Heimilisritið - 01.12.1945, Page 22

Heimilisritið - 01.12.1945, Page 22
arborð, marga stóla og geysistór- ar bókahillur. Það birti svo skyndilega, að hann sveið í augun.- Andlit Stil- mans kom í ljós, einkennilega rautt. „Drekka'1. muldraði Taylor. „í ' guðs nafni, gefðu mér að drekka!“ „Sjálfsagt“, drafaði Stilman. „Hvað langar þig í? Whisky og sódavatn?“ Það var vínlykt út úr honum er hann beygði sig yfir Taylor. „Vatn“, hvíslaði Taylor og horfði á hann hatursfullum aug- um. „Ég get ekki látið þig skála við mig í vatni“, tautaði Stilman og skálmaði að vínskápnum. „Við verðum að gera okkur dagamun“, bætti hann við hlæjandi. „Maður gerir ekki svo oft kraftaverk! Mér er sem ég sjái andlitin á þeim á morgun, þegar ég færi þeim sönn- irr á því sem ég hef haldið fram. Það mun valda gerbyltingu í skurðlækningum! Skilurðu ekki hvað það þýðir?“ hrópaði hann frá vínskápnum. „Ef ég get flutt heila, þá get ég flutt lungu og önnur líffæri. Bráðum færðu fé- laga. Nóg er af hundunum og svo er bílunum fyrir að þakka að ó- endanlegur straumur af skemmd- um og eyðilögðum mannslíköm- um berst til okkar daglega. Þegar ég er búinn að fá næga reynslu í því, hvernig mannleg líffæri reyn- ast í hundum, þá get ég snúið við tilraununum og látið líffæri hunda í menn. Heldurðu að það verði ekki skemmtilegt?“ sagði hann og bar fullt glas af Whisky og sóda- vatni upp að vitum Taylors. „Vatn“, hvíslaði Taylor og sneri sér undan. „Gott og vel“, muldraði Stil- man; „ef þú vilt það endilega“. Hann kom aftur með skál af vatni. Taylor uppgötvaði með andstyggð að hann lapti það. Og honum datt allt í einu í hug hvern- ig hann myndi éta! Guð minn, bað hann, láttu mig ekki þurfa þess. Því að ég verð brjálaður, ef ég þarf að haga mér að öllu leyti eins og skítugur hundur. Að verða að þjóna náttúru hunda, — nei, það er of hræðilegt! Hann varð einhvernveginn að komast burtu frá þessum brjálaða Stilman. Því fyrr sem hann gat losað heiminn við þá ófreskju, sem hann var orðinn, því betra fyrir alla parta. En fyrst ætlaði hann að launa Stilman fyrir þennan djöfullega hrekk. Hann varð að hindra það, að maðurinn gæti breytt fleiri mannverum í ófreskj- ur. En hveniig mátti það verða? Þessi hugsun þjáði hann. Hann gat ekki lengur valdið vopni. Tennur hafði hann, tennur, sem gátu bitið og rifið, en Stilman myndi auðveldlega geta varið sig. 20 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.