Fréttatíminn - 19.07.2013, Side 24
Nýja platan
verður
með aðeins
nýjum
áherslum en
við höldum
áfram að
vera við
sjálf, með
okkar eigin
stíl.
V ið höfum verið ótrúlega dug-leg að fylgja plötunni eftir, það gengur vel og við erum rosa-
lega ánægð. Nú erum við að leggja
drög að næstu plötu og erum að vinna
í henni hægt og rólega,“ segir Gígja
söngkona og lagasmiður hljómsveitar-
innar Ylju sem gaf út sína fyrstu plötu
í nóvember í fyrra „Ylja.“
Viðtökurnar við fyrstu plötunni seg-
ir hún að hafi verið góðar og að platan
hafi verið að seljast vel. „Við höfum
verið að selja plötur á tónleikum líka
og sérstaklega til útlendinga sem hafa
veitt okkur mjög góðar viðtökur þó
svo að við syngjum bara á íslensku,“
segir Gígja.
„Nýja platan verður með aðeins
nýjum áherslum en við höldum áfram
að vera við sjálf, með okkar eigin
stíl. Við erum að hugsa um að semja
svolítið á ensku og prófa okkur áfram
í því. Við erum þó ekki að fara breyta
alveg yfir í ensku heldur hafa þetta
svolítið blandað. Það verður kannski
aðeins meira stuð. Við erum að pæla
í alls konar hlutum enn sem komið er
og það er allt óráðið,“ segir Gígja.
Upphaf Ylju hófst hjá vinkonunum
Gígju og Bjarteyju.
„Ég og Bjartey byrjuðum með
einhverju dútli, spiluðum á gítar og
sungum saman en við höfðum kynnst
út frá sameiginlegum áhuga á tónlist.
Við höfum verið að þróa okkur áfram
síðan,“ segir Gígja.
Meðlimir hljómsveitarinnar eru nú
orðnir fimm og eru gítar-, bassa- og
trommuleikari komnir í hópinn. ,,Við
erum ekki með hefðbundið trommu-
sett heldur ásláttarhljóðfæri sem gerir
ótrúlega mikið fyrir okkur. Við vorum
alltaf hrædd við að bæta því við en ég
held að við séum himinlifandi með
þessa ákvörðun,“ segir Gígja.
Fyrstu plötuna segir hún að vinkon-
urnar hafi átt stærstan hluta í eða átta
af tíu lögum. „Þetta voru lög sem við
höfðum samið í gegnum árin og við
tókum það sem okkur fannst best.
Með tilkomu Smára Tarfs Jósepssonar
breyttist þetta svolítið og hann sá
mikið um útsetninguna. Næstu plötu
ætlum við að reyna að gera meira í
sameiningu,“ segir Gígja.
Plötuna segir Gígja að hafi verið
unna með hefðbundnum hætti þar
sem tekið var upp „life“ í stað þess
að taka upp í sitt hvoru lagi. „Okkur
fannst það skila bestum árangri fyrir
okkur, það vantaði eitthvert „element“
þegar upptakan var í sitt hvoru lagi,“
segir Gígja.
Ylja hefur verið að spila um landið
í sumar en mun einnig spila á há-
tíðinni Innipúkanum í Reykjavík um
verslunarmannahelgina. Einnig mun
hljómsveitin spila á Vegamótum í
Reykjavík í miðri viku í sumar. „Við
erum tiltölulega nýlega búin að gera
tónlistarmyndband við lag sem heitir
„Út“ og er komið á YouTube, síðan er
í vinnslu myndband sem er bráðlega
að fara að verða tilbúið við annað lag,“
segir Gígja.
Hljómsveitinni Ylju skipa Bjartey
Sveinsdóttir (söngur og gítar), Guðný
Gígja Skjaldardóttir (söngur og gítar),
Smári Tarfur Jósepsson (slide-gu-
itar) og Valgarð Hrafnsson (bassi)
og Maggi Magg (trommur). Ylja mun
spila næsta fimmtudag í Faktorý
portinu í tilefni af alþjóðlega UN Wom-
an deginum og svo mun hún spila
sunnudeginum eftirá KeX en þá mun
tónlistarkonan Þórunn Antonía halda
upp á afmælið sitt og þá verða haldnir
styrktartónleikar fyrir Kvennaathvarf-
ið.
María Elísabet Pallé
maria@frettatiminn.is
Meðlimir hljómsveitarinnar Ylju: Maggi Magg, Bjartey, Smári Tarfur, Gígja og Valgarð fyrir æfingu á Faktorý. Mynd Teitur
ylja leggur drög að næstu plötu
Útlendingarnir
hrifnir af
íslenskunni
Hljómsveitin Ylja gaf út sína fyrstu plötu „Ylju“ síðastliðinn vetur. Ylja varð til
þegar tvær vinkonur byrjuðu að semja lög og spila á gítar en nú eru hljóm-
sveitarmeðlimir orðnir fimm og eru þau byrjuð að vinna að næstu plötu. Ylja
mun spila á Faktorý portinu næstkomandi fimmtudag en tónleikar verða
haldnir þar í tilefni af alþjóðlega UN Woman deginum.
Krumma
112 Reykjavík
587-8700
www.krumma.is
Öryggi - Gæði - Leikgildi
LikeaBike
Sandkassasett
Winter þríhjól
Berg Grafa
Berg trampolín
Myndatexti:
24 viðtal Helgin 19.-21. júlí 2013