Fréttatíminn


Fréttatíminn - 19.07.2013, Blaðsíða 48

Fréttatíminn - 19.07.2013, Blaðsíða 48
G uðbjörg Gissurardóttir gefur út tímaritið Í boði náttúrunnar þar sem fjallað er um flest það sem hún hefur áhuga á; umhverfið, náttúruna og grænan og heilbrigðan lífsstíl. Hún vildi sinna börnum sérstaklega og réðst því í útgáfu tímarits fyrir krakka á öllum aldri. Hún segir hugmyndir sínar um heilbrigðan lífsstíl einnig endurspeglast í krakka- blaðinu. „Þetta er blað sem ég er búin að ganga með í maganum eiginlega í þrjú ár,“ segir Guðbjörg sem sá í tímaritaútgáfu tækifæri til þess að ná öllum áhugamálum sínum saman á einum stað. „Börnin voru það eina sem ég náði einhvern veginn ekki að troða þarna inn og þá var náttúrlega ekkert annað að gera í stöðunni en að koma með sérblað fyrir börnin.“ Guðbjörg segir það þó hafa tekið sig þrjú ár að gera hugmyndina að Krakkalökkum að veruleika. „Þetta er búinn að vera gamall draumur og ég tók loksins af skarið.“ Þótt Guðbjörg leggi upp með að blaðið eigi að vera sígilt og eigulegt þá stílar hún dálítið inn á sumarið í efnistökum. „Þetta er svolítið hugsað fyrir sumarið og kemur því út núna. Blaðið er upplagt til að taka með sér í fríið en í því eru alls konar hugmyndir að hlutum sem hægt er að gera og ýmis skemmtilegheit í bland. Hugmyndin er samt að blaðið sé tíma- laust. Það er prentað á vandaðan pappír og er eigulegt. Krakkarnir eiga að geta átt þetta blað inni í herbergi eða uppi í hillu og gripið til þess hvenær sem er. Þess vegna næsta sumar. Ég lagði upp með að hafa það svo efnismikið að þú viljir eiga það til þess að grípa í.“ Guðbjörg segist oft spurð að því hvort í blaðinu séu þrautir, krossgátur og þvíum- líkt. „Það er bara eins og það sé það fyrsta sem fólki dettur í hug þegar börn eru ann- ars vegar. Ég svara bara þannig til að blaðið sé akkúrat ekki af því tagi. Það er nóg til af krossgátublöðum, su-doku og hvað þetta heitir allt saman. Þetta blað byggir meira á afþreyingu sem lifir lengur og er frekar ætlað að örva hugmyndaflugið og sköp- unarkraftinn hjá börnum. Auk þess er það líka fræðandi og við leggjum mikið upp úr því að foreldrarnir geti líka haft gaman af þessu.“ Guðbjörg segir að draumurinn sé að halda útgáfu Krakkalakka áfram en þar sem engar auglýsingar eru í blaðinu muni viðtökurnar ráða framhaldinu. „Nú erum við bara að láta virkilega reyna á hvort þetta sé hægt.“ Þórarinn Þórarinsson toti@frettatiminn.is  skálholtsdómkirkja Fimmtíu ára víGsluhátíð um helGina Þriggja daga pílagrímaganga til Skálholts Vegleg viðburðahelgi, útidagskrá, hátíðarmessa og samkoma auk sýningar um aðdraganda byggingar Skálholtskirkju. Fimmtíu ára afmælishátíð Skálholts- dómkirkju verður haldin í Skálholti um helgina, frá föstudegi til sunnu- dags 19. – 21. júlí. Hálf öld er liðin frá vígslu kirkjunnar og afhendingu Skálholtsstaðar til þjóðkirkjunnar. Í tilefni vígsluafmælisins verður veg- leg viðburðahelgi í Skálholti. Hátíðin hefst með kvöldtónleikum í kvöld, föstudag, klukkan 20 með kórasöng. Morgunbænir verða á morgun, laugar- dag klukkan 9 í Skálholti ásamt farar- blessun og ferðabæn í Þingvallakirkju með pílagrímum á leið í Skálholtsdóm- kirkju. Hátíðin verður sett klukkan 12 á tröppum Skálholtsdómkirkju. Þaðan verður gengið til messu að Þorláks- sæti, ef veður leyfir. Geri úrhelli verð- ur messan í kirkjunni. Sýning í Skál- holtsskóla „Hálfrar aldar hátíð“ opnar klukkan 13.15 á laugardag. Hún fjallar um aðdraganda byggingar dómkirkj- unnar. Klukkan 13.30 hefst skákmót í Skálholtsskóla Teflt verður með