Fréttatíminn


Fréttatíminn - 05.07.2013, Blaðsíða 54

Fréttatíminn - 05.07.2013, Blaðsíða 54
54 bíó Helgin 5.-7. júlí 2013 Í myndinni lítur Tonto til baka og rifjar upp söguna af því hvernig lögreglu- maðurinn John Reid umbreytt- ist í hinn ósigrandi útvörð rétt- lætisins, The Lone Ranger.  The Lone RangeR TonTo segiR fRá J erry Bruckheimer, leikstjórinn Gore Verbinski og Johnny Depp hafa átt ábatasamt samstarf í nokkur ár og myndaserían um The Pirates of the Carib- bean hefur malað þeim gull. Aðsóknin og dollarafjöllin hafa þó síður en svo verið trygg- ing fyrir gæðum. Fyrsta sjóræningjamyndin var frábær skemmtun, líflegt og spennandi ævintýri þar sem Depp fór á kostum og heillaði fólk upp úr skónum í hlutverki hins ramskakka, fláráða en inn við beinið ágæta sjóræninga Jack Sparrow. Framhaldsmynd- irnar, sem eru orðnar þrjár eins og er, voru síðan því miður hver annarri leiðinlegri og í því ljósi má í það minnsta fagna því að tríóið hefur nú skipt um gír og fært sig frá Karíba- hafi yfir á sléttur villta vestursins. Indíáninn Tonto hefur í gegnum tíðina verið viðhengi The Lone Ranger en Depp kaus að leika hann í The Lone Ranger og indíáninn getur því tæpast talist aukapersóna í þessari umferð enda er Depp alltaf aðalgæ- inn hvar sem hann kemur. Armie Hammer, sem leikur kúrekann, þarf því að hafa sig allan við til þess að falla ekki í skuggann af skraulegum indíánanum og stórstjörnunni sem túlkar hann með hrafn með þanda vængi sem höfuðskraut. Í myndinni lítur Tonto til baka og rifjar upp söguna af því hvernig lögreglumaður- inn John Reid umbreyttist í hinn ósigrandi útvörð réttlætisins, The Lone Ranger, en indíáninn átti sinn þátt í því öllu saman. The Lone Ranger á sér langa sögu og hefur verið á fleygiferð, með löngum hléum, í ein 80 ár, og er fyrir löngu orðinn að íkoni í bandarískri menningu. Hann tók illþýði í sléttum Texas í villta vestrinu föstum tökum og fór mikinn á gæðingnum Silver með Tonto sér við hlið. Þetta grímuklædda Zorró-ígildi rann undan rifjum höfundarins Fran Striker og lét fyrst að sér kveða í útvarpi. The Lone Ranger sló í gegn á öldum ljósvakans og ævintýri hans héldu áfram í bókaflokki þar sem Striker skrifaði megnið af sögunum. Af blaðsíðum bókanna lá leiðin að vonum í sjón- varp en þættirnir um The Lone Ranger nutu mikilla vinsælda á árunum 1949 til 1957. Auk þess varð kúrekinn myndasöguhetja og lét til sín taka í bíó. Upphrópunin „Hi-Yo, Silver! Away!“ varð að tískufrasa hjá krökkum ásamt orðinu „kemosabe“ (tryggi vinur) sem Tonto notaði um félaga sinn festist í sessi. Önnur helstu kennimerki The Lone Ranger sem hafa alla tíð verið nátengd honum eru svo forleikur Rossinis að William Tell sem ómaði jafnan þegar Silver skellti á skeið og svo silfur- kúlurnar sem The Lone Ranger notaði þótt engir væru varúlfarnir á ferð í Texas á gull- aldarárum hans. Auk Depp og Hammer eru William Ficht- ner, Helena Bonham Carter, Barry Pepper og Tom Wilkinson í helstu hlutverkum. Aðrir miðlar: Imdb: 6,6, Rotten Tomatoes: 25%, Metacritic: 37% Kúrekinn The Lone Ranger á sér langa sögu í amerískri dægurmenningu og hefur komið víða við frá þvi hann var fyrst kynntur til leiks í útvarpi 1933. Nú er hann mættur til leiks í fokdýrri sumar- mynd frá framleiðandanum Jerry Bruckheimer sem enn eina ferðina teflir Johnny Depp fram í endalausri leit sinni að meiri gróða. Depp leikur indíánan trygga, Tonto, sem