Vísbending


Vísbending - 21.12.2009, Side 4

Vísbending - 21.12.2009, Side 4
Magnús Valur Pálsson. BENEDIKT JÓHANNESSON Upp komast svik Upp úr 1800 hafði Reykjavík breyst úr því aó vera nokkur hús í að vera þorp með kaupstaðarréttindi. Biskupinn var kominn til bæjarins og Lærði skólinn líka, þó að hann flytti reyndar úr höfúðstaðnum aftur fljótlega. Ekki munaði minnst um tukthúsið sem varð til þess að mestu misindismenn landsins komu í bæinn og settust margir þar að eftir að hafa aíþlánaó refsivist sína. Satt að segja var refsingin oft frjálsleg og fangamir tíðum notaðir til vinnu hjá embættismönnum. Haustið 1803 var um fátt annað talað í Reykjavík en átökin innan Breckmann fjölskyldunnar. Breckmann-málið var hvalreki á fjörur kjaffakerlinga og slúðurbera. Bæði Páll Breckmann og Grímur Olafsson, tengdasonur hans, voru kaupmenn. Allir eiga erindi í búðir og kaupmenn eru nánast eins og persónulegir vinir fjölda fólks. A þessum árum og reyndar miklu lengur nutu kaupmenn virðingar almennings. Það var ekki langt síðan einokunin leið undir lok og Islendingar gátu keypt boigarabréf og fengið leyfi til verslunarreksturs. Þaó var spennandi þegar í ljós kom að þetta fólk, sem flestir gerðu ráð fyrir að væri vel stætt og þar með hamingjusamt, átti í miklu flóknari vanda en sauðsvartur almúginn. Kœra lögö fram Árið 1803 var Ramus Frydensberg skipaður bæjarfógeti í Reykjavík með sérstökum úrskurði konungs og hann fékk með sér tvo danska lögregluþjóna. Fyrsta málið sem kom til úrskurðar hans virtist í fljótu bragði heimilisofbeldi af því tagi sem hann haf'ði oft séð í Danmörku. Þegar fógetinn las ákæmna frá Grími Olafssyni kjötkaupmanni gegn tengdaforeldrum sínum ákvað hann að spyijast fyrir um þetta fólk allt. Grímur kærði tengdamóður sína og mann hennar fyrir að hafa gengið í skrokk á Þómnni, eiginkonu sinni. Frydensberg reyndi að átta sig á þessu fólki. Grímur kjötkaupmaður var ungur maður með skrautlega fortíð. Hann var prestsonur 4 | VÍSBENDING

x

Vísbending

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.