Heimilisritið - 01.12.1945, Síða 32

Heimilisritið - 01.12.1945, Síða 32
á mánuði, en sem betur fór var nýja ráðskonan hjá Markers sú manneskja, að hún vissi, hver skylda hvíldi á henni, og Cynthiu var óhætt að fela henni uppeldi og umsjá barnanna án þess að hafa nokkrar áhyggjur út af því. Þetta var allt gott og blessað — en Cynthia hafði ekki tekið allt með í reikninginn. ÞAÐ VAR hafður sérstakur hátíðamatur á borðum, samkvæmt fyrirmælum Markers, kvöldið áð- ur en Cynthia ætlaði að flytja í nýju íbúðina. Markers stóð upp, þegar þau voru að ljúka við eftir- matinn, leit sínum bláu, dreym- andi augum frá einu barnsandlit- inu til annars og einblíndi að síð- ustu á það elzta, þegar hann tók til máls. „Myron mín. Mér finnst það skylda mín gagnvart þér, og eins litlu systkinum þínum, að láta ykkur vita, að ég get ekki látið Cynthiu fara í burtu frá ykkur, án þess að gera það sem ég get, til að koma í veg fyrir það ykkar vegna. Það er skylda mín gagnvart ykkur, börnin mín, að gera mitt ýtrasta til að láta hana ekki sleppa frá ykkur — og, okkar á milli sagt, frá mér — þessa indælustu konu, sem til er í þessum heimi. Myron mín, og þið hin, litlu börnin mín, Það er Cynthiu að þakka og því aukna þreki, sem ég hef fengið, með hærri launum og hærri metorðum í rannsóknar- stofnuninni, að ég voga mér að leggja út á nýjar leiðir, sem ég er viss um að verða til gæfu og gleði fyrir okkur öll. Ég vona að Cynthia verði kon- an min og móðir ykkar og njóti með okkur ókominna hamingju- daga, sem bíða okkar. Hvernig lízt ykkur á það?“ Þótt undarlegt megi virðast, þá sá Cynthia — sjálfstæða rök- hyggjukonan — aldrei eftir einu óskynsamlegu ákvörðuninni, sem hún tók um ævina — að giftast Markers. ENDIR 4 SKRÍTLUR AÐEINS UM TVENNT AÐ RÆÐA Gamla konan spyr litla bamið: „Ertu drengur eða telpa?“ Barnið svaraði: „Heyrðu góða, hvað í fjandanum ætti ég annað að vera?“ ENGIN BÚVÍSINDI Bóndi nokkur ól hænsnin sín á sagi og þau verptu tréeggjum. KEM ÉG AFTUR Skoti nokkur kom inn til lœknis og sá skilti á veggnum er á stóS: „Fyrsta viðtal 10 krónur — annað viðtal 5 krón- ur". Þegar Skotinn gekk inn til lœknis- ins sagði hann: „Jæja læknir góður, kem ég aftur". 30 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.