Fréttatíminn - 05.07.2013, Síða 42
42 heilsa Helgin 5.-7. júlí 2013
HEYRNARTÆKNI EINKAREKIN HEYRNARTÆKJASTÖÐ
S kert heyrn er gríðarlega al-gengt vandamál. Samkvæmt upplýsingum frá Alþjóða
heilbrigðismálastofnuninni er
heyrn þriðja hvers einstaklings 65
ára og eldri skert og fer tíðnin hratt
vaxandi með hækkandi aldri. Anna
Linda segir að þrátt fyrir hversu al-
gegnt vandamálið sé sýni erlendar
rannsóknir að það taki einstakling
með skerta heyrn að meðaltali um
5-7 ár að leita sér hjálpar og sumir
gera það jafnvel aldrei.
Margskonar afsakanir
Að sögn Önnu Lindu er oft erfitt
að henda reiður á því hver raun-
veruleg ástæða þess sé að fólk leiti
sér ekki aðstoðar fyrr, en eflaust
spili margt þar inn í. „Margir muna
eftir gömlum ættingja eða vini sem
átti heyrnartæki sem endaði ofan
í skúffu. Aðrir telja sér trú um að
þeir heyri bara það sem þeir vilji
og þurfa að heyra. Síðan geti hópur
fólks ekki hugsað sér að setja upp
heyrnartæki því það tengi notkun
þeirra eingöngu við eldra fólk.“
Anna Linda segir að vissulega sé
til fjöldinn allur af afsökunum fyrir
því að leita sér ekki hjálpar.
– En er nokkuð varasamt að bíða
með að fá sér heyrnartæki?
Oft erfitt að átta sig á því
hverju maður missir af
„Heyrnin er eitt af okkar mikilvæg-
ustu skynfærum og hjálpar okkur
að eiga nauðsynleg samskipti við
annað fólk. Það að geta tjáð sig,
heyrt í öðrum og skynjað umhverf-
ishljóð er gríðarlega mikilvægt.
Við sem heyrum vel leiðum sjald-
an hugann að því hverju sá sem er
með skerta heyrn missir af. Flest-
um þykir sjálfsagt að geta átt sam-
skipti við aðra, jafnvel í krefjandi
aðstæðum, heyrt skýrt og vel í sjón-
varpinu án þess að hljóðstyrkurinn
æri aðra, notið þess að fara í leikhús
eða á aðrar samkomur án þess að
þurfa að sitja á fremsta bekk og svo
mætti áfram telja.“
Heyra ekki nógu skýrt
Anna Linda segir einkenni heyrn-
arskerðingar geti verið margvís-
leg, en flestum sé það sameiginlegt
að eiga erfitt með að greina talmál
nógu skýrt í fjölmenni og klið. Þar
sem heyrn skerðist oft á löngum
tíma átta margir sig ekki á vanda-
málinu. „Það verður ekki eins gam-
an að fara í boð þar sem margir eru
saman komnir vegna erfiðleika við
að heyra.“ Anna Linda segir marga
upplifa þreytu í slíkum aðstæðum
og jafnvel pirring. „Smám saman
getur skert heyrn leitt til þess að
viðkomandi dregur sig í hlé.“ Anna
Linda nefnir að skert heyrn hafi
ekki bara áhrif á þann sem heyrir
illa, heldur einnig fólkið sem við-
komandi umgengst. „Öll sam-
skipti verða smám saman hægari
og meira þreytandi vegna sífelldra
endurtekninga þess sem sagt er.
Misheyrn og misskilningur verða
einnig algengari.“
Tengsl skertrar heyrnar og
vitrænnar hrörnunar
Í rannsókn sem birtist í banda-
ríska læknablaðinu JAMA fyrr á
þessu ári voru skoðuð tengsl milli
heyrnarskerðingar og vitrænnar
hrörnunar hjá eldri einstakling-
um1. Rannsóknin leiddi í ljós að
vitræn hrörnun var marktækt
meiri og hraðari hjá þeim sem voru
með skerta heyrn en hjá þeim sem
voru með eðlilega heyrn í upphafi
rannsóknar. „Þetta eru vissulega
mjög áhugaverðar niðurstöður en
okkur skortir frekari rannsóknir á
því hvort notkun heyrnartækja geti
hugsanlega hægt á þessari hrörn-
un,“ segir Anna Linda. Þó má vera
ljóst að heyrnartæki bæta vissu-
lega heyrn og geta haft veruleg já-
kvæð áhrif á lífsgæði. „Það borgar
sig sjaldnast að bíða of lengi með
að fá sér heyrnartæki. Það getur
leitt til þess að erfiðara verður
að venjast því að heyra hljóð sem
viðkomandi hefur ekki heyrt svo
árum skipti en einnig er mögulegt
að færni til að handleika heyrnar-
tækin sé ekki lengur til staðar þeg-
ar á hólminn er komið og ákvörðun
um að bæta heyrn er tekin.“
Nánari upplýsingar má finna á
www.heyrnartækni.is
1 Frank R. Lin et al. Hearing Loss and Cognitive
Decline in Older Adults. JAMA Intern Med.
