Heimilisritið - 01.12.1945, Page 24
Kærleikur
Hvað gefur oss beztu brosin og tórin
og blómin fegurst í hjartans reit?
Hvað skín á bak við skuggana og tórin
á skilnaðarstund? Það er elskan heit
Þú lifandi máttur frá Ijóssins eldi,
þú ljósið, sem breytir nótt í dag.
Þú ert lífsins ómljóð írá árdegi að kveldi,
þess útfararsöngur og vöggulag.
Strengurinn Ijúfi með heilögum hljómi,
hlusta ég vil á þinn söng.
Ef þú ert hjá mér í þögn og ómi
þá verða kvöldin ei löng.
Alltaf er bjart þar sem ljósin loga,
ljómi þau stillt og rótt.
Við stjömumar þínar í bláum boga
björt er hver skammdegisnótt.
Hví skyldi ég hafna þeim helga ljóma,
sem herra lífsins mér gaf?
Hví skyldi éq hirða um heimsins dóma
og hika að fylgja þeim geislastaf,
er sál minni lyftir til ljóssins bjarta
í lifandi trú upp að Drottins stól?
Ég á ekki sjálf mitt eigið hjarta,
þvi ástin er vald þess og sól.
H....
22
HEIMILISRITIÐ