Vísbending


Vísbending - 21.12.2009, Síða 23

Vísbending - 21.12.2009, Síða 23
í löndum Varsjárbandalagsins. Til þess var mjög alvarleg viðleitni í gangi af hálfu Sovétríkjanna og Austur-Þýskalands. Þeir vildu hnekkja þessari samþykkt okkar frá 1968 en við stóðum mörg á verði gegn því og réðum stefnunni.“ Varð þetta að ágreiningi innan raða flokksmanna? „Ég tel mig eiga margt að þakka því fólki sem skipaði forystu Sósíalistaflokksins. Ég lærði margt af kynnum við það og hef vonandi orðið skán i maður af. En svo fór að milli mín og flestra af minni kynslóð þróaðist alvarlegur ágreiningur við suma þessa eldri menn um höfuðmál, ekki síst um tengslin við Austur-Evrópu. Ég tók svo við Þjóðviljanum sem ritstjóri 1972. Magnús Kjartansson var þá nýlega hættur í því starfi eftir 25 ár en milli okkar var góður trúnaður og vinskapur. Hann lagði hart að mér að gangast undir þetta ok.“ Vissum aö njósnir voru stundaðar í bók Guðna Jóhannessonar, Óvinir ríkisins, kemur fram að meðan kalda stríðið stóð sem hæst á íslandi fylgdust andstæðingar með óvinum sínum eftir megni. Einlivers konar njósnastarfsemi á báða bóga virðist hafa verið staðreynd á meirihluta sjötta og sjöunda áratugarins þótt eftir eðli málsins færi hún oftast lágt. Það vakti því talsverða athygli á síðasta ári |regar komu fram gögn sem sýndu að íslensk dómsmálayfirvöld höfðu heimilað símhleranir í röðum vinstri manna allt til loka sjöunda áratugarins. Þetta varð opinbert, m.a. fyrir tilstilli Kjartans sem beitti sér fyrir því að gögn um þær voru gerð opinber. Að hve miklu leyti voru forystumenn vinstri manna meðvitaðir um það á sjötta og sjöunda áratugnum að ef til vill vœri Jylgst með þeim? „Við töldum okkur auðvitað vita að í bandaríska sendiráðinu væru heljarmiklar skrár um fólk. Þetta byggðist aðallega á því að það henti aftur og aftur að einhver sem tengdist okkar stjómmálahreyfingu sótti um vegabréfsáritun til Bandaríkjanna en fékk neitun. í samtölum við starfsfólk sendiráðs þeirra kom skýrt fram að miklar og ítarlegar upplýsingar lágu fyrir um fólk og um undarlegustu hluti. Það hlaut að liggja þarna að baki net innlendra hjálparmanna og ég man eftir einu tilviki þar sem skýrsla eða plögg af því tagi komust í okkar hendur,“ segir Kjartan og vísar án efa þama til þess þegar Þjóðviljinn birti 1963 punkta úr fórum Asgeirs nokkurs Magnússonar. Trúöi ekki á símahleranir En vissuð þið að símar voru hleraðir? „Það var oft minnst á símahleranir. Menn sögðu: Bjami Ben lætur hlera. Við höfðum engar sannanir fyrir því og ég var alltaf heldur tortrygginn á að þetta væri rétt og eyddi þeirn grunsemdum með sjálfum mér. Menn þóttust heyra klikk í símanum sem var víst ekkert að marka og ef svo væri, gat þá ekki alveg eins verið að Rússamir væru að fylgjast með okkur. Þeir gætu viljað vita hvað væri að gerast innan flokksins. Þegar það kom svo fram í dagsljósið að þetta hefði verið með þeirn hætti sem nú er vitað og á vegum lögreglustjórans í Reykjavtk og dómsmálaráðherra þá kom mér það raunar á óvait." Gerðuð þið ráð fyrír því í samtölum og fundahöldum að njósnað vœri um ykkur? „Einhvern tímann á Hermann Jónasson, formaður Framsóknar- flokksins að hafa sagt við Einar Olgeirsson: Nú eru þeir að hlera. Þetta vom svona gamansögur. En ég held að mjög sjaldgæft hafi verið að menn höguðu