eft- irgerð af hinum fornu sögualdartafl- mönnum frá Ljóðhúsum á Suðureyjum en þeir eru taldir hafa verið gerðir af Margréti hinni oddhögu í Skálholti á dögum Páls biskups Jónssonar. Guð- mundur G. Þórarinsson flytur inn- gangsorð um líklegan íslenskan upp- runa þeirra. Gestum verður boðið upp á útidag- skrá á laugardeginum. Göngur hefjast klukkan 13.30 en þær eru söguganga, fuglaganga, skólaganga, urtaganga og fornleifafræðsla. Gamlir barnaleikir verða endurvaktir og börnunum gefinn kostur á að prófa fornleifarannsóknir. Við Gestastofu Skáldholts verður úti- markaður með grænmeti beint frá býli og aðrar afurðir úr sveitinni ásamt sölu á kaffi og matarveitingum í Skálholts- skóla. Tónlistarflutningur verður í sam- vinnu við Sumartónleika Skálholtsdóm- kirkju. Klukkan 16.15 á sunnudag verður hátíðarsamkoma. Karl Sigurbjörnsson biskup prédikar. Pílagrímaganga verður frá Stóra-Núpi í Skálholt, frá föstudegi til sunnudags, í tengslum við vígsluafmælið. Í dag, föstu- dag klukkan 16, verður helgistund og fararblessun í Stóra-Núpskirkju. Gengið verður í átt að Hrepphólum með viðkomu á hinum forna kirkjustað Steinsholti. Á laugardag verður lagt af stað klukkan 13 frá Hrepphólakirkju og gengið í Auðs- holt. Á sunnudag klukkan 11 verður haldið frá Auðsholti, pílagrímarnir ferj- aðir yfir Hvítá og síðan gengið í Skálholt. Gangan endar við hátíðarmessu í Skál- holtsdómkirkju sem hefst klukkan 14. Fólk getur slegist með í för hvar og hve- nær sem er, eða verið með alla leið. -jh Svanhildur Halla sýnir í Grósku Svanhildur Halla Haraldsdóttir er ung myndlistarkona sem heldur sýningu á portrettverkum sínum í sal Grósku á Garðatorgi í Garða- bæ (gamla Betrunarhúsið). Sýningin var opnuð í gær, fimmtudag en hún stendur fram á sunnudag. Svanhildur Halla hefur unnið að verkum sínum í sumar á vegum Skapandi sumarstarfa í Garðabæ. Um er að ræða olíu- og vatnslitaverk. Portrettmyndir Svanhildar Höllu hafa vakið verðskuldaða athygli. Myndlistarkonan situr yfir sýningu sinni og vatnslitar jafnvel eitthvað á meðan. Portrettmyndir Svanhildar Höllu hafa vakið athygli. Fimmtíu ára afmælishátíð Skálholts- dómkirkju verður haldin í Skálholti um helgina. Mynd Vefur Skálholts Það er nóg til af krossgátu- blöðum, su-doku og hvað þetta heitir allt saman.  krakkalakkar nýtt tímarit Fyrir börn Þrautalaus fróðleikur Þegar Guðbjörg Gissurardóttir hóf útgáfu tímaritsins Í boði náttúrunnar fann hún vettvang sem náði utan um öll helstu áhugamál hennar og hugðarefni. Hún fann börnum þó ekki stað í blaðinu og fór því að huga að sérstöku tímariti fyrir börn. Fyrsta tölublað Krakkalakka er nú komið út og Guðbjörg vonast til þess að viðtökurnar verði þannig að framhald geti orðið á útgáfunni. Guðbjörg Gissurardóttir segist frekar vilja gefa út fá, vönduð og eiguleg blöð heldur en mörg lakari og vonast til þess að geta haldið útgáfu Krakkalakka áfram. Mynd Teitur 24. MAÍ - 29. JÚNÍ 2013 TVEIR HRAFNAR listhús, Art Gallery Baldursgata 12 101 Reykjavík +354 552 8822 +354 863 6860 +354 863 6885 art@tveirhrafnar.is www.tveirhrafnar.is HULDA HÁKON & JÓN ÓSKAR Opnunartímar 11:00-17:00 miðvikudaga til föstudaga 13:00-16:00 laugardaga og eftir samkomulagi SUMARSÝNING TVEGGJA HRAFNA Davíð Örn Halldórsson Hallgrímur Helgason Hulda Hákon Húbert Nói Jóhannesson Jón Óskar Steinunn Þórarinsdóttir Erró Óli G. Jóhannsson og Kristján Davíðsson Opnunartímar; 11:00-17:00 miðviku-föstudags, 13:00-16:00 laugardaga og eftir samkomulagi. 48 menning Helgin 19.-21. júlí 2013
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.