Fréttatíminn - 05.07.2013, Blaðsíða 60
Í takt við tÍmann Fanney ingvarsdóttir
Skófíkill sem kominn er af sælkerum
Fanney Ingvarsdóttir er 21 árs Garðbæingur sem kjörin var Ungfrú Ísland árið 2010.
Hún er stúdent úr FG og hefur verið að vinna í GS skóm meðfram ferðalögum.
Í sumar halda hún og vinkonur hennar úti bloggsíðunni 210-blog á vegum
Skapandi sumarstarfa í Garðabæ.
Staðalbúnaður
Fatastíllinn minn fer eftir því hvernig
skapi ég vakna í á morgnana og hvernig
veðrið er úti. Oftast er hann samt þægi-
legur, dömulegur og blanda af nýtísku-
legum og gamaldags. Ég versla mikið er-
lendis, aðallega í H&M, Monki, Weekday
og Urban Outfitters en hér heima versla
ég í Gallerí 17, GS skóm, Zöru og Tops-
hop auðvitað. Og í second hand-búðum
eins og Spútnik og Nostalgíu. Ég er búin
að vera að vinna í skóbúð í þrjú ár og
skósafnið er því orðið ansi stórt, kannski
full stórt. Ég myndi segja að ég væri pínu
skófíkill.
Hugbúnaður
Ég verð að viðurkenna að ég fer langoftast
á b5, eins og hálft Ísland. Þar hittir maður
langflest af sínu fólk enda er tónlistin góð
og gaman að dansa. Annars fer ég líka á
Vegamót, Faktorý og Dönsku krána. Á
barnum panta ég mér yfirleitt bjór, ég er
ekki dömulegri en það. Ég hætti að æfa
handbolta fyrir tveimur árum en hef síðan
stundað líkamsrækt í World Class þó
það sé misjafnt hversu dugleg ég er. Ég
fylgist líka með íþróttum, handboltanum
á veturna og fótboltanum á sumrin. Allt í
einu finnst mér eins og klukkutímunum
í sólarhringnum hafi fækkað og ég hef
ekki jafn mikinn tíma fyrir sjónvarpið og
áður. Ég horfi þó enn á einhverja þætti, til
dæmis Sons of Anarchy, Vampire Diaries,
Modern Family og svo Gossip Girl og
Grey‘s Anatomy.
Vélbúnaður
Ég er svolítil Apple-manneskja,
er nýlega búin að fá mér
iPhone 5 og átti þar áður 4
og 3S. Það er ekki séns að
skipta yfir í eitthvað ann-
að, ég er rosalega háð
símanum. Hann er litla
tölvan mín en annars á
ég Macbook-tölvu sem
hefur reynst mér mjög
vel. Í símanum nota
ég Instagram mest
af öppunum, ég hef
rosa gaman af því
forriti. Þar á eftir
koma Snapchat
og Facebook.
Aukabúnaður
Báðir foreldrar
mínir eru þvílíkir
sælkerar og ég fæ því
iðulega góðan mat
heima. Þau elda af Fanney Ingvarsdóttir heldur úti
bloggsíðunni 210-blog.blogspot.com
ásamt vinkonum sínum í sumar þar
sem þær fjalla um allt á milli himins og
jarðar. Ljósmynd/Hari
Bragagata, Laugavegur og Suðurlandsbraut / 562 3838 / eldsmidjan.is
Er hægt að fá
sent heim?
þvílíkri ástríðu og ég stórgræði á því. Mér
finnst líka gaman að fara út að borða, bæði
fínt á staði eins og Tapasbarinn og Grill-
markaðinn, og í hádeginu á Saffran, Serr-
ano, Vegamót og fleiri. Áhugamálin mín
eru íþróttir, tíska og ferðalög. Það er
dásamlegt að ferðast um Ísland en ég
kann líka ótrúlega vel að meta að heim-
sækja ný lönd og kynnast nýrri menn-
ingu. Mér finnst ég alltaf verða ríkari
fyrir vikið en hvert skipti kveikir líka
í mér meiri þrá. Stóra systir mín býr
í Kaupmannahöfn og við höfum
farið þangað þrisvar eða fjórum
sinnum á ári. Ég kann rosa vel
við mig þar. Af öðrum stöðum
sem ég hef heimsótt stendur
Shanghaí í Kína upp úr, það
var eins og að koma til fram-
tíðar að koma þangað. Svo
finnst mér New York líka
æði. Ég keyri um á Yaris.
Mamma á einn sem ég
fæ lánaðan og amma og
afi eiga annan sem ég fæ
að nota þegar þau eru í
útlöndum. Fólkið mitt
reddar mér.
60 dægurmál Helgin 5.-7. júlí 2013