Vísbending


Vísbending - 21.12.2009, Qupperneq 11

Vísbending - 21.12.2009, Qupperneq 11
snúning. Loks hafði íslenska kirkjan - í bandalagi við þá norsku - lengi verið ofjarl konungsvaldsins hérlendis þar sem biskuparnir virtust ávallt hafa síðasta orðið í öllum málum, sama hvað leið konungsbréfúm. Raunar var það svo, að eina leiðin fyrir konung að stýra landinu var sú að vera í bandalagi við kirkjuna, nýta boðleiðir hennar og gera biskupa og prófasta að umboðsmönnum sínum. ísland var gullnáma, en það voru aðrar þjóðir en Danir sem grófu og græddu. Um miðja sextándu öld voru Hamborgarmenn atkvæðamestir erlendra þjóða hérlendis. Þeir hölöu höfúðstöðvar í Halnarfirði (sem þeir tóku af Englendingum árið 1518) og höfðu þar rneðal annars lúterska kirkju og prest. Annars sigldu þeir á fjölmargar hafnir hringinn í kringum landið, þar með talið á Norðurlandi þar sem þeir stunduðu m.a. brennisteinsverslun af fullum kappi. Hamborgarar voru harðdrægir og vopnaglaðir í samkeppni við aðrar þjóðir um hafnir sem og kaupmenn frá öðrum Hansaborgum. Eftir að hafa einnig náð Grindavík af Englendingum mcð hemaði árið 1532 hófú þeir umfangsmikla útgerð á Reykjanesi í félagi við íslendinga. Ahafnir skipanna voru hcrlendar og margir þeir sem reru voru búðsetumenn, þ.e.a.s. bjuggu í þéttbýli og höfðu aðalatvinnu sína af fiskveiðum. Slíkt var raunar bannað samkvæmt íslenskum lögum, enda kærðu bændur sig ekki um samkeppni um vinnuafl, en aftur á móti fengu Hamborgar því lengi framgengt sent þeir vildu hérlendis þar sem þeir höfðu mjög náin og ábatasöm tengsl við íslendinga. Konungur sýnir klœrnar Konungur vildi efla Kaupmannahöfn sem verslunarborg en átti við ramman reip að draga þar sem var Hamborg og aðrar þýskar Hansaborgir. Með siðaskiptunum í Danmörku efldist konungsvaldið verulega á kostnað kirkju og aðals. Konungur fór nú að fá aukinn slagkraft til aðgerða, sent bratt var nýtt til þess að koma siðaskiptum í gegn hérlendis. Aukinheldur, ef danskir kaupmenn gátu ekki haft í fúllu tré við þýska kaupmenn í frjálsri samkeppni varð að beita öðrum aðferðum. Ogmundur Pálsson, síðasti kaþólski biskupinn í Skálholti, haföi dregið sig í hlé 1539 vegna sjónblindu og lét kjósa skjólstæðing sinn, Gissur Einarsson, sem biskup í sinn stað. Fljótlega varð þó fúllur fjandskapur á milli þeirra tveggja þegar fór að bera á lúterskri hneigð hjá Gissuri. Hinn blindi biskup tók nú að kynda undir eftirmanni VÍSBENDING I 11

x

Vísbending

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.