Fréttatíminn - 19.07.2013, Blaðsíða 14
L yftingarnar eru orðnar frekar stór hluti af lífinu,“ segir Arnhildur Anna
Árnadóttir, 21 árs Seltirningur.
Arnhildur og vinkona hennar,
Fanney Hauksdóttir, hafa vakið
athygli fyrir góðan árangur
í kraftlyftingum undanfarið.
Arnhildur setti fyrir skemmstu
Íslandsmet í hnébeygju unglinga
og Fanney á Íslandsmetið í bekk-
pressu. Báðar hafa þær náð góð-
um árangri á mótum erlendis.
Tekur 115 í bekk
Fanney byrjaði að æfa kraftlyft-
ingar fyrir tveimur árum þegar
einkaþjálfarinn hennar plataði
hana til að taka þátt í bekk-
pressumóti. Fanneyju gekk vel
á mótinu og féll í kjölfarið fyrir
sportinu. Hún hefur náð eftir-
tektarverðum árangri á þessum
stutta tíma, hefur mest lyft 115
kílóum í bekkpressu sem er ekki
amalegt hjá manneskju sem er
162 á hæð og 58 kíló. Flestir
karlmenn eiga ekki roð í hana.
Fanney hefur nær alfarið ein-
beitt sér að bekkpressu en að
mestu látið hinar greinarnar
vera. „Ég er bara „bekkari“,“
segir hún ákveðið. Það hefur
reynst henni ágætlega því fyrir
skemmstu varð hún í fjórða sæti
á HM unglinga í bekkpressu
í Litháen. „Þetta var stórt og
skemmtilegt mót. Það tók mig
ekki nema tíu mínútur að keppa,
komin alla leið til Litháen en það
var alveg þess virði,“ segir hún.
Og markmiðið er alveg skýrt.
„Ég rétt missti af þriðja sætinu
og er ákveðin í að komast á verð-
launapall á næsta ári.“
Hvaðan koma allir þessir
kraftar?
„Ég var lengi í fimleikum og
ég held að það sé eitthvað undir-
liggjandi þaðan sem hjálpar mér.
Fimleikarnir eru góður grunnur
fyrir hvað sem er.“
Sterkari en strákarnir
Vinkonurnar Arnhildur Anna Árnadóttir og Fanney Hauksdóttir æfa kraftlyftingar og hafa náð eftirtektarverðum
árangri. Svo góðum reyndar að margir karlmenn geta aðeins látið sig dreyma um að lyfta þeim þyngdum sem þær
setja á stangirnar. Hver myndi annars ekki segja stoltur frá því að geta lyft 115 kílóum í bekkpressu?
Fyrirmynd Búra er hinn danski Havartí-rjómaostur sem
athafnakonan Hanne Nielsen þróaði um miðja nítjándu öld
á býli sínu „Havarthigaard“ fyrir norðan Kaupmannahöfn.
Framleiðsla á Búra hófst árið 1980 á Húsavík en í
dag fer framleiðslan fram á Akureyri. Mjúkur og
smjörkenndur ostur með votti af ávaxtasætu, ljúfum
sítrustóni í lokin og langvarandi eftirbragði. Rjómakennd
einkenni ostins parast vel með sætum, örlítið sýrðum
ávöxtum, berjum og kryddsultum.
BÚRI
LJÚFUR
www.odalsostar.is
Arnhildur tekur 160
kíló í réttstöðulyftu.
Hún æfir fjórum til
fimm sinnum í viku,
þrjá tíma í senn.
Ljósmyndir/Hari
14 viðtal Helgin 19.-21. júlí 2013