Heimilisritið - 01.12.1945, Page 39

Heimilisritið - 01.12.1945, Page 39
öllum gluggum. Tómleikinn læstist um mig. Við komum frá Le Bourget og ókum eftir rue Lafayette. Ég minntist með söknuði næturinnar, þegar ég hljóp alla þessa leið utan af flugvellinum, til þess að skrifa fréttina um komu Lindbergs. Þýzkir hervagnar ösluðu hratt um götuna. Enginn maður sást á gangstéttunum. Á öllum úti- veitingastöðum við götuna, sem ég var gamalkunnur, voru borð- in tekin inn og hlerar settir fyr- ir gluggana. Allir höfðu flúið, veitingamenn og viðskiptavin- ir. Bílarnir okkar skröltu niður rue Lafayette, og gauluðu á hverjum gatnamótum, þangað til ég bað bílstjórann okkar að hætta því. Þama á hominu stóð hús Petit Joumal. Þar vann ég fyr- ir Tribune, þegar ég kom fyrst til Parísar 1925. Beint á móti því var Trois Portes kaffihúsið. En hvað ég slæptist þar margar glaðar stundir, þegar París var í augum mínum dýrðleg borg og fögur og ég átti þar heima. Við snerum til vinstri niður rue Pelletir til Grand Boule- vard. Ég tók eftir því, að Petit Riche var lokað. Gatan var auð af fólki, en nokkrir þýzkir her- menn gláptu inn um gluggana á þeim fáu búðum, sem ekki höfðu slegið hlerum fyrir þá. Nú komum við á Óperutorg- ið. í fyrsta skipti á ævi minni sá ég þar enga þvögu af um- ferð, né heyrði franska lög- regluþjóna æpa í ráðleysi á bíla, sem stóðu skorðaðir í þvögunni. Háir hlaðar af sand- pokum huldu framhlið Óperu- hallarinnar. Café de la Paix virtist nýlega hafa opnað aftur. Einn þjónn var að tína út borð og stóla. Þýzkir hermenn stóðu á stéttinni og gripu við þessu. Síðan snemm við til Madeleine kirkjunnar. Framhlið hennar var líka hulin sandpokum. Það- an þutum við 'niður me Royale. Ég sá, að lokað var hjá Laure og Weber. Nú blasa við augum kunnar slóðir. Concorde torgið, Seine og þinghöllin, þar sem blaktir risavaxinn hakakrossfáni og í fjarska blasir hin fagra Inval- idakirkja. Við ökum fram hjá Flotamálaráðuneytinu, þar sem stór þýzkur skriðdreki bíður á verði, og inn á Concordtorgið. Þar nemum við staðar fyrir ut- an Hótel Crillon, þar sem nú eru herráðsstöðvar Þjóðverja. Foringi okkar fór inn, til þess að spyrjast fyrir um verastað handa okkur. Við fengum herbergi í Scribe, þar sem ég hafði oft dvalið á dögum siðmenningarinnar. Ég varð bæði hissa og glaður, þeg- HEIMILISRITIÐ 37

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.