Fréttatíminn


Fréttatíminn - 05.07.2013, Blaðsíða 30

Fréttatíminn - 05.07.2013, Blaðsíða 30
minna með hverju barni sem fer í sjálfstætt starf- andi skóla en börnum sem fara í skóla sem sveitar- félögin reka. Hvaða réttlæti er í því? Þau börn kosta ekkert minna en börnin sem fara í opinbera skóla og foreldrar þeirra borga ekki minna í opin- bera sjóði.“ Inga Lind hefur verið í skólanefnd FG frá því að hún útskrifaðist þaðan sem stúdent. „Það er eiginlega kostulegt, ég er konan sem hætti aldrei í fjölbrautaskólanum sínum,“ segir hún og hlær. „Ég var upphaflega í skólanefnd sem fulltrúi nemenda en hélt áfram að vera þarna eftir út- skrift, þá tilnefnd af ráðherra. Svo liðu árin og ég var allt í einu búin að vera í nefndinni í 17 ár, þar af formaður í 8 ár. En nú er ég hætt, ég hætti þegar ég flutti til Barcelona, því miður.“ Sárnaði umtalið um húsið Þegar talið berst aftur að Barcelona spyr ég Ingu Lind hvort það sé ekki ákveðinn léttir að komast út úr sviðsljósinu og umtalinu sem því fylgir. „Jú, það er ágætt. Hollt fyrir alla, annars verður fólk örugglega þreytt á manni. Ég hef samt sem áður ekki lent neitt sérstaklega illa í umtali – ég tek umtal ekki nærri mér nema þegar það snýr að fjölskyldunni líkt og gerðist þegar við hjónin byggðum húsið okkar. Þá sárnaði mér – og þá mest fyrir hönd barnanna minna enda var umtalið farið að koma við þau,“ segir hún. Inga Lind og Árni keyptu hús á Arnarnesi sem þau létu rífa og byggðu nýtt – sem mörgum fannst of stórt. „Ég veit bara ekki hvar línan er dregin í fermetra- fjölda áður en fólk fer að hneykslast,“ segir Inga Lind. „Þarna sá ég umfjallanir í netheimum þar sem fólk fór að draga ályktanir út frá húsinu sem við vorum að byggja um hvernig fjölskyldulífi við lifðum. Þá var þetta farið að koma við börnin mín og var orðið óþægilegt. Fólk þarf að muna þetta með nærveru sálar og aðgátina,“ segir hún. „Um- tal venst. Ég er búin að vera í fjölmiðlum í sautján ár og maður lærir að leiða þetta hjá sér. Maður fær þykkan skráp,“ segir hún. Staða kvenna í fjölmiðlum er málefni sem reglu- lega dúkkar upp. Fáar konur eru í stjórnunar- stöðum í fjölmiðlum og eiga almennt erfiðara upp- dráttar en karlar. Inga Lind segir þetta þó ekki bundið við sjónvarp og fjölmiðla. „Þetta á við alls staðar í atvinnulífinu. Við konur þurfum að berjast við að við þurfum helst að vera viðkunnanlegar og huggulegar – ekki bara í útliti, heldur líka fram- komu, jafnvel í hörðu samkeppnisumhverfi. Það er mun erfiðara fyrir okkur en karlana að vera harðar í horn að taka og til að mynda að biðja um hærri laun. Við vitum alltaf að við þurfum að vera viðkunnanlegar og notalegar, annars fáum við stimpilinn: „Frekja“ eða „tík“ og hver vill vinna með svoleiðis manneskju? Kona sem gengur fram veginn eins og karl fær á sig þannig stimpil, að hún sé vargur og erfið viðureignar, meðan dáðst er að karli sem hagar sér alveg eins. Þetta gildir alls staðar, ekki bara í sjónvarpi,“ segir Inga Lind. Við dettum inn í umræðu um nýútkomna bók, Lean In, eftir Sheryl Sandberg, eina af áhrifa- mestu konunum í viðskiptaheiminum, næstráð- anda hjá Facebook veldinu og fyrrum stjórnanda hjá Google, sem við erum báðar mjög hrifnar af. Sheryl er ein fárra yfirlýstra femínista í valda- stöðu í viðskiptaheiminum. Megininntak bókar hennar er hvatning til kvenna um að gera það sem í þeirra valdi stendur til að gera sig sýnilegri í við- skiptaheiminum. Þær þurfi sjálfar að leggja sig fram við að grípa þau tækifæri sem bjóðast, líkt og karlarnir gera, þær þurfi að „halla sér fram“ (e. Lean In) í stað þess að halla sér aftur í stólunum við stjórnarborð fyrirtækisins og þaðan er titill bókarinnar kominn. Eitt af því áhugaverða sem fram kom hjá Sand- berg var lýsing hennar á því hvernig konur og karlar bregðast á ólíkan hátt við hrósi og byggir hún þær á eigin stjórnendareynslu. Sandberg bendir á að konur þakka velgengni sína því að þær hafi lagt hart að sér, þær hafi verið heppnar og að þær hafi fengið hjálp frá öðrum. Karlar þakka velgengni sína – sama á hvaða sviðum hún er – eigin verðleikum. Inga Lind segist kannast við það sem Sheryl talar um, til að mynda að konur sem hafi náð langt séu með stöðugar efasemdir um eigin getu. „Af hverju gerum við þetta?