Heimilisritið - 01.12.1945, Page 30

Heimilisritið - 01.12.1945, Page 30
svona hryggilega í hundana með efnilega, unga efnafræðingnum, sem hafði komið nýútskrifaður til borgarinnar og fengið stöðu hjá stórri rannsóknarstofu. Hjónaband og allt of örar barn- eignir, auk hinnar sorglegu, al- þekktu sögu um að metta marga munna af litlum efnum, allt þetta hafði fljótlega, eftir að annað barnið kom í heiminn, tekið að rista sínar óafmáanlegu rúnir á svip þessara hjóna og ævikjör. Þau voru ekki nema rúmlega þiútug og samt orðin roskin. Það olli því, að Cynthia gætti hálfu betur frelsis síns og sjálfstæðis en ella. Cynthia hafði ágætt kaup sem einkaritari hjá sjálfum forstjóra þess fyrirtækis, er Newton Marker vann hjá. Hún gat því leyft sér að hafa bezta herbergið í íbúð gömlu skólasystur sinnar á leigu og búa það með húsgögnum eftir sínum smekk. Kaup hennar var ekki nema einum þriðja minna en kaup það er Marker fékk sem deildarstjóri í rannsóknarstofnun- inni. ÖÐRU HVERJU lét Newton Marker í Ijós gremju sína, þegar kaup þeirra barst á góma. En Cynt'hia var á verði og gætti þess að láta ekki á sig ganga. Newton var auðvitað gáfnaljós, það vissi Cynthia, en framkoma hans og yfirbragð vantaði allan glæsibrag, hann hafði sífellt pípu- slytti hangandi niður frá vörun- um, og með fjarhyglislegum svip hélt hann í hæfilegri fjarlægð hinum veraldlega heimi, sem plág- aði hann í líki útslitinnar konu og hóp svangra barna. Hvernig átti svo slíkur maður að geta sýnt yfirboðurum sínum, hvað raun- verulega bjó í honum? Hinsvegar áleit Cynthia sig vera — og ekki að ástæðulausu — óvenju duglegan einkaritara. Sömu skoðun hafði einnig hús- bóndi hennar, John Mason for- stjóri. Á tiltölulega stuttum tíma — fjórum árum — hafði hún feng- io drjúga kauphækkun fjórum sinnum. Cythia þreyttist aldrei á því með sjálfri sér, að hneykslast á heimsku vinkonu sinnar. Adele, sem var að minnsta kosti helm- ingi betur gefin en hún, og var nú aðeins þrjátíu og eins árs, en orðin aðeins ræfilslegur búshlutur! Var orðin kona, sem hafði sleppt allri von, gift manni, er að vísu þótti vænt um hana, en á þann sjálfsagða hátt, sem gerir lífið svo óendanlega leiðinlegt! Á hinn bóginn varð Cynthia þó að vera án eigin heimilis og barna, en hún játaði með sjálfri sér, að hún saknaði þess ekki. Hún gat þeim mun betur klætt sig og eytt meiri tíma í að snyrta sig og fegra, 28 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.