Heimilisritið - 01.12.1945, Side 17

Heimilisritið - 01.12.1945, Side 17
að líta á skurðarborðið. „Hvernig í fjandanum fórstu að því að telja mig á að ... “ „O, vertu ekki svona kerlingar- Iegur“, sagði hinn hrottalega. „Það er búið sem búið er, og mér finnst tími til kominn að þú áttir þig á því, að á sviði vísinda og kaldra staðreynda eiga væluskapur og grillusýki ekki heima“. „Vísinda!" hrópaði Morley. „Kallarðu þetta vísindi? Hvernig leyfirðu þér að fara með svona fleipur! Það sem við höfum gert er svo óguðlegt og fúlmannlegt, að enginn nema sá illi sjálfur get- ur verið með í verkum. Við skul- um eyðileggja þennan óskapnað áður en það er um seinan“. „Ertu orðinn vitlaus! Vertu ró- legur“, sagði hinn. „Ef þessi ópera- sjón okkar tekst verðum við heimsfrægir. Nöfn okkar verða ó- dauðleg. Skiptir það þig engu máli?“ „Nei“, hvíslaði Morley. „Nei, það yrði of dýru verði keypt. Við höfum engan rétt til að vinna svona djöfullegt verk“. Rödd hans hækkaði og varð að mjóróma öskri. „Heyrirðu það, Stilman, við höfum engan rétt til þess!“ „Þú hagar'þér eins og móður- sjúk skólastelpa“, sagði Stilman kuldalega. „Eigum við nú ekki að horfast í augu við staðreyndimar kalt og rólega? Einhver mannræf- ill reynir að drýgja sjálfsmorð með því að kasta sér á járnbraut- arteinana, rétt áður en járnbraut- arlestin kemur þjótandi. Lítilli stundu síðar er hann fluttur á sjúkrahús og deyr þar. Það var ósköp eðlilegt, því að hann var allur sundurkraminn. Heili hans var það eina, sem óskaddað var af líkamanum, og hann var hægt að nota, ef hann var tekinn strax og fluttur í aðra lifandi veru. Hér var tækifæri, sem ekki er á hverju strái, tækifæri, sem ég hef beðið eftir alla ævi, að flytja manns- héila yfir í annan líkartia, heila, sem enn er lifandi! Það varð að gerast tafarlaust, svo að ég átti ekki annars úrkostar en að gera það sem ég gerði. Auðvitað hefði ég helzt kosið að flytja heilann yf- ir í annan mannslíkama, en tæki- færið kom svo óvænt, að ég gat ekki annað, en ... “ * „Hann hreyfist", æpti Morley. „Hann er að vakna til lífs aftur!“ Taylor fannst höfuð sitt vera eins og logandi glóðarköggull. Honum fannst það vera að klofna og kvalirnar voru honum næstum óbærilegar. Það var líkast því sem þúsund rauðglóandi hnífum væri stungið í gegnum höfuðkúpuna. Hann fylltist skelfingu — óttað- ist að þá og þegar yrði öllu lokið. Svo ægilegan höfuðverk hafði hann aldrei fengið fyrr, engar kvalir aðrar gátu komizt í hálf- Í5 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.