Fréttatíminn - 05.07.2013, Blaðsíða 6
KRAFTMIKIL
HOLLUSTA
Trítlað um Keisarafjöllin
5. - 12. september
Fararstjóri: Sigrún Valbergsdóttir
Verð: 178.400 kr.
á mann í tvíbýli. Mjög mikið innifalið!
Sumar 19
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK
Sp
ör
e
hf
.
Tíról í Austurríki er aðal áfangastaður
okkar í þessari ferð. Náttúrufegurð
einkennir þetta svæði og töfrandi
umhverfi Alpanna. Örfá sæti laus!
Dr. Magnús
Bjarnason
stjórnmálahag-
fræðingur telur
margt líkt með
landbúnaðarstefnu
ESB og þeirri sem
framfylgt sé á Ís-
landi. Stefnt sé að
aukinni framleiðni
og hagkvæmi og
jafnvægi á milli
eftirspurnar og
framboðs.
ESB aðildarviðræður landBúnaðarmál
Ísland hefði rétt á hærri styrkjum en almennt gerist innan ESB
Dagný Hulda
Erlendsdóttir
dagnyhulda@
frettatiminn.is
„Við ESB-aðild myndu íslenskir
bændur fá hærri styrki en almennt
gerist innan sambandsins vegna
legu landsins og hversu harðbýlt
það er en harðbýl landbúnaðar-
svæði í nyrstu héruðum ESB fá sér-
staka styrki frá sambandinu. Auk
þess hafa norðlægustu aðildarríkin
heimild til aukastyrkveitinga úr
eigin vasa,“ segir dr. Magnús
Bjarnason, stjórnmálahagfræðing-
ur. Hann segir þó styrkjakerfi ESB
ekki alveg eins og á Íslandi þannig
nauðsynlegt yrði að hafa ákveðinn
aðlögunartíma. Auk þess gæti
orðið munur á styrkveitingum eftir
búgreinum og héruðum.
Að sögn Magnúsar tíðkuðust
háir landbúnaðarstyrkir í Finn-
landi áður en ríkið gekk í ESB árið
1995. Finnar fengu þó undanþágu
vegna þess hversu strjábýlt landið
er og gátu áfram styrkt sinn land-
búnað ríkulega. „Fyrst gilti undan-
þágan í tíu ár en var svo framlengd
svo það er fyrst núna, átján árum
eftir aðild, sem þeir hafa þurft að
lækka sína styrki en þeir eru þó
hærri en almennt gerist vegna
þess hversu norðarlega Finnland
liggur,“ segir Magnús.
Að mati Magnúsar er margt líkt
með stefnu ESB í landbúnaðarmál-
um og þeirri stefnu sem fylgt er á
Íslandi. „Á báðum stöðum er stefnt
að aukinni framleiðni og hag-
kvæmni í framleiðslu og jafnvægi
á milli eftirspurnar og framboðs.
Stefnan er sú að bændur hafi sitt
lifibrauð áfram og að matarverð sé
hæfilegt þó það hafi nú ekki gengið
fyllilega sem skyldi á Íslandi þar
sem matarverð er sautján til átján
prósentum hærra en að meðaltali í
aðildarríkjum ESB.“
v ið vorum eiginlega bara furðu lostin,“ segir Ingibjörg H. Björns-dóttir sem í nóvember flutti aftur
til Íslands eftir að hafa búið ásamt fjöl-
skyldu sinni í Danmörku og Grænlandi í
rúman áratug. Milli Norðurlandanna eru í
gangi samningar um almannatryggingar
og félagslega þjónustu. Vegna þessa hafa
Ingibjörg og fjölskylda hennar sjálfkrafa
gengið strax inn í kerfið þegar þau fluttu til
bæði Danmerkur og Grænlands en annað
var uppi á teningnum þegar þau komu
aftur til Íslands. „Þegnar á Norðurlönd-
unum halda réttindum sínum þegar þeir
flytja til annarra Norðurlanda og við höfum
aldrei þurft að hafa fyrir neinu. Þegar við
komum til Íslands þurftum við hins vegar
að sanna okkur fyrir kerfinu. Við þurftum
að koma með vottorð frá fyrra landi um að
við værum heilbrigð áður en við fengum
heilbrigðistryggingu. Á hinum Norðurlönd-
unum fá foreldrar sjálfkrafa barnabætur
um leið og þeir eru komnir með lögheimili
í landinu en hér þarf að sækja sérstaklega
um þær,“ segir Ingibjörg. Hún er fyrst og
fremst undrandi á því hversu ólíkt viðmót
þau fá í kerfinu hér miðað við erlendis.
