Líknarfélaginu ALFA og þægilegur. Regla, metnaður og sköp- un eru einkunnarorð skólans og lýsa honum vel. Þegar við vorum búin að fá krökkunum þakkarskjölin gekk Helgi skólastjóri um skólann með okkur og sýndi okkur það helsta. Við hittum Ingu Láru fjármálastjóra sem hélt utanum alla kortasöluna og viljum við koma á fram- færi sérstöku þakklæti til hennar. Helgi sagði okkur á göngunni um skólann að áður en krakkarnir fóru út að selja kort- in var haldinn nemenda, kennara og foreldrafundur um það hvort þau ættu að selja þessi kort fyrir Alfa. Niðurstað- an varð sú að þeim fannst kortin svo falleg og öðruvísi að þau vildu ekki missa af því að selja þau. Og strax var hafist handa. Grein var skrifuð í bæjarblaðið þess efnis að krakkarnir væru að ganga í hús og selja jólakort. Allir voru meðvit- aðir um hvað var að gerast. Nemendur sjöunda bekkjar, foreldr- ar, kennarar og skólastjóri Rimaskóla. Við þökkum ykkur af hjarta fyrir alla að- stoðina. Þið stóðuð ykkur eins og hetjur. Haldið áfram að hugsa um þá sem minna mega sín og rétta þeim hjálparhönd. Það kostar ekkert að vera kurteis og góður og við þurfum öll á hvert öðru að halda. Guð veri áfram með ykkur kæru vinir. Kveðja. Anna Margrét Þorbjamardóttir, formaður Líknarfélagsins Alfa. Nú er árið 2002 liðið og 2003 tekið við. Síðasta ár var annasamt hjá okkur í Alfa og skjólstæðingum okkar fjölgar ár hvert. Við höfum aldrei úthlutað jafn- mörgum styrkjum og jólin 2002. Það er gaman og gott að geta aðstoðað aðra. Til þess að aðstoða aðra þurfum við peninga til þess að kaupa mat eða gjafakort. Hvaðan koma peningarnir? Jú, þeir koma inn allsstaðar frá, ýmist í peninga- gjöfum sem Líknarfélaginu berast, sam- skotum í kirkjunum okkar eða með ým- iskonar sölu. Það er einmitt þetta síðast- nefnda sem mig langar til að vekja verð- skuldaða athygli á. Síðastliðin ár höfum við haft til sölu jólakort sem Lilja Sig- urðardóttir hefur látið útbúa og við höf- um fengið hagnaðinn sem hefur komið að góðum notum. Við viljum koma á framfæri sérstöku þakklæti til Lilju fyrir hennar starf í þágu Alfa. Síðasta ár seldi sjöundi bekkur RIMASKÓLA fyrir okk- ur jólakort. Þau voru að safna fyrir ferð og fengu prósentur af sölunni. Þetta er árviss viðburður hjá sjöunda bekk Rima- skóla og leggur skólinn áherslu á að þau reyni að safna fyrir ferðinni frekar en að grafa í vasann hjá mömmu og pabba. Þetta árið seldu þau kort fyrir okkur og gekk vægast sagt mjög vel. Þeim gekk svo vel að við í félaginu vorum alveg undrandi og fundum aðeins eina skýr- ingu. GUÐ var með þeim, þau voru að vinna að góðu málefni og hann opnaði dyr fyrir þeim. Þau seldu jólakort fyrir tæp 400 þúsund! Geri aðrir betur! Okk- ur í Alfa þótti svo vænt um þetta inn- legg frá krökkunum að við höfðum sam- band við Helga Árnason, skólastjóra, og spurðum hvort við mættum ekki koma í heimsókn og þakka krökkunum per- sónulega fyrir aðstoðina. Hann bauð okkur velkomin og við mæltum okkur mót. Sandra gerði þakkarskjal fyrir hvern bekk en í Rimaskóla eru 4 sjö- undu bekkir eða um 80 krakkar. Við heimsóttum svo skólann einn miðviku- daginn. Helgi skólastjóri tók á móti okk- ur og leiddi okkur í einn sjöunda bekk- Myndir frá heimsókn í Rimaskóla. Anna Margrét og Sandra Mar. inn af örðum. Krakkarnir voru mjög kurteisir. Þegar við komum inn í hvern bekk fyrir sig stóðu allir krakkarnir upp um leið og við fórum inn fyrir þröskuld- inn og settust ekki fyrr en kennarinn eða skólastjórinn sagði þeim að gjöra svo vel að fá sér sæti. Þetta fannst mér mjög skemmtilegt að sjá. Það voru engin læti í krökkunum og við spjölluðum saman og þau svöruðu spurningum sem við höfðum varðandi jólakortasöluna. Þetta eru góðir og hugsandi krakkar. Þau hafa áður tekið að sér ýmiskonar hjálparstarf. Meðal annars fyrir ABC hjálparstarf og safnað fyrir árslaunum kennara á Thahiti svo eitthvað sé nefnt. Það var gott að koma í Rima- skóla. Skólinn er skemmtilega hann- aður og þótt hann sé einn stærsti grunnskóli landsins er hann rólegur 20 Aðventfréttir

x

Aðventfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Aðventfréttir
https://timarit.is/publication/973

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.