Heimilisritið - 01.12.1945, Side 56
aði myndinni :,Meet me In St.
Louis“, og í henni Judy lék aðal-
hlutverkið. Sú mynd fær alveg ó-
venju góða dóma. Þau umgeng-
ust mikið hvort annað á meðan
verið var að taka myndina.
Kunningsskapur þeirra vakti enga
athygli, engar stórar fyrirsagnir í
blöðum. Þau borðuðu á litlum og
rólegum veitingahúsum og töluðu
mikið saman. Smátt og smátt
breyttist vinátta þeirra í ást, eins
og svo oft vill verða, og svo kom
hjónabandið.
Þau giftu sig 13. júní síðastlið-
inn, á heimili móður Judy, í Los
Angeles. Bezta vinkona hennar,
Betty Asher, var svaramaður
hennar. Betty var miklu taugaó-
styrkari en Judy. „Stattu kyrr, þú
hrukkar kjólinn þinn“, tautaði
hún í sífellu. „Hvar eru blómin?
Ilvar er presturinn? Hvar er brúð-
guminn?“ Blómin komu á tilsett-
um tíma, bleik í stíl við gráa kjól-
inn. Ira Gershwin var svaramað-
ur brúðgumans og leysti það starf
með prýði.
Gerswin reyndi að stríða Min-
elli dálítið. „Þetta getur varla
verið verra en slæmt kvef, að öðru
leyti en því, að það stendur yfir
í nokkra áratugi“. sagði hann. En
honum tókst ekki að stríða Vin,
af þeirri einföldu ástæðu að hann
heyrði ekki til hans. Það eina, sem
hann sá og heyrði var Judy.
Þau fóru í brúðkaupsferð til
New York og þaðan til Kanada.
New York var stórkostleg. Skýja-
kljúfarnir, sem gnæfðu við him-
ininn, og bekkir í görðunum,
sem voru mátulegir fyrir tvo að
sitja á. En tíminn er fljótur að
líða, og þegar þú, lesandi góður,
lest þessar línur, þá er Judy kom-
in aftur til Hollywood, og farin
að leika i nýrri kvikmynd, kvik-
myndinni „Harvey-systurnar“.
UNDIRBÚNINGUR
EN EKKI FRAMKVÆMD
í jámbrautarklefa, þar sem reyk-
ingar eru bannaðar, situr maður
og treður í pipuna sína og býr sig
yfirleitt undir að fá sér góðan reyk.
Samferðamaður hans vekur athygli
hans á því, að bannað sé að reykja
í klefanum. Hinn svarar: *
„Ég er aðeins að búa mig undir að
reykja".
Nokkru síðar tekur samferðamað-
urinn upp stóran matarböggul og
mjólkurflösku.
„Ef þér ætlið á salemi maður
minn“, segir sá með reykjarpípuna,
„þá verðið þér að fara út úr klef-
anum“.
„Nú, en ég þarf þangað alls ekki“
svarar hinn.
Pipumaðurinn segir þá ósköp sak-
leysislega:
„Nú, afsakið — mér sýndist þér
nefnilega vera að búa yður undir
það“.
54
HEIMILISRITIÐ