Fréttatíminn - 08.06.2012, Blaðsíða 52
44 sumar og matur Helgin 8.-10. júní 2012
Skagfirskur sveitabiti
H
VÍ
TA
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
Mýksti brauðosturinn
á markaðnum,
fáanlegur 26% og 17%.
Við mælum með:
N ú eru allir búnir að dusta rykinu af gömlu góðu tekk-bökkunum og tími til að
smella þeim á lærin þegar sest er
á sólstólinn.
Doddi og Lísa framleiða grasfóðr-
að holdanaut á Hálsi í Kjós. Á sumr-
in hafa þau ekki undan að spjóta
fyrir grillþyrsta Íslendinga. Þaðan
fengum við góðan bita af tudda, sem
við hökkuðum og úr varð bufftartar.
Settum á bakka með góðu með-
læti og vel kryddaðri bloody mary.
Rifin piparót, hakkaður rauðlauk-
ur, capers, hrá eggjarauða.
Eftir gott sjóbað við Gróttu
gripum við tvo væna steina
og lúkufylli af kerfli í pestó.
Lögðum leið í leynilaut, þar
var dúkað og dekkað á borðið.
Tveggja spergla góðgæti;
grænn aspas og bratwurst-
pylsur frá Matarbúrinu var
skellt á grillpönnu ásamt með
rauðlauk og selerí.
Annað á borði var; hunda-
súrusalat, sinnep, kerfil-pesto,
ostarnir Ljótur og Auður,
grænmeti, möndlur og aprí-
kósur.
Hver raðar á sinn disk.
Ástríðan að borða úti hefur fylgt mér úr æsku,
stútfull af góðum minningum. Skauta með fjöl-
skyldu, finna góða eyju, kveikja upp eld og grilla
góðgætið úr bakpokanum. Lof sé minningum,
þær fást ekki útí búð.
Eftir það hefur hressilega verið skautað um
víðan völl. Skíðað niður Skjaldbreið, ostafondue í
verðlaun, margar pönnukökur steiktar.
Óstöðvandi að njóta lífsins í matarhamingju
með prímus og pott í skottinu.
Undanfarið hef ég skoppast með Eirnýju Sig-
urðardóttur Búrverja um holt og hæðir með okkar
yndislega sameiginlega áhugamáli; mallað og
brallað, hver réttur toppar þann fyrri.
Njótið lífsins, kveðja Áslaug
Leynilaut Kerfilpestó
Handfylli af ungum
kerfilsblöðum – helst
af toppnum
1-2 rif af hvítlauk
Nokkrar möndlur
Vænn biti af 12
mánaða hollenskum
geita gouda
Skvetta af ólífuolíu
Merjið , berjið og
losið um streitu
milli tveggja steina,
mætti kalla þetta
“Stresstó”. Berið
fram með öllu.
Tekk á tjaldstæði
“Frjálst er að fá sér gulan breezer í vinstri hendi” Kristín Björgvinsdóttir Skart: Hulda -Kirsuberjatréð, ORR, bankastræti
Viktoríuvatn
Róum taugakerfið.
Súpum á drottn-
ingarseyði, stútfullu
af c vítamíni. Fetum
í fótspor Viktoríu og
Alberts. Flippum
eins og Finnar í
sumar.
Sólberjalauf, sítrón-
umelissa, mynta,
húnang og sítróna
eftir smekk.
Soðið í potti.
drukkið kalt eða heitt
Alltaf úti að borða
1 Borðum meiri ást
2 Pikknikk bókin
Að koma sér í gírinn fyrir sumarið
og eiga á lager í hjólhýsinu eða
bústaðnum ef þér væri boðið
óvænt í afmæli.
Fæst í Spark á Klapparstíg,
Kraumi og Þjóðminjasafni.
3 EM Ukranía 2012
Farðu svangur á fótboltamót-
ið í Úkraníu þar eru krásir á
hverju horni, getur jafnvel
sleppt boltanum. Kjötsúpa
og pönnukökur í morgunmat
skolað niður með “Shamp-
anskoye”-soviet-kampavíni.