Fréttatíminn - 19.07.2013, Síða 32
Blå Band bollasúpur - hrein snilld
EKKERT
MSG
Blå Band bollasúpurnar eru handhæg og bragðgóð næring sem gott er að grípa til. Þær innihalda ekkert MSG,
engar transfitur og aðeins náttúruleg bragð- og litarefni. Fæst í verslunum Hagkaups og Bónus.
menning iðnaðarsafnið á akureyri varðveitir skip frá síldarárunum
Þ
að er gríðar-
legur góður
andi í skipinu
og það eru
tvær áhafnir,
ein siglandi
og önnur spilandi og þær
harmónera algjörlega
saman,“ segir Víðir Bene-
diktsson, skipstjóri á Húna
II, en skipið hefur siglt í
kringum landið frá 3. júlí
og spilandi áhöfn Húna II
haldið tónleika um allt land
til styrktar björgunarsveit-
unum í landinu. „Því lengra
sem líður á partíið því mun
skemmtilegra verður það,
maður kynnist fólkinu
betur, talar meira við það
og húmorinn verður öflugri
eftir því sem liður á,“ segir
Víðir.
„Það voru hjón í Hafnar-
firði, Þorvaldur Skaptason
og kona hans, sem tóku
Húna II í fóstur eftir að hætt
var að nota hann sem fiski-
skip en báturinn var á leið-
inni í úreldingu. Þau gerðu
hann út í Hvalaskoðun á
Skagaströnd og í Hafnar-
firði og þegar þau sáu að
reksturinn var ekki að gera
sig seldu þau Hollvinafélag-
inu eða Iðnaðarsafninu á
Akureyri bátinn – sem tóku
Húna II í fóstur,“ segir Víðir.
Segir Víðir að síðan
hafi menn eytt þúsundum
vinnustunda í sjálfboða-
vinnu við að endurnýja og
fríska upp á skipið. „Það er
kjarnahópur í félagsskap
Hollvinafélagsins, svona
10 til 12 manns sem mest
hefur mætt á og hefur hann
séð um viðhaldsvinnu dag
og nótt. Þetta er bara gert
til þess að varðveita sögu
tréskipaútgerðar á Íslandi,“
segir Víðir.
Víðir segir að menn hafi
vaknað við vondan draum
og hafi verið hræddir um
að hafa gleymt varðveislu
á strandmenningunni sem
aðrar þjóðir, eins og Danir,
Norðmenn og Færeyingar,
hafa viðhaldið. „Við Íslend-
ingar erum svo nýjunga-
gjarnir, við kveikjum alltaf í
þessu gamla þegar eitthvað
nýtt kemur,“ segir Víðir.
„Skipið var byggt sem
síldarskip á síldarárunum
og varð síðar vertíðarbátur
á Höfn í Hornafirði og svo
þegar hann úreltist sem
síldarbátur var hann not-
aður sem vertíðarbátur á
þorskanet. Þegar hann var
orðinn barn síns tíma var
hann verndaður eins og
hver annar minjagripur í
stað þess að vera brenndur.
Besta leiðin til að varðveita
skip er að nota þau eins og
við erum að gera núna í
stað þess að draga þau upp
Þúsundir vinnustunda í sjálfboða-
vinnu til að varðveita Húna II
Spilandi og siglandi áhöfn Húna II hefur á ferð sinni í kringum landið á síðustu vikum verið að safna fjármunum fyrir björgunarsveitirnar í
landinu. Gríðarleg ánægja er með verkefnið hjá björgunarsveitunum og söfnunin hefur gengið vel, að sögn framkvæmdastjóra Landsbjargar.
Húni II var byggður á síldarárunum og var síldar- og vertíðarbátur. Iðnaðarsafnið á Akureyri keypti bátinn en fámennur hópur
hefur síðan endurnýjað hann í sjálfboðavinnu. Ljósmynd: Halldór Sveinbjörnsson
32 viðtal Helgin 19.-21. júlí 2013