Heimilisritið - 01.12.1945, Page 6

Heimilisritið - 01.12.1945, Page 6
Mildari tónn er í riti frá öðru héraði Þýzkalands, Wittenberg. Það kom út 1737 og er eftir Kiss- ligius dósent í lögfræði. Þar stend- ur m. a.: Þegar jólagjafirnar eru afhentar með hátíðabrag, kann ég bezt við þann sið, sem ég kynntist hjá húsmóður nokkurri. Á aðfangadagskvöld reisti hún jólatré í stofu sinni, eitt handa hverjum þeim, sem hún ætlaði að gefa eitthvað í jólagjöf. Af hæð, skreytingu og öndvegisstað trjánna gat hver og einn þekkt sitt tré. Þegar gjöfunum var svo útdeilt og þær lagðar undir ti’én, og kertaljósin á trjánum voru kveikt, gekk hver og einn af heim- ilisfólkinu fram í þeirri röð, sem virðingarstaða þeirra í húsinu á- kvað og tók tré sitt og gjafir...“ Árið 1785 voru jólatré til sölu á jólamarkaðinum í Strassbourg. Árið 1807 var hægt að fá þau keypt í Dresden skreytt með „næfurgulli, marglitum pappír og forgyltum ávöxtum“. í Danmörku. Til er saga um jólatré, sem Wil- helmina Holstein greifafrú, lét kveikja á árið 1810, til þess að gleðja veikt barn á Suður-Jót- landi. En Danir hafa ekki tekið upp notkun jólatrés almennt svo snemma, því að árið 1827 vakti það mikla eftirtekt í Kaupmanna- höfn að kveikt var á jólatré i húsi þar í borg. Um það er þessi saga: Nokkrum dögum fyrir jól veitti fólk því eftirtekt, að stórt greni- tré var borið heim til Lehmanns prófessors í húsið nr. 221 við Ny Kongsensgade. Þetta eitt var nóg undrunarefni manna. En á að- fangadagskvöld tók þó út yfir allt. Inn um gluggatjöldin virtist fólki að kviknað væri í trénu! Hvað var um'að vera? Tréð ljóm- aði allt og geislaði. Var prófessor- inn og fólk hans orðið vitlaust, ætlaði það ef til vill að kveikja í húsinu? Þetta var dæmalaust. Einhver af hinum undrandi veg- farendum náði í stiga til að sjá, hvað væri á seyði. Þegar hann hafði séð inn um gluggann gat hann naumast komið upp orði af undrun. Þessu hafði hann sízt átt von á. Gi'enitréð var þar — það var skreytt með glysi og logandi kert- um — og heimamenn gengu syngjandi umhverfis það! Allar líkur benda til þess að í Danmöi-ku hafi jólatréð verið sjaldgæft fram að miðri síðustu öld, enda var þá erfitt að afla greniti-jáa þar í landi. Hingað til lands kemur það seinna, en það er önnur saga, senx hér verður ekki sögð að sinni. ENDIR 4 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.