2013;173(4):293-299.
KYNNING
Skert heyrn skapar vandamál
Anna Linda Guðmundsdóttir, hjúkrunarfræðingur hjá Heyrnartækni í Glæsibæ segir skerta
heyrn oft falið vandamál sem margir átti sig ekki á eða leiði hjá sér
Margir
bíða of
lengi með
að leita
sér hjálpar
og fá sér
heyrnar-
tæki.
Galieve Cool Mint mixtúra, dreifa /skammtapoki / Galieve Peppermint tuggutöflur.. Innihaldslýsing:
Hver 10 ml skammtur af Galieve Cool Mint inniheldur 500 mg af natríumalgínati, 267 mg af
natríumhýdrógenkarbónati og 160 mg af kalsíumkarbónati. Hver tafla Galieve Peppermint
inniheldur: 250 mg af natríumalgínati, 133,5 mg af natríumhýdrógenkarbónati og 80 mg af
kalsíumkarbónati. Ábendingar: Meðferð við einkennum maga- og vélindabakflæðis, svo sem nábít
(sýrubakflæði), brjóstsviða og meltingartruflunum (tengdum bakflæði), t.d. eftir máltíðir eða á
meðgöngu. Skammtar og lyfjagjöf: Galieve Cool Mint mixtúra: Til inntöku. Fullorðnir og börn 12 ára
og eldri: 10-20 ml (eða 1-2 skammtapokar) eftir máltíðir og þegar farið er að sofa (allt að fjórum
sinnum á dag). Galieve Peppermint tuggutöflur: Til inntöku, eftir að hafa verið tuggin vandlega.
Fullorðnir og börn 12 ára og eldri: Tvær til fjórar töflur eftir máltíðir og þegar farið er að sofa (allt að
fjórum sinnum á sólarhring). Frábendingar: Ekki má nota lyfið hjá sjúklingum með þekkt ofnæmi fyrir
virku efnunum eða einhverju hjálparefnanna, eða ef grunur er um slíkt. Sérstök varnaðarorð og
varúðarreglur við notkun: Galieve inniheldur natríum. Þetta þarf að hafa í huga þegar þörf er á mjög
saltsnauðu fæði, t.d. í sumum tilvikum hjartabilunar og skerðingar á nýrnastarfsemi. Galieve
inniheldur kalsíumkarbónat. Gæta þarf varúðar við meðferð sjúklinga með blóðkalsíumhækkun,
nýrnakölkun og endurtekna nýrnasteina sem innihalda kalsíum. Verkun er hugsanlega skert hjá
sjúklingum með mjög lága þéttni magasýru. Ef einkenni batna ekki eftir sjö daga, skal endurmeta
klínískt ástand. Yfirleitt er ekki mælt með meðferð hjá börnum yngri en 12 ára, nema samkvæmt
læknisráði. Galieve Cool Mint mixtúra/skammtapokar inniheldur metýlparahýdroxýbenzóat (E218)
og própýlparahýdroxýbenzóat (E216) sem geta valdið ofnæmisviðbrögðum (hugsanlega
síðbúnum). Galieve Peppermint tuggutöflur má ekki gefa sjúklingum með fenýlketónmigu, þar sem
þær innihalda aspartam.. Lesið leiðbeiningar á umbúðum og í fylgiseðli fyrir notkun. Geymið þar
sem börn hvorki ná til né sjá. Markaðsleyfishafi: Reckitt Benckiser Healthcare A/S. Umboð á Íslandi:
Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ.
1. V Strugala er. Al. The journal of international medical research, vol 38 (2010) A randomized,
Controlled, Crossover trial to Investigae Times of onset of the perception of soothing and cooling
by Over-the-Counter Heartburn Treatments.
2. B.Chevrel, MD. Journal of International Medical Research, vol 8 (1980) A comparative Cross-over
Study on the Treatment of heartburn and Epigastric Pain; Liquid Gaviscone and Magnesium-
Aluminum Antacid Gel.
Ert þú með
brjóstsviða?
• Dregur úr brjóstsviða á 3 mínútum 1
• Virkar í allt að 4 tíma 2
Mixtúra Cool Mint 300 ml
Mixtúra með Cool Mint bragði og lykt.
Galieve Peppermint
Tuggutöflur með piparmintu bragði