Heimilisritið - 01.12.1945, Síða 59
Joctn Fontaine
segir kost og löst á sér
Svarar ýmsum nærgöngulum spurning-
um, sem Helen Hover leggur fyrir hana
SP.: Hefurðu ánægju af því að
vera fræg?
SV.: Já, vissulega. Mér þykir
gaman að geta hitt hvaða fólk,
sem er, gott að geta fengið beztu
borðin í veitingahúsum, og einnig
að geta fengið leikhúsmiða, jafn-
vel þó að allir miðar séu uppseldir
mörgum vikum áður.
SP.: Hvað þykir þér hlægilegast
af því sem þú hefur séð á prenti?
SV.: Það sem einn blaðamaður
fullyrti, að ég hefði klófest tvo af
kærustum Oliviu de Havilland
systur minnar. í fyrsta lagi gæti
ég það ekki, þó ég fegin vildi, og
þar að auki hef ég enga löngun
til þess.
SP.: Hver var það, sem þú
varst fyrst ástfangin af?
SV.: Það var enskur drengur,
sem var í sama skóla og ég í Aust-
urlöndum. Ég var þá 15 ára og
hann var 16. Ég man eftir að
hann var frammynntur, en dans-
aði mjög vel. Ég man líka eftir
því, að mamma hans lánaði mér
alltaf skinnkápuna sína, þegar
sonur hennar bauð mér út.
SP.: Ef þú gætir, hvernig mynd-
ir þú breyta útliti þínu?
^ SV. Ég myndi ekki hafa svona
hvassa höku, ég myndi afmá
freknurnar, og ég myndi fá mér
rautt, liðað hár.
SP.: Kanntu nokkuð til hús-
verka?
SV.: Ég kann að matreiða og
sauma. Ég hef unun af að búa
til mat. Þegar ég er í New York,
fer ég oft á matreiðslunámskeið,
þar sem kennt er að búa til sjald-
gæfa rétti.
SP.: Hvaða maður finnst þér
myndarlegastur í Hollywood ?
SV.: Fyrrverandi eiginmaður
minn, Brian Aherne.
SP.: Langar þig til þess að gift-
ast aftur?
SV.: Já, svo sannarlega.
HEIMILISRITIÐ
57