Heimilisritið - 01.12.1945, Page 52
herra minn, hvaða fréttir þér haf-
ið að færa aðrar?“
DICK sagði sögu sína í þremur
setningum. Fell fór út fyrir og
ræddi í lágum hljóðum við ein-
hverja tvo menn á skuggalegri
götunni. Annar þessara manna
gekk bak við húsið en hinn stóð
þar sem hann var. Svo kom Fell
aftur. ,
„Heyrið þér mig, Fell“, sagði
Dick hneykslaður. „Er ekki mein-
ingin að rannsaka húsið?“
„Ekki í bili“, svaraði Fell. „Með
ykkar leyfi, vildi ég heldur mega
tylla mér og rabba svolítið fyrst“.
„En í guðs bænum. Má ég ekki
fylgja Lesley héðan á meðan —“
„Ég get fullvissað yður um, að
það væri betra, ef Lesley yrði
kyrr hérna“.
Þau gengu öll inn í borðstofuna.
Fell kvartaði í hálfum hljóðum
yfir hita í stofunni, leyfði sér að
draga hin þykku gluggatjöld til
hliðar og opna gluggana. Svo sett-
ist hann í djúpan hægindastól, ná-
lægt öðrum glugganum.
„Jæja, Dick Markham“, sagði
hann. „Mér skilst af sögu yðar, að
þér hafið gert yður grein fyrir því,
sem gerðist í póststofunni".
„Ég er grautarhaus“, sagði Dick
gremjulega, „að ég skyldi ekki
hafa séð það fyrir. Auðvitað er
það afleiðing morðsins á Sam
Villa“.
„Hvað segirðu?" hrópaði Lesley.
„Já, ef morðinginn hafði hug á
að gefa lögreglunni bendingu, svo
að grunurinn félli á annan, þá var
öruggara að skrifa. Það er ekki
hægt að fá frímerki nema á póst-
stofunni, eins og við vitum“.
„Bíðum nú við“, kallaði Lesley
upp. „Ég hugsa, að ég fari að
skilja. ... “
^Já, morðinginn hefur skrifað“,
hélt Dick áfram. „Hér er blað-
slitur, sem sannar það. Það er
skrifað á ritvélina rnína, og hann
hefur farið með það í pósthúsið.
En einhverra hluta vegna hefur
morðinginn grunað gildru og
reynt að ná bréfinu aftur út úr
pósthúsinu. En Laura var köld
og ákveðin, eins og venjulega.
Hana hefur rennt grun í, hvernig
í öllu lá, og ekki legið á skoðun
sinni. Og morðinginn hefur ekki
kært sig um að hún segði fleirum
slíka hluti, hann hefur. ... “
Dick hreyfði höndina eins og
hann væri að hleypa af skamm-
byssu.
Aftur var dyrabjöllunni hringt
óþolinmóðlega. Lesley flýtti sér til
dyra.
„Fáum þetta klárt“, sagði Dick.
„Morðingi De Villa. ... “
„Morðinginn drap hann á prúss-
neskri eitursýru“, sagði Fell og
reyndi að vera þolinmóður í rödd-
inni. „Svo hefur hann hringt til
yðar og loks skotið á De Villa,
þá liðið lík“.
50
HEIMILISRITIÐ