Vísbending


Vísbending - 21.12.2009, Qupperneq 10

Vísbending - 21.12.2009, Qupperneq 10
ÁSGEIR JÓNSSON HAGFRÆÐINGUR HVAÐ VAR JÓN BISKUP AÐ HUGSA? SNERUST SIÐASKIPTIN UM FISK OG BRENNISTEIN? Hinn 21. apríl 1548 er sögulegur dagur fyrir ísland, en þá hófst fyrsta og eina vopnaða uppreisn íslendinga gegn valdi Danakonungs. Það var þennan dag sem Jón biskup Arason ritaði opið bréf til allra presta í Skálholtsbiskupsdæmi um að hann hefði tekið sér erkibiskupsvald yfir íslandi. Honum var þar með gefíð „full makt yfir öllu Islandi að dispensera um allar causas papales et cetera” eins og segir í bréfinu. Bréfið var skrifað af mjög ským tilefni. Gissur Einarsson hafði látist mánuði fyrr. Hann var fyrsti lúterski biskupinn í Skálholti eða „súperintentant” eins og hann kallaði sig sjálfur að hætti siðbótarmanna í Evrópu. Jón vildi tryggja að eftirmaður Gissurar yrði kaþólskur og þannig snúa siðaskiptunum til baka. Hann fylgdi bréfinu eflir tveim mánuðum síðar með því aö riða suður yfir heiðar með vopnaðan flokk manna til þess að hertaka Skálholt og taka stjóm á prestastefhu á staðnum. Jóni misheppnaðist í fyrstu atrennu. Lúterstrúarmenn höfðu fengið höfðingjann Daða Guðmundsson í Snóksdal í lið með sér og hann var fyrir með sveina sína er norðlenski bændaherinn sótti að Skálholti. Kúlnahríð frá byssuliðum Daða stöðvaði áhlaup norðanmanna samstundis en hvorki María mey eða Jón biskup Arason gátu fengið íslenska bændasyni að hlaupa á móti opnum byssukjöftum. Og að baki byssuliðanna kusu lúterskir prestar Marteinn Einarsson - mág Daða - sem biskup í stað Gissurar. En stríðið var rétt að byrja. Næstu tvö árin lagði Jón landið undir sig og náði loks því marki að láta lýsa landið kaþólskt á nýjan leik á Alþingi sumarið 1550. Synir Jóns - þeir Ari og Bjöm - þjónuðu sem hershöfðingjar í liði hans og bám hina vopnuðu baráttu uppi. Þeir hertóku Skálholt og handtóku Martein Einarsson, hinn nýja Skálholtsbiskup. Mótstöðumenn þeirra stukku úr landi eða vom handteknir. Þeir feðgar virðast hafa byggt upp hemaðarmátt sinn jafnt og þétt eftir því sem að uppreisnin hélt áfram og höfðu til að mynda reist stærðarvirki á Hólum með fallbyssum, vindubrú og tilheyrandi. Baráttunni lauk þó skyndilega þegar Daði Guðmundsson í Snóksdal kom þeim feðgum á óvart á Sauðafelli í Dölum og handtók þá eftir æsilegan byssubardaga. Þeir vom síðan hálshöggnir þann 7. nóvember 1550. Uppreisn Jóns biskups virðist því bæði hafa haft skýrt upphaf og endi í hugum landsmanna. Hins vegar er ekki allt sem sýnist. Siðaskiptastríðið hérlendis verður ekki skilið til fúllnustu nema í samhengi við verslunarstríð Þjóðverja og Dana sem stóð yfir hérlendis á sama tíma. Það var raunar hið dansk-þýska verslunarstríð sem skapaði forsendur fyrir uppreisn Jóns biskups þar sem Þjóðveijar urðu sjálfkrafa bandamenn hans og hemaðarráðgjafar. Biskupsherinn var vopnaður með þýsku stáli og í síðasta bardaga Jóns á Sauðafelli vom það þýskir byssuliðar er vörðu biskupsmenn í kirkjugarðinum á staðnum þegar Daði sótti að með mönnum sínum. I dauðadómi Jóns, sem Kristján skrifari, umboðsmanni Dana hérlendis, kvað upp yfir honum, kemur skýrt fram að aðal sakareliiið er landráð. Danir vom þess fúllvissir að hann ætlaði að koma landinu undir Þjóðverja. Barátta Jóns virðist einnig haf'a haft mið af gangi verslunarstríðsins. Hann fikraði sig áfram, en síðan gekk fyrst fram af fúllri hörku vorið 1550 þegar svo virtist sem Þjóðveijar væm komnir með tögl og hagldir í baráttu sinni við danska verslunarmenn og að konungur myndi ekki skerast í leikinn. íslenskir sagnfræðingar hafa hins vegar ekki gefið þessum þætti siðaskiptanna mikinn gaum af einhverjum orsökum - kannski vegna þess að þýsk samvinna samræmist ekki hugmyndum fólks um Jón Arason sem þjóðhetju, eða ef til vill vegna þess að verslunarstríðið sjálft hefur ekki notið neinnar athygli í íslenskum sagnfræðirannsóknum. Hér verður gerð tilraun til þess að tengja saman siðaskiptin á fslandi við físk og brennistein. Veldi Hamborgar og vandi Dana Danir höí'öu fram að siðaskiptum aldrei liaft nema veika stjóm á fslandi. Landsmenn vom vopnaðir, herskáir ef svo bar undir og höfðu löngum komist upp með að drepa danska umboðsmenn. Herleiðangrar til íslands vom dýrir og hættulegir og danski flotinn þunnskipaður. Danskir umboðsmenn höfðu stopula vist hérlendis og þorðu sig lítið að hræra frá Bessastöðum. Annar veikleiki Dana fólst í því að hér lágu stærri og sterkari þjóðir, Englendingar, Hollendingar og Þjóðverjar, með skip sín kringum landið, versluðu og veiddu fisk. Danskir kaupmenn stóðust þeim einfaldlega ekki 10 | VÍSBENDING

x

Vísbending

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.