Heimilisritið - 01.12.1945, Page 36

Heimilisritið - 01.12.1945, Page 36
1 BERLÍNARDAGBÓK IjS^Wg^BLAÐAMANNSl -^-------------------. Eftir WILLIAM L. SHIRER París undir Maubeuge, 16. júní 1940. Fór á fætur klukkan þrjú og af stað klukkan fjögur frá litla gistihúsinu nálægt Aachen. í Ruhr sáust lítil merki um næturárásir Breta. Komum til Aachen klukkan ellefu f. h. Þaðan ókum við í gegnum Lim- burg til Liége og Namur. Undr- aðist, hve litlar skemmdir sá- ust á þessari leið. Það er gjör- ólíkt því, sem ber fyrir augu á veginum frá Aachen til Brúss- el, þar eru flestar borgir í rúst- um. Við ókum allan síðari hluta dagsins upp eftir Meusedaln- um. Þar sáust undarlega lítil vegsummerki eftir bardaga. Borðuðum í Charleroi. Fólkið þar beiskt og þungt á svip. Ekk- ert brauð að fá í borginni og aðeins vatn til drykkjar. En við fengum dálitið af kjöti og salati í knæpu einni. Máubeuge hefur verið hræði- oki Þjóðverja lega leikin. Meginhluti borgar- innar er ekki annað en grjót- hrúgur, undnar girðingar og öskuhaugar. Einn þýzku for- ingjanna sagði okkur, hvað hér hafði gerzt. Þýzk skriðdreka- sveit reyndi að brjótazt í gegn- um borgina. Fimm eða sex fremstu skriðdrekarnir voru molaðir með frönskum skrið- drekabyssum, sem faldar voru í húsunum. Þá voru steypiflug- vélar sendar á vettvang. Þær réðust á borgina og unnu verk sitt með ægilegum árangri eins og vant er. Stærsta loftvama- byrgi borgarinnar var undir kirkjunni, segir foringinn. Ein af sprengjunum hæfði það með þeim árangri, að fimm hundruð óbreyttra borgara liggja þar grafnir undir rústunum. Og svo vendilega og loftþétt eru þeir grafnir þar, að ekki fannst hinn m.innsti rotnunarþefur þó 34 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.