“ spyr Inga Lind. „Þegar ég var búin að samþykkja að taka að mér að stýra Biggest Loser fóru þessar hugsanir strax að læðast að mér. „Ég hef aldrei stýrt neinu nema fréttatengdu efni, ég get þetta örugglega ekki. Ég verð örugglega glötuð í þessu,“ lýsir hún. „Þetta er dæmigert fyrir konur, að tala sig svona niður. Við verðum að hætta því,“ segir hún. Inga Lind hefur sjálf brotið nokkur glerþök. Hún var til að mynda fyrst kvenna til að hljóta titilinn ræðumaður Íslands í Morfís-keppninni. „Ég legg mig fram við að innræta bæði dætrum mínum og syni þá lífsskoðun að segja já við öllum þeim tækifærum sem bjóðast, svo lengi sem þau eru innan siðlegra og löglegra marka. Það er miklu betra að sjá eftir einhverju sem maður hef- ur gert heldur en einhverju sem maður hefur ekki gert. Lífið hefur upp á svo ótal margt að bjóða og ef maður ætlar stöðugt að efast um eigin getu til að njóta þess, fer allt of margt fram hjá manni.“ Frekar fjölmiðlar en pólitík Inga Lind hóf ung þátttöku í pólitík – starfaði í ungliðahreyfingu sjálfstæðismanna í Garðabæ – en hætti þegar hún byrjaði í blaðamennsku. Hún segist ekki getað hugsa sér að gera pólitík að at- vinnu sinni. „Það er ekki að ástæðulausu að mjög margir fjölmiðlamenn hafa á einhverjum tíma daðrað við pólitík. Fjölmiðlafólk er einmitt í þessu starfi af því að það hefur löngun til að segja frá og bæta samfélagið. Ég held að ég sé búin að sjá það mikið af pólitík í gegnum þessa afskiptasemi mína áður fyrr og í gegnum þá vini sem ég á í dag og eru í pólitík að ég hef engan áhuga á að taka þátt sjálf. Þetta er vanþakklátt starf og ég dáist að fólki sem fer í þetta, vitandi að það dynja á því árásirnar. Til er fólk sem telur sig hafa skotleyfi á stjórnmálamenn, sem þurfa svo að sitja undir nei- kvæðni alla daga meðan þeir reyna að gera Ísland betra. Má ég þá frekar biðja um fjölmiðlana, það er svo miklu skemmtilegra,“ segir hún og hlær. Inga Lind fann strax og hún byrjaði í blaða- mennsku að þar ætti hún heima. „Það er þessi óseðjandi forvitni,“ segir hún og hlær. „Og það, að alltaf þegar ég kemst á snoðir um eitthvað finnst mér að aðrir þurfa að fá að vita það,“ segir hún hlæjandi. „Ég get sko alveg þagað yfir leyndar- málum, það er ekki það,“ bætir hún við. „Þetta er meira svona: „Í alvöru, vissir þú þetta?“ Mig langar að halda þjóðinni upplýstri og gera heim- inn betri. Ég hef aldrei stundað "nastí" blaða- mennsku, ég hef alltaf viljað vera á jákvæðum nótum,“ segir Inga Lind. „Það er einmitt það sem þetta nýjasta verkefni gengur út á, jákvæðnin. Það er svo jákvætt að geta tekið þátt í að stuðla að betra lífi hjá fólki – og ég er vongóð um að okkur takist það.“ Sigríður Dögg Auðunsdóttir sigridur@frettatiminn.is Havartí er einn þekktasti ostur Dana en hér á landi hófst framleiðsla á honum á Höfn í Hornarfirði árið 1987. Ostinum var upphaflega gefið nafnið Jöklaostur en því var breytt. Havartí varð til um miðja 19. öld hjá hinni frægu dönsku ostagerðarkonu, Hanne Nielsen. Havartí er mildur, ljúfur og eilítið smjörkenndur ostur sem verður skarpari með aldrinum og er með vott af heslihnetubragði. Frábær ostur með fordrykknum eða á desertbakka með mjúkum döðlum og eplum. HAVARTÍ FJÖLHÆFUR www.odalsostar.is Við konur þurfum að berjast við að við þurfum helst að vera við- kunnalegar og huggulegar - ekki bara í útliti, heldur líka framkomu. 30 viðtal Helgin 5.-7. júlí 2013
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.