Fréttatíminn


Fréttatíminn - 08.06.2012, Page 2

Fréttatíminn - 08.06.2012, Page 2
Óskar Hrafn Þorvaldsson oskar@ frettatiminn.is og Sumarjógúrtin frá MS. Kræktu þér í ljúffenga Sumarjógúrt með íslenskum krækiberjum. Tilvalin í útileguna, sumarbústaðinn eða lautarferðina. Sumarið er komið H VÍ TA H Ú SI Ð /S ÍA Tólf nýjar eftirlitsmynda- vélar í miðborgina Borgin hefur keypt tólf eftirlitsmyndavélar í miðborgina fyrir átta milljónir króna. Vélunum fjölgar því frá því sem áður var þegar átta voru settar upp. Stefán Eiríks- son, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, segir að undanfarið hafi einungis þrjár til fjórar virkað. „Það skiptir miklu máli að hafa vélarnar. Þær hafa forvarnargildi og geta skipt miklu máli við rannsóknir,“ segir hann og að nú sé verið að setja þær upp. Samkomulag borgarinnar, Neyðarlínunnar og lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu hljóðar upp á að borgin kaupi vélarnar, Neyðarlínan sjái um uppsetningu og við- hald en lögreglan um vöktun og það að bregðast við þegar við á. Stefán segir þó engan sitja við og fylgjast með frekar en áður – nema við sérstök tækifæri. - gag Mælt með útisundlaug við Sundhöllina Starfshópur skip- aður af borginni leggur til að haldið verði áfram að þróa hugmyndir um útisundlaug við Sundhöllina í Reykjavík, en að þar verði engin líkamsrækt. Hópurinn vill að gömlu búningsklefarnir fái að halda sér en að gerðar verði bætur á aðgengi og nýir búningsklefar settir upp aukalega svo fólk geti valið hvort þeir vilji hátta í gömlu eða nýju aðstöðunni. Hópurinn vill að núverandi byggingarlist Guðjóns Samú- elssonar verði gert hátt undir höfði og að fullt tillit verði tekið til hennar þegar ráðist verði í endurbætur og eða viðbyggingu. Þetta kemur fram í skýrslu sem lögð var fyrir borgarráð í síðustu viku. - gag W OW hefur tekið ákvörð-un um að sameina tvær flugleiðir út sumarið og tvær til viðbótar verða sameinaðar í júní. Tvær flugleiðir voru felldar niður vegna ónægrar sölu. Flug- ferðir á áfangastaðina Stuttgart og Köln í Þýskalandi verða sameinaðar út sumarið en flugferðir á Basel og Lyon eftir þörfum. Þetta staðfestir Baldur Oddur Baldursson, forstjóri WOW. „Jú, þetta eru ákveðin vonbrigði. Við hefðum ekki lagt upp með báð- ar þessar leiðir ef við hefðum ekki haft ekki trú á þeim. Það reyndist ekki rétt mat hjá okkur, ekki hvað varðar júní að minnsta kosti. Reynd- ar er útlit gott með Basel og Lyon eftir júní,“ segir Baldur. „Þegar við ákváðum að fljúga á Köln leit út fyrir að við yrðum einir þangað. Síðan aflýsti Iceland Express flugi sínu á Frankfurt og ákvað að fljúga til Kölnar og þá varð til offramboð á sætum á þessari leið,“ segir Baldur. Hann segir að haft hafi verið sam- band við alla farþega WOW sem orðið hafi fyrir töfum vegna þess- ara breytinga. „WOW keypti einnig flugmiða fyrir alla þá farþega sem bókað áttu í flugferðum sem aflýst var með öðrum flugfélögum annað hvort á annan áfangastað WOW eða alla leið. Okkur bar ekki skylda til þess en við gerðum það samt til þess að koma á móts við þau óþæg- indi sem farþegar urðu fyrir,“ segir hann. Baldur vill ekki gefa upp hversu mörg sæti hafa verið seld í flug þeirra að meðaltali. Mestur fjöldi til þessa var hins vegar í flug til Alic- ante þann 6. júní þegar tíu sæti vant- aði upp á að 168 sæta vél félagsins væri full. „Sala flugmiða er í fullu samræmi við væntingar okkar og ánægjulegt að dagleg sala hefur þrefaldast eftir að við hófum að fljúga. Miðað við sölutölur og þær móttökur sem við höfum fengið er ljóst að við erum komnir til að vera,“ segir