Heimilisritið - 01.12.1945, Page 31

Heimilisritið - 01.12.1945, Page 31
hún gat lesið bækur og auðgað andann, fullnægt þörfum sínum til lífsins gæða — í stuttu máli sagt fannst henni líf stúlku, sem hafði gott kaup og þurfti aðeins fyrir sjálfri sér að sjá, vera miklu á- kjósanlegra en líf giftu konunnar. Þetta átti þó ekki sízt við í sam- anburði við líf Adele. Eiginleikar þeir, sem höfðu gert Cynthia svo mikils virði fyrir fyr- irtækið og forstjóra þess, urðu ekki síður verðmætir, þegar hörmung- arnar dunu yfir Markerfjölskyld- una. Dag nokkurn, þegar Adele var að hreinsa lítinn drengjafrakka með eldfimu efni, sá hún allt í einu næstyngstu dóttur sína með logandi eldsþýtu í hendinni — og á næsta andartaki urðu bæði móð- ir og barn að einu hryllilegu eld- hafi. Nokkrum dögum síðar var hald- in húskveðja yfir mæðgunum í hinni fátæklegu dagstofu fjölskyld- unnar. Þetta var átakanlegt áfall fyrir Marker, og það var einungis ó- eigingjarnari og alúðarfullri hjálp- fýsi Cynthiu að þakka, að ekki hlauzt hreint volæði af. í næstum heilt ár eftir slysið bjó Cynthia í íbúðinni og tókst að aðstoða Marker með útsjónarsemi sinni og mikilli fórnfýsi við að koma í veg fyrir að hann þyrfti að skilja börnin við sig. Og loks heppnaðist henni að útvega dug- lega, roskna konu til að sjá um heimilið. Það var líka Cynthiu að þakka, að forstjóri lyfjaframleiðslufyrh•- tækisins, sem átti rannsóknar- stofnun þá, er Marker vann hjá, fékk að lokum augun opin fyrir hinum óvenjulega dugnaði og samvizkusemi Markers. Og í kjöl- far þess fylgdi kauphækkun. Og þá var mikið unnið. Er næstum hafði liðið ár frá dauða Adele fór Cynthia — án samvizku- bits — að leggja áætlanir, sem í mörg ár höfðu verið að veltast fyrir henni. Hún hafði einnig fengið kaup- hækkun. Þar með gat hún fengið draum sinn rættan, um að taka á leigu litla íbúð í einu af hinum nýju hverfum borgarinnar, og koma sér þar upp heimili, eins og hún helzt vildi hafa það, að svo miklu leyti, sem tekjur hennar leyfðu. Borgarhverfið var í hinum enda borgarinnar, og einmitt þess vegna tók hún endanlega ákvörðun. Börnin voru að stálpast, þau voru broslega hænd að henni, og nú var einmitt rétti tíminn fyrir hana, til að brjóta í blað og losa sig við þann tilfinningavef, er batt hana við uppvaxandi barnahóp, sem hún átti ekki. Krakkarnir gætu komið í heim- sókn til hennar nokkrum sinnum HEIMILISRITIÐ 29

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.