fylgir riddara slétt- unnar eins og skugginn en sagan er að þessu sinni sögð frá sjónarhorni Tontos. Þórarinn Þórarinsson toti@frettatiminn.is Kúrekinn með bófa- grímuna skellir á skeið The Lone Ranger og Tonto eru komnir aftur á bak eftir langt hlé og nú eru það þeir Armie Hammer og Johnny Depp sem leika þessa félaga sem hafa haldið uppi lögum og reglum í Texas villta vestursins í 80 ár eða svo. Nýja fyndna kynslóðin í Hollywood kemur saman í This Is the End sem er ansi hreint sérstök gamanmynd um heimsendi sem skellur á þegar nokkrir vinsælustu gamanleikarar samtímans eru í góðu partíi heima hjá leikaranum James Franco. Höfundar Superbad og Pineapple Express hafa hér smalað saman eldhressum hópi leikara sem allir leika sjálfa sig í þessu drepfyndna rugli. Seth Rogen, Jay Baruchel, Jonah Hill, Danny McBride, Michael Cera, Emma Watson og fleira gott og fyndið fólk er í góðum gír á heimili Francos þegar miklar hamfarir dynja yfir. Los Angeles lamast og úti fyrir ríkir alls herjar ringulreið en partífólkið lokar sig af heima hjá Franco og reynir að sleppa undan hörmungunum. Þetta reynist þó skammaóður vermir þar sem innilokunarkennd og skortur á birgðum gerir fljótt vart við sig og þá er ekki annað til ráða en að stíga út í hinn hrunda heim og mæta örlögunum. Og þá fyrst reynir á vináttubönd fyndna og fræga fólksins. Aðrir miðlar: Imdb. 8,0, Rotten Tomatoes: 83%, Metacritic: 67%  fRumsýnd This is The end Heimsendapartí grínara Janes Franco, Jonah Hill, Seth Rogen og fleiri komast í hann krappan þegar heimsendir skellur á í miðju partíi. einungis unnið úr safa ungra grænna kókoshneta himneskt.is FARGO (16) LAU: 20:00 bAnAnAs (12) sUn: 20:00 sKÓLAnEMAR: 25% AFsLáttUR GEGn FRAMvísUn sKíRtEinis! MEÐ STUÐNINGI REYKJAVÍKURBORGAR & KVIKMYNDAMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS - MIÐASALA: 412 7711 wEEKEnd (16) 5 - 11 JÚLí: 18:00 - 20:00 - 22:00 White House Down er fín spennumynd sem líður sjálfsagt fyrir að örfáir mánuðir eru liðnir síðan Gerard Butler bjargaði forseta Bandaríkjanna þegar illmenni gerðu atlögu að forsetabústaðnum. Þá er ekki síður sér- kennilegt við þessa mynd að hún er í ótal stór- og smáatriðum eiginlega nákvæmlega eins og Die Hard frá 1988. Nú er bara Chann- ing Tatum í hvíta hlýrabolnum í stað Bruce Willis en ungi maðurinn þarf varla að gera neitt meira en að mæta, vera sætur og sýna stælta upphandleggsvöðva. Willis hafði eitthvað annað og meira á sínum tíma enda Die Hard með betri spennu- myndum síðustu áratuga. White House Down er þó fín fyrir sinn hatt og henni til hróss má segja að manni leiðist ekki eitt augnablik eftir að hryðjuverkamennirnir láta til skarar skríða og leggja Hvíta húsið undir sig. Roland Emmerich (Indepenence Day) getur verið ágætur í spennunni en er dálítið veikur fyrir amerískri þjóðernisvellu og smyr henni hér vel og vandlega utan á sprengjukökuna sína. White House Down er yfirgengileg að öllu leyti. Í væmninni, þjóðrembunni, hasarnum, fjölda drepinna og fokdýrum tæknibrellum þar sem bílum, þyrlum, byggingum og öllu þar á milli er rústað með tilþrifum. Og barasta ekkert út á það að setja og þeir sem kunna að meta svona lagað hljóta að fara sáttir út eftir að Tatum og Jamie Foxx, í hlutverki forseta Bandaríkjanna, hafa lokið sér af. –ÞÞ  BíódómuR: WhiTe house doWn  Die Hard í Hvíta húsinu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.