Heimilisritið - 01.12.1945, Side 53
„En herbergið var harðlæst að
innanverðu“, sagði Dick.
„Já'*, svaraði Fell.
Hadley fulltrúi frá rannsóknar-
lögreglunni kom nú inn í borðstof-
una.
„Fell“, sagði hann hvatskeyts-
lega. ,.Ég hef verið að búast við
yður þangað, sem kvenmaðurinn
var myrtur. Ég kom hingað til
þess að vita, hvern fjárann þér er-
uð að gera Og ég hef ekki verið
þar til einskis“. Hadley var mikið
niðri fyrir. „Ég fann út, hver ... “
„Ekki enn. Ekkert liggur á“,
sagði Fell ákveðinn og stóð á fæt-
ur. Svo sneri hann sér að Dick og
sagði:
„Þegar ég kom inn, var fremur
heitt hér. En satt að segja var það
ekki aðalorsökin til þess, að ég dró
tjöldin frá gluggunum. Gjörið svo
vel að athuga gluggana".
Fell lá hátt rómur, en nú talaði
hann eins og hann væri að hrópa
til einhvers. Hann hélt nokkurra
mínútna fyrirlestur um opna
glugga, lokaða glugga, glugga-
króka, gluggagler og gluggapósta.
Eitthvað virtist liggja á bak orða
hans, sem Dick gat með engu móti
skilið.
Allt í einu tók’ Dick eftir því,
að Lesley var ekki í stofunni.
Fell var hættur að tala. Svo
heyrðist hátt skothljóð, sem rauf
þögn kvöldsins eins og allt húsið
léki á reiðiskjálfi. Hvellurinn kom
frá svefnherbergi Lesleys, beint
uppi yfir borðstofunni.
Hadley starði á Fell. „Þetta
er þér að kenna! Sjálfsmorð?"
„Ég geri ráð fyrir því. Það var
ekki um annað að ræða, skilurðu".
„Víst!“ æpti Dick Markham.
„Víst!"
Hann hljóp upp, eins og í leiðslu.
Hadley fylgdi honum eftir. Þeir
sáu Miller lögregluþjón, þegar
þeir komu upp stigann. Miller var
opinmynntur af geðshræringu og
stóð fyrir framan svefnherbergis-
dyr Lesleys.
„Dyrnar eru aflæstar, herrar
mínir".
„Sprengið þér þær þá upp!“
Miller sparkaði í hurðina undir
húninn með geysistórum og vold-
ugum skósólum sínum. Dick tók
ekki eftir því. Fell skokkaði upp
tröppurnar; og á undan honum
hljóp Lesley Grant léttilega.
„Dick!“ hrópaði hún. „Af hverju
horfirðu svona á mig?“
í sama vetfangi tókst Miller að
brjóta upp hurðina. — Hjá rúm-
inu lá andvana maður með
skammbyssu við hlið sér. Dick
heyrði rödd Fells í eyra sér:
„Þetta er eina manneskjan, sem
hefði getað framið bæði morðin
— Hugh Middlesworth læknir“.
ÞETTA gerðist ellefta júní. Það
var um kvöldið, þann þrettánda
sama mánaðar, að þau Fell, Had-
HEIMILISRITIÐ
51