Heimilisritið - 01.09.1952, Side 55

Heimilisritið - 01.09.1952, Side 55
r ÓGIFT HJÓN ______ Nýir lesendur gela byrjað hér: Kári Garston er á leiðinni frá Ástralíu til Englands í litluni skemmtibát. Hann hefur komið við í Frakklandi til þess að heilsa upp á Klöru, sem hann hefur í hyggju að giftast. Hann hefur átt von á miklum arfi í Englandi, en nú er út- lit fv'rir að um það sé ekki að ræða leng- ur. \leð bátnum er laumufarþegi, Kat- rín Manton, 'frá Frakkalandi. Hún cr stórauðug, og móðir hennar hafði ætlað að gifta hana Jean de Seligny greifa, cn Katrín flýr rétt áður en brúðkaupið átti að fara fram. Katrín sat á neðri kojunni kvíðafull á svip, þegar Kári kom niður í klefann. Nú, eftir að mesti spenningurinn í sambandi við flóttann var liðinn hjá, fór hún að hugsa ráð sitt. Hafði það verið heimskulegt axarskaft að leggja á flótta ? Og þó — hvernig gat það verið heimska, að flýja frá því aS giftast manni, sem henni geðjaðist jafn illa að og Jean de Seligny ? Hún hugleiddi hvað skeS hefði á hótelinu, hvaSa Sérlega spennandi róman ejtir 'MAYSIE GREIG sem byrjaði í síðasta hefti ____________________4\ afsakanir móðir hennar hefði fram að faera við brúðkaupsgest- ina, hversu mikið af sannleikan- um hún hefði sagt þeim. Hún hafði hripað á bréfmiða eftirfar- andi orð til móður sinnar: Ég er farin. Reyndu e/j/ji að hafa upp á mér Eg hef andstyggð á Jean og kysi fremur dauðann en aS giftast honum. Katrín. MóSir hennar myndi áreiðan- lega ekki sýna Jean þennan miða. Hún myndi ennþá lifa í þeirri von, að Katrín kaemi aftur og tæki sönzum. Jean myndi sjálf- sagt reiðast, hversu svo sem móð- ir hennar reyndi að færa þetta til betri vegar. En það myndi ekki rista djúpt. Hún gat séS hann fyrir sér yppta öxlum og segja heimspekilega við sjálfan sig: ,,Ojæja, hún átti að vísu sand af peningum, en hræddur er ég um, að erfitt hefði stundum veriS að tjónka viS hana. Þær eru fleiri SEPTEMBER, 1952 53

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.