Heimilisritið - 01.12.1945, Síða 4

Heimilisritið - 01.12.1945, Síða 4
Sögur af fyrstu jólatrjánum Munnmælasögur. Til er helgisögn, sem skrásett var á Sikiley einhvern tíma á mið- öldum. Hún er þess efnis, að þegar K'ristur fæcldist hafi allar skepnur jarðarmnar komið til Betlehems og vottað honum lotningu sína. Og trén komu líka. Ekkert trjánna kom eins fljótt og hið minnsta þeirri, lítið grenitré. TJað var svo visið og vesaldarlegt, að það gat varla staðið, og trén með ang- andi blóm, gilda stofna og laufg- aðar krónur tóku ekkert tillit til þessa lítilmótlega, ókunna trés frá nyrsta hjara veraldar. En stjörn- urnar vorkenndu því, og sjá! stjörnuregn féll frá himnum og hin bjarta jólastjarna Ijómaði efst í litla grenitrénu en aðrar glitruðu yzt á greinum þess. Og barriið í jötunni sá grenitréð og blessaði það með því að brosa til þess. Þýzk munnmælasaga hermir, að Lúther hafi eitt jólakvöld farið út og gengið aleinn um úti i náttúr- unni. Yfir höfðu hans tindruðu þúsundir stjarna á heiðum himni, og umhverfis sig sá hann hin vold- ugu grenitré skógarins. Þessi sjón 2 hreif hann svo mjög, að hann tók lítið grenitré með sér heim og skreytti allar greinar þess með kertaljósum. í hugurn barnanna sinni vildi hann svo láta það verða ímynd hins stjörnubjarta himins. Og hann sagðj þeim, að þaðan hefði Jesúbarnið forðum komið. Þetta er að vísu falleg munn- mælasaga, en allt bendir til að hún hafi ekki við neitt að styðjast. Það er mjög ósennilegt að slíkt ha'fi verið upphaf jólatrésins, enda er ekkert í ritum Lúthers, sem styrkir þessa sögu. Onnur þýzk sögn er til um jóla- tréð. Eftir orustuna við Lutzen, haustið 1632, lá mikið af særðum hermönnum, úr hinum sigursæla sænska her, í borgunum þar í næstu héruðum. hleðal þeirra var liðsforingi nokkur, sem hafði ver- ið hjúkrað með sérstakri um- hyggju og vildi því sýna íbúun- um einhvern þakklætisvott. Þeg- ar liðsforinginn var orðinn heill sára sinna og ætlaði að fara til her- sveitar sinnar — það var í miðj- um desembermánuði — bað hann HEIMILISHITIÐ

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.