Baldur. Nokkrar tafir hafa einnig verið í innritun farþega WOW í Leifs- stöð þar sem innritunarkerfi Kefla- vík Airport Sevices, félagsins sem þjónustar WOW í Leifsstöð, er ekki komið í gagnið. Fyrir vikið þarf að handskrifa öll brottfararspjöld og handinnrita alla farþega. Seinkun hefur verið í helmingi fluga, sam- kvæmt upplýsingum frá vefmiðl- inum Túristi.is. Alls var seinkunin 271 mínúta en að sögn Baldurs er lengsta seinkunin 65 mínútur. „Það er að sjálfsögðu stefna okkar að vera mjög stundvís. Miðað við það að við erum að hefja starfsemi tel ég þetta nokkuð góðan árangur. Það lenda öll flugfélög í seinkunum og það sem skiptir einna mestu máli er hvernig komið er fram við farþegana þegar um seinkun er að ræða. Hingað til hefur okkur tekist mjög vel upp og oftar en ekki hafa flugmenn okkar náð að vinna upp seinar brottfarir og hafa vélar okkar því lent á réttum tíma á áfangastað,“ segir hann. Sigríður Dögg Auðunsdóttir sigridur@frettatiminn.is Persónuvernd hefur fellt þann úrskurð að lækni hafi verið óheimilt að skoða sjúkraskrá sjúklings í tengslum við pers- ónulegt mál. Um er að ræða mál þar sem læknirinn Magnús Kolbeinsson fór inn í sjúkraskrá Páls Sverrissonar á Heilbrigð- isstofnun Austurlands og notaði síðan upp- lýsingar úr skránni í vörn sinni í máli fyrir siðanefnd lækna þar sem áðurnefndur Páll var vitni. Siðanefnd lækna birti upp- lýsingar Magnúsar í úrskurði sínum og hafði Persónuvernd þegar úrskurðað þann gjörning andstæðan lögum. Í úrskurð- inum segir að óheimilt sé að heilbrigðis- starfsmenn á Heilbrigðisstofnun Austur- lands noti þann aðgang sem þeir hafa að sjúkraskrám vegna ágreiningsmála sem þeir sjálfir eiga persónulega aðild að og ekki varða starfsemi stofnunarinnar. Úrskurður Persónuverndar nær þó ekki til læknisins sjálfs heldur eingöngu til ábyrðaraðila sjúkraskrárinnar – í þessu tilfelli Heilbrigðisstofnunar Austurlands sem þarf að bæta verklag sitt. Landlæknir hafði áður áminnt Magnús um að sýna aðgát í meðferð gagna úr sjúkraskrá. Það dugði ekki Páli Sverrissyni en hann hefur viljað að Landlæknir vísi málinu til lög- reglu í krafti 22. greinar laga um meðferð sjúkraskrár. Páll sagði í viðtali við Frétta- tímann ekki alls fyrir löngu að landlæknir væri með allt niður um sig í þessu máli. Velferðarráðuneytið hefur átt í bréfaskrift- um við embætti landlæknis vegna málsins auk þess sem Páll hyggst stefna nokkrum aðilum málsins fyrir dóm. -óhþ  Persónuvernd uPPlýsingar úr sjúkraskrám Læknir mátti ekki nota sjúkra- skrá vegna persónulegra deilna Persónuvernd segir það ekki leyfilegt fyrir lækni að fara í sjúkraskrá Páls Sverrissonar í eigin þágu. Ljósmynd/Hari  Flugrekstur erFiðleikar í byrjun hjá nýju FlugFélagi Tafir í innritun, samein- ingar og aflýsingar ferða WOW air hefur neyðst til að fella niður ferðir og sameina flugleiðir vegna slæmrar sölu á nokkr- um flugleiðum. Forstjórinn segir þó sölu flugmiða í fullu samræmi við væntingar og að félagið sé komið til að vera. Baldur Oddur Baldursson, forstjóri WOW, Matthías Imsland, rekstrarstjóri og Skúli Mogensen stjórnarformaður. WOW hefur tekið ákvörðun að sameina tvær flugferðir sökum slæmrar sölu. Tveir þriðju sem sóttu um þiggja vinnuna Aðeins fimm hundruð af þeim átta hundruð ungmennum 18 ára og eldri sem sóttu um sumarstörf hjá Kópavogsbæ hafa þegið vinnu sem í boði er og telur bærinn að það bendi til þess að atvin- nuástand ungs fólks hafi batnað frá síðasta sumri. Þriðjungur umsækjenda hverfur því annað. - gag 2 fréttir Helgin 8.-10. júní 2012

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.