Vísbending


Vísbending - 21.12.2009, Page 5

Vísbending - 21.12.2009, Page 5
Haustið 1803 var umfáttannað talað íReykjavtk en átökin innan Breckmannjjölskyldunnar. Breckmann-málið var hvalreki áfjörurkjaftakerlinga ogslúðurbera norðan úr landi og hafði gengið í Hólaskóla en virtist hafa litla hæfileika eða löngun til bóklesturs og flosnaði upp úr námi. Einn af skólabræðrum hans þar var Hallgrímur Þorsteinsson sem síðar varð faðir þjóðskáldsins Jónasar. En um þetta vissi enginn á þessum tíma því Jónas var ófæddur. Reyndar gengu sögur um að Grímur hefði verið heldur ódæll nemandi. Sagt var að bæði hetði hann reynt að kveikja í kirkjunni á Hólum og ætlað sér að vekja upp föður sinn ffá dauðum. Ekkert var þó víst í þessum efhum, en hitt var þó öruggt að pilturinn hafði stolið á bæ á Höfðaströnd. Fyrir þetta var honum vikið úr skólanum og hann dæmdur til vistar í betrunarhúsinu í Reykjavík. Þar var mönnum ekki í kot vísað, því að húsið var á þeim tíma hið glæsilegasta í Reykjavík og hýsti síðar bæði forseta Islands og forsætisráðherra og hinn síðamefhdi hefúr skrifstofur sínar þar enn. Grímur lofaði bót og betmn og eyddi flestum mánuðum sínum í fangavistinni í róðra fyrirOlaf Stephensen stiflamtniann, óbeintað vísu, en stiffamtmaður færði laun Gríms sér til tekna. Eílir nokkrar mánuði var liinunt iðrandi syndara leyfl að ganga í Reykjavíkurmenntaskóla, en ekki gekk það belur en á Hólum og Grímur hrökklaðist frá námi á öðm ári. Þá hafði upplokist fyrir honum dýrð púnsdrykkju og í skólanum kynntist hann ágætum drykkjufélögum. Ekki var honum þó alls vamað því að um aldamótin keypti hann sér leyfi til verslunar og setti á stofn kjötbúð þar sem nú er Hafharstræti. Grímur giffist Þórunni Vigfúsdóttur. Móðir hennar var nefnd Jarþrúður; að allra sögn liinn versti svarkur. Jarþrúður átti tvær dætur með jafhmörgum mönnum en var nú gifl þeim þriðja, Páli Bjömssyni Breckmann, sem var borgari og talinn efnaður rnaður í Reykjavík. Mikið jafhræði var með þeim hjónum og bæði ölkær mjög. Yfirheyrslur hefjast Frydensberg sýndist málið vera einfalt. Þórunn hafði verið skoðuð af fulltrúa fógetans og á henni fundust áverkar sem virtust vera eftir hnefahögg. Sjálf var hún rúmliggjandi í viku eftir árásina sem kærð haföi verið. Það sem gerði málið þó mun alvarlegra var að fyrir lá vottorð frá yfirsetukonu í bænunt, Ragnheiði Þorvaldsdóttur sem var heiðarleg kona, um að hún lielði komið á heimili þeirra Þórunnar og Gríms daginn eftir nefnda árás og hefði Þórunn þá verið búin að fæða fóstur, um tvo mánuði gengið og hefði það verið illa útlftandi. Við blasti að árás Páls á stjúpdóttur sína hefði valdið fósturlátinu. Fógetinn frétti frá fulltrúa sínum að Þórunn hefði sagt áður en þetta kom til „að slæmur væri karldjöfullinn, en verri væri helvítis móðirin." Yftrheyrslur hófust og fyrst kom Þórunn fyrir rétt og lýsti því hvemig þau hjón liefðu lúbarið hana að kvöldi 11. ágúst. Hefði móðir hennar byrjað að skanimast yfir því að enginn matur væri til og ekki viljað hlusta á skýringar. Eflir að hafa lumbrað á henni um hríð hefði Páll beðið konu sína að sækja hníf til þess að hann mætti skera hana. Ekki fannst hnífurinn né heldur sópur sem hann vildi hýða hana með. Sviptingunum hefði lokið með því að henni hefði verið fleygt á dyr. Að þessu vom tvö vitni, Oshildur vinnukona þeirra Gríms og Þrúður, sautján ára gömul systir Þórannar. Þrúður lá sjúk i rúmi meðan á