Heimilisritið - 01.12.1945, Page 54

Heimilisritið - 01.12.1945, Page 54
ley, Lesley og Dick fóru saman út fyrir þorpið í lögreglubíl og stað- næmdust við húsið þar sem de Villa hafði verið myrtur. Þau gengu inn í dagstofuna. Fell hallaði sér þar aftur á bak upp í sófa, en Hadley settist við skrifborðið með vasabók fyrir framan sig og sjálfblekung milli fingranna. Fell tók til máls: „Við verðum fyrst að gera okkur það ljóst, að frá upphafi var ekki minnsta á- stæða til að gruna Lesley um græsku. Ætlunin var nú samt sú, hjá morðingjanum. Hann ætlaðist til þess, að við álitum morðið á De Villa vera framið af eiphverj- um, sem tryði því að De Villa væri Sir Harvey Gilman, og mað- urinn hefur jafnframt sjálfur trú- að því, að Lesley Grant væri eit- urbyrlari. Þess vegna — skiljið þið það — var sú manneskja, sem sízt var hægt að gruna um morðið, einmitt sú, er strax frá upphafi vantreysti „Sir Harvey" og sem satt að segja olli því að ég sann- færðist um að hinn. myrti var ekki Sir Harvey. í þessu liggur einmitt lykillinn að lausn málsins“. Það lifði illa í vindli Fells, svo að hann kveikti á eldspýtu og lífg- aði glóðina. „Verið þið svo væn að veita því athygli", sagði hann, „að upphaf- lega ráðningin, sem við heyrðum, var sú, að Lesley hefði verið gerð 52 að sektarlambi einhvers, sem kom- izt hafði í klærnar á De Villa eða Sir Harvey eins og hann kallaði sig og — takið eftir — sú skýring kom einmitt frá Middlesworth lækni. 1 fyrstu virtist þetta vera eina skynsamlega ráðningin. En þó yar eitt atriði sem olli mér heila- brotum. „Jæja, Dick Markham. Þér ger- ið yður það sennilega Ijóst, að ræða hins svokallara Sir Harveys var samin handa yður og til þess ætlast, að þér tryðuð henni. Hún var búin til og flutt manni, sem myndi taka hana ákaflega hátíð- lega. Jæja. En hér vill svo til að svikarinn segir þessa lygaþvælu sína í áheyrn héraðslæknisins, sem ekkert varðar málið, eða ætti að láta sig það miklu skipta og gæti farið á bak við hann“. Fell reykti hinn rólegasti. „Ég er að eðlisfari dálítið tor- trygginn", hélt hann áfram, „og ykkur að segja datt mér í hug, hvort ekki væri hugsanlegt að Middlesworth vissi meira en hann léti í veðri vaka. Hvort hann gæti ekki hafa verið vitorðsmaður í glæpnum". „VitorðsmaðurP" hrópaði Les- ley. Fell gaf henni bendingu um að vera róleg. „Þá gat ég auðvitað ekki vitað, hvernig um hnútana var búið. NIÐURLAG í NÆSTA HEFTI. HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.