orðum sínum í símtölum með einhverjum sérstökum hætti vegna þessa. „Menn þóttust heyra klikk í símanum sem var víst ekkert að marka og ef svo vœri, gat þá ekki alveg eins verið að Rússarnir vœru að fylgjast með okkur. Þeir gœtu viljað vita hvað vœri að gerast innan flokksins." Það gæti þó hafa komið íyrir Einar Olgeirsson á ögurstundum. A ámm kommúnistaflokksins fyrir stríð vom menn ávallt viðbúnir samsæri, voru búnir undir að flokkurinn þyrfti að fara neðanjarðar og þeir sem mótuðust í slíku andrúmslofti vom tortryggnir alla sína ævi. Og menn vom varir um sig hægra megin línunnar líka. Sigurður A. Magnússon hefur í einni af æviminningabókum sínum eftir Eyjólfi Konráði Jónssyni ritstjóra Morgunblaðsins og alþingismanni Sjálfstæðisflokksins að hann svæfi alltaf með skammbyssu undir koddanum. Menti geta kallað þetta geðbilun í dag en þá stóð mönnum ótti af útsendurum heimskommúnismans og gátu haft viss rök fyrir því þótt þau væm ekki alltaf merkileg." Hverjir njósnuöu fyrir Rússana? Nú er vitað að Sovétmenn stunduðu talsverðar njósnir á Islandi allt frá því skömmu fyrir 1960 og þekkt nokkur dœmi um tilraunir þeirra til að ráða íslendinga ísína þjónustu. Hér starfaði um tíma á áttunda áratugnum KGB maðurinn Gergel sem sagðist hafa náð persónulegu trúnaðarsambandi við þrjá áhrifamenn í vinstrihreyfingunni. Hvernig var talað um þessi mál í kalda stríðinu? „Við vomm ekkert mjög uppteknir af þessu. Við vissum að Sovétríkin vom með njósnastarfsemi út unt allan heirn. Það gat komið upp sú hugmynd að hinn eða þessi væri njósnari Rússaeða Ameríkana en við gátum aldrei sannað neitt. Við höfðum enga njósnadeild sjálfir en vissum vel að ef Rússar væm hér með íslenska njósnara þá gat vel verið um að ræða einhvem innan okkar raða eða í einhverjum hinna flokkanna. Margir njósnarar á þeirra vegum unt víða veröld gengu fyrir peningum og það komst aldrei neitt upp hér, nema málið þar sem Ragnar Gunnarsson kom við sögu en hann leiddi KGB mennina í gildm.“ Ragnar þessi Gunnarsson leiddi tvo starfsmenn rússneska sendiráðsins í hendur íslensku lögreglunnar við Hafravatn 1963. Þeir vildu að hann njósnaði fyrir þá, tæki myndir og þessháttar en Ragnar lék tveinrur skjöldum og fletti ofan af þeim. Þá hafði hann leyst fyrsta verkefnið sem var að taka mynd af lóranstöðinni við Gufuskála. En voru einhverjir tilteknir vinstrimenn grunaðir um að vera á mála hjá Rússum? „Nei ég get ekki sagt það. Auðvitað var til fólk sem var einfaldara í sinni þjónustu en svo að því verði með orðum lýst, fólk sem hafði hreina trúarbragðaafstöðu í þessum efnum, sérstaklega hvað varðaði trúnað við Sovétríkin. En þetta var jafnframt fólk sem hafði upp á ekkert að bjóða sem njósnarar. Það hvarflaði aldrei að mér að einhver sem ég þekkti væri að lauma upplýsingum varðandi öryggi ríkisins til Rússanna. Hitt vitum við að furðu margir em til sölu ef miklir fjármunir eru í boði, - reyndar fleiri nú en áður var. Gömlu mennimir sem ólust upp við að þeir væri partur af heimshreyfingu kommúnismans og gátu ekki hugsað sér tilveruna öðm vísi, þeir áttu oftsinnis trúnaðarsamtöl við menn í sovéska sendiráðinu og fyrir austan tjald í boðsferðum. Þar var rætt urn stjómmál en slíkt flokkast ekki undir njósnir. VÍSBENDING I 23

x

Vísbending

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.