Fréttatíminn


Fréttatíminn - 05.07.2013, Blaðsíða 10

Fréttatíminn - 05.07.2013, Blaðsíða 10
Í byrjun árs 2012 voru nokkrir grunnskól-ar í Reykjavík sameinaðir í hagræðingar-skyni. Meðal þeirra voru Hvassaleitis- og Álftamýrarskólar en sameinaður skóli ber nú heitið Háaleitisskóli. Með sameiningunni var áætlað að spara þrjátíu og tvær milljónir á ári en samkvæmt upplýsingum frá Bjarna Brynj- ólfssyni, upplýsingastjóra Reykjavíkurborgar, var enginn sparnaður á síðasta ári vegna greiðslu biðlauna. „Hins vegar er áætlað að sparnaður af sameiningunni verði þrjátíu og tvær milljónir á ári þegar tillagan kemur til framkvæmda að fullu,“ segir hann. Bjarni segir það alltaf taka nokkurn tíma að ná fram sparnaði vegna biðlaunaréttar og kostnaðar sem til fellur. Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, sem á sæti á Skóla- og frí- stundaráði Reykjavíkurborgar hefur ítrekað sótt um sundurliðun á sparnaði við samein- inguna en ekki fengið og telur hún ljóst að áætlaður sparnaður hafi ekki náðst. Þorbjörg bendir á að í ársreikningi borgarinnar komi fram að halli undir liðnum annar rekstrar- kostnaður grunnskóla sé 1,2 milljarðar sem sé 14 prósent yfir fjárheimildum. „Þessi halli sýnir að það var óðs manns æði að fara í þessar sameiningar. Betra hefði verið að rýna í annan kostnað grunnskóla.“ Þorbjörg telur með ólíkindum að ekki sé minnst á afrakstur hagræðingarinnar í ársreikningi borgarinnar. Eftir sameiningu Hvassaleitis- og Álfta- mýrarskóla er ein yfirstjórn og var efsta stig Hvassaleitisskóla, áttundi til tíundi bekkur, lagt niður. Elstu nemendurnir hafa val um að halda námi sínu áfram í hinum samein- aða Háaleitisskóla eða í Réttarholtsskóla en hingað til hefur mikill meirihluti þeirra kosið Réttarholtsskóla. Töluverð óánægja var með- al foreldra og nemenda á sínum tíma um sam- eininguna, meðal annars vegna þess að sama hvorn skólann nemendur veldu myndu þeir þurfa að ganga yfir þungar umferðargötur. Á leið sinni í Áltamýrardeild Háaleitisskóla þyrftu nemendur að fara yfir Miklu- braut en á leið sinni í Réttarholts- skóla yfir Grensásveg. Gunnar Alexander Ólafs- son, formaður foreldrafélags hins nýja Háaleitisskóla telur almenna og vaxandi sátt ríkja meðal foreldra með sameininguna þótt enn sé óánægja meðal hluta foreldra barna í starfs- stöðinni í Hvassaleiti. Hann segir vissulega óvenjulegt að mikill meirihluti eldri nem- enda velji að fara í annan skóla en unglingadeild Háaleitis- skóla sem er staðsett í starfstöðinni í Álftamýri en að um val unglinganna og foreldranna sé að ræða. Gunnar telur að sú staða breytist þegar fram líði stundir og að fleiri börn úr Hvassaleiti muni halda námi sínu áfram í unglingadeild Háaleitis- skóla. Gunnar leggur áherslu á að betur hefði mátt standa að sameiningu skólans, en að nú þurfi að horfa fram á veginn. Háaleitisskóli sé öfl- ugur skóli sem hafi innan sinna raða öflugt starfsfólk, sem hafi trú á nýja skólanum og sé tilbúið að takast á við nýjar áherslur. Almennt treysti foreldrar skólayfirvöldum og nýr skólastjóri hefji störf við skólann í haust. Þá hafi nánast engir kennarar hætt vegna sameiningarinn- ar, þannig að skólinn búi að mikilli fagþekk- ingu sem muni nýtast þegar fram í sækir. Eftir sameininguna stendur hluti húsnæðis Hvassaleitisskóla auður en síðastliðinn vetur var það nýtt fyrir nemendur Breiðagerðis- skóla vegna endurbóta þar. Samkvæmt upp- lýsingum frá Reykjavíkurborg kemur fram að skili skóla- og frístundasvið húsnæðinu til skrifstofu eigna- og atvinnuþróunar muni hún finna önnur not fyrir það. Einnig að til greina komi að leigja húsnæðið þriðja aðila en þó aðeins undir starfsemi sem samræmist grunnskólastarfi. Dagný Hulda Erlendsdóttir dagnyhulda@frettatiminn.is  Skólamál Sameiningar grunnSkóla Í árSbyrjun 2012 Enginn ávinningur af umdeildri sameiningu Með sameiningu Hvassaleitis- og Álftamýrarskóla var áætlað að spara 32 millj- ónir á ári en fyrsta árið var enginn sparnaður vegna greiðslu biðlauna. Í árs- reikningi borgarinnar fyrir síðasta ár kemur fram að halli undir liðnum „annar rekstrarkostnaður grunnskóla“ hafi verið 1,2 milljarðar og telur Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, það sýna að sparnaður af sam- einingum grunnskóla í byrjun árs 2012 hafi verið lítill og að nær hefði verið að rýna í annan kostnað grunnskóla. Þorbjörg Helga Vigfúsdótt- ir, fulltrúi Sjálfstæð- isflokks í Skóla- og frístundaráði Reykjavíkurborg- ar. Ljósmynd/Hari. Hluti Hvassaleitisskóla stendur nú auður eftir að kennslu 8. til 10. bekkjar var hætt. Ljósmynd/Hari. 10 fréttir Helgin 5.-7. júlí 2013
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.