Eiginmaður Ingibjargar var með vinnu
úti en er enn ekki kominn með fast starf
á Íslandi. Vegna þess að hann kemur inn
í kerfið án vinnu má hann ekki skrá sig
atvinnulausan, hefur ekki rétt á atvinnu-
leysisbótum og má ekki sækja um störf
sem Vinnumálastofnun auglýsir laus heldur
aðeins störf á almennum markaði. „Hann
þarf að vera búinn að vinna hér í 6 mánuði
áður en hann getur sótt um atvinnuleysis-
bætur. Þetta er enn eitt dæmið um hvernig
fólk þarf að sanna sig fyrir kerfinu hér,“
segir hún.
Það blasir við fólki sem hefur búið á
hinum Norðurlöndunum hvað norræna vel-
ferðarkerfið er stutt á veg komið á Íslandi.
Þau hjónin fluttu hingað með lítinn dreng
sem fékk fyrst leikskólapláss nú í vor, rúm-
lega tveggja ára gamall. „Við fengum pláss
fyrir hann hjá dagmömmu, sem er yndisleg
en mér finnst út í hött að gæsla fyrir yngri
börn sé ekki hluti af þjónustunni í samfé-
laginu,“ segir hún. Ingibjörg leggur áherslu
á að hún sé ekki að kvarta en vilji engu að
síður benda á muninn á milli Íslands og
hinna Norðurlandanna. „Í Grænlandi kom-
ast börn inn á leiksóla um 9 mánað aldurinn
og í Danmörku um árs gömul. Í Danmörku
eru líka dagmömmur en þær starfa þá hjá
hinu opinbera og ef þær verða veikar þá
eru börnin vistuð hjá öðrum dagmæðrum,“
segir hún.
Á Íslandi skapar það einnig togstreitu
milli fjölskyldu og vinnu þegar leikskólar og
skólar taka starfsdaga og vetrarfrí án þess
að það sé samræmt milli skóla. „Á Norður-
löndunum er vetrarfríið skipulagt þannig
að samfélagið veit að á ákveðnum tíma eru
vetrarfrí. Þá reikna vinnustaðir með því að
foreldrar þurfi að vera fjarverandi og ýmis
tómstundaiðja fyrir börn er sérstaklega
í boði á þeim tíma. Allt samfélagið tekur
þátt,“ segir hún. Að sögn Ingibjargar verður
fólk hér mjög undrandi þegar hún segir frá
þessu enda sé hér ríkjandi sú hugsun að allt
reddist. „En fólk er þreytt á að þurfa alltaf að
redda börnunum sínum. Þetta skapar auka
álag,“ segir Ingibjörg sem telur að íslenska
kerfið megi bæta að mörgu leyti til að stand-
ast samanburð við önnur Norðurlönd.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Samnorrænir Samningar Erfiðara að komaSt inn í kErfið á íSlandi
Undrandi á íslenska kerfinu
Á hinum
Norður-
löndunum
fá foreldrar
sjálfkrafa
barna-
bætur um
leið og þeir
eru komnir
með lög-
heimili í
landinu
Íslendingar sem nýverið fluttu aftur heim þurftu að sanna sig fyrir íslenska almannatrygginga- og
velferðarkerfinu til að komast þar aftur inn. Á hinum Norðurlöndunum fóru þau beint inn í kerfið
enda samnorrænir samningar í gangi þess efnis. Eiginmaðurinn er nú atvinnulaus en má ekki
skrá sig atvinnulausan því hann starfaði síðast erlendis.
Ingibjörg ásamt Ólafi Rafnar Ólafssyni eiginmanni sínum og sonum þeirra þremur, Birni, Úlfi og Hrafni. Ljósmynd/Hari
6 fréttir Helgin 5.-7. júlí 2013