öllu þessu slóð, en hún hafði orðið ekkja rúmlega tveimur mánuðum áður. Eflir að Þóranni hafði verið fleygt á dyr snera hjónin sér að yngri dótturinni og skipuðu Itenni út líka. Daginn eftir hafði Breckmann mætt í kjötbúðina og barið stjúpdóttur sína aftur svo að hún lá í gólfinu. Eftir þessa seinni barsmíð var það sem fóstrið lést. Eftir vitnisburð Þórannar var talað við Oshildi vinnukonu og bar hún allt á sömu lund og með svipuðu orðalagi. Hún lét þess getið að Jarþrúður hefði haft orð á því við Þrúði, yngri dóttur sína, „að andskotinn skyldi pína hana í tímanum og síðan í eilífðinni fýrir þá meðferð, sem hún hefði haft á sínum manni.“ Ekki var móðurþelinu íyrir að fara við veika dóttur sína. Ekki var talið hægt að yfirheyra Þrúði, ekkjuna ungu, því að hún var enn fársjúk. Þegar Páll Breckmann mætti til yfirheyrslu daginn eftir var hann svo drukkinn, að fúlltrúar yfirvaldsins vora hikandi við að spyija hann, en ákváðu samt að gera það, því að hann væri aldrei ófullur karlinn. Ekki neitaði hann því að hafa barið fósturdóttur sína, en dró þó úr lýsingum frá því sem áður hafði verið sagt frá. Eftir nokkra hríð var ákveðið að Ijúka yfirheyrslum yfir Páli síðar, þegar hann væri í standi til þess að svara. Kona hans bar á sömu lund. Bæði reyndu þau að réttlæta framferði sitt með atburðum sem áður hefðu gerst. Fógetinn leit á þá frasögn sem tómt fyllerísslúður og greinilega samantekin ráð. Þegar fógetinn fór yfir málið eftir að hafa heyrt vitnisburð nær allra sem um málið gátu vitað sýndist honum augljóst hvemig allt var í pottinn búið. Ungu hjónin, sem höfðu búið í húsi þeirra eldri meðan þau síðamefndu vora í Kaupmannahöfn í tæpt ár, höfðu gert sig of heimakomin og þegar þau gömlu snera tilbaka vildu þau fá fyrri húsylirráð. Öllum fjóram þótti sopinn góður og í fylleríi skarst svo í odda sem raun bar vitni. Undir venjulegunt kringumstæðum hefði ekki orðið mikið meira úr rnálinu, en fósturlát var alvarlegt mál. Það eina sem varð til þess að hann hikaði við að ganga strax frá opinberri kæra á hendur gömlu hjónunum var vitnisburður Magnúsar Jónssonar vinnumanns. Hann hafði sagt ýmislegt sem var á söntu lund og þau gömlu, en kannski höfðu þau búið til söguna og sagt honum. Vinnumaðurinn var að tala unt hluti sem hann hafði ekki sjálfúr séð. Nei, það var greinilegt hvemig var í pottinn búið. Best væri að ganga strax ffá kærunni. Samt ákvað Frydensberg að bíða með það þangað til Þráður, yngri dóttirin, gæti líka vitnað. Aumingja stúlkan var orðin ekkja svona komung og átti svo þessa líka þokkalegu foreldra. Það var ekki einleikið hve mikið er á suma lagt. Það fór svo að málið beið ffam í október. Umhugsun Ekki var deilt unt það að Breckntann hafði barið Þóranni stjúpdóttur sína. Yfirsetukona hafði séð fóstrið og vinnukona hafði staðfest hvemig allt bar að. Til að kóróna allt mætti hinn ákærði drakkinn í yfirheyrslu. Ekki vora hjónin sídrakknu hótinu betri við yngri dóttur sína sem hafði orðið ekkja aðeins J7 ára gömul. Fógetinn rifjaði upp frásögnina urn árásina. Tengdamóðirin hafði komið hálfdrakkin með öxi og hótað að brjóta upp dymar að herberginu þar sem dætur hennar vora inni. Þórann þorði ekki annað en opna. Þau hjónin hjálpuðust að við barsmíðamar, börðu Þórunni með hnúum og spörkuðu í hana. Það varð henni til lífs að hnífúr fannst ekki á staðnum. VÍSBENDING | 5

x

Vísbending

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.