Fréttatíminn


Fréttatíminn - 08.06.2012, Page 54

Fréttatíminn - 08.06.2012, Page 54
46 bækur Helgin 8.-10. júní 2012  RitdómuR dagbók Elku Eldar kvikna, önnur bókin í Hungurleikjaseríunni, er á toppi metsölulista Félags bókaútgefenda fyrir síðustu tvær vikur, og það þrátt fyrir að hafa aðeins verið í sölu í rúma viku. EldaR kvikna á toppnum  RitdómuR dauði nætuRgalans / kRossgötuR F yrst Marklund: Liza á nú tíu bækur á markaði hér á landi, allar þýddar af Önnu R. Ingólfsdóttur. Síðust kom út sagan Krossgötur, kom út í fyrra í Svíþjóð undir nafninu Du gamla, du fria... Hér segir enn af Anniku Bengt- son blaðamanni á Kvöldblaðinu, sem snúin er aftur heim eftir þriggja ára fjarveru í Washing- ton með manni og tveimur börnum, og lendir í nýjum aðstæðum. Thomas maður hennar er á ráðstefnu í Kenía og í vettvangs- ferð er honum og sex öðrum rænt, fylgdarmenn og bíl- stjórar myrtir. Sagan rekur á sama tíma, á tólf dögum, rannsókn á morðum kvenna í Svíþjóð, en Annika er að mestu utanvið það mál, vandamál og metnað ritstjóra hennar, uppgjör við móður og systur, fyrrum ástkonu bónda hennar, nána vin- konu. Vænn skammtur verksins snýst um hversdag útivinnandi eiginkonu, tryggð og skyldur. Sagan er að vanda vel undir- byggð í rannsóknum, hefur skýra hneigð: Vesturlönd eru virki sem verst flóttanum sunnan að, karlmenn eru grimmir við konur. Fléttan er óhemju spennandi, þótt frásagnarstíllinn sé víða flatur og mót- þróakennd skapgerð Önnu sé á köflum þreytandi. Sjokkeffektar í framvindunni eru nokkrir og dregur Liza ekkert af sér í atvikum suðurfrá, þar er mannslífið ekki mikils virði og grimmd yfirstígur öll mörk. Marklund er veldi í norrænum krimm- um: Hún á, ásamt Jan Guillou, Pirat- fortlaget sem á dótturútgáfu í Noregi. Nú er aftur tekið til við að kvikmynda sögur hennar um Bengtson. Hún er umdeild heima fyrir og framan af ferlinum var andlit hennar og norrænt útlit notað markvisst til að skapa henni ímynd. En sögur hennar er prýðir afþreying og þessi svíkur ekki og er að auki með ýmsu ítarefni sem hreyfir við þeim stóra hópi sem les. Þær stöllur Kaaberböl og Friis hafa sett saman þrjá krimma um hjúkrunarkonuna Ninu Borg og sú síðasta, Dauði nætur- galans, er komin út í þýðingu Ingunnar Ásdísardóttur. Sem fyrr vinnur Nina í búðum fyrir flóttamenn og meðal skjól- stæðinga hennar er lítil stúlka frá Uk- raínu. Til Danmerkur flúði móðirin og nú er hún grunuð um að hafa myrt sambýlis- mann sinn. Lesandanum er þegar í upp- hafi gefið til kynna að örlög mæðgnanna tengist atvikum úr hungursneyðinni í Úk- raínu 1934 og um leið stjórnarháttum lög- reglu stjórnvalda þar, hlýðni og mótþróa íbúanna. Undirliggjandi þema verksins eru svik og varnarleysi barna. Það teygir sig um allt verkið, ekki aðeins í baksög- unni, heldur líka inn í líf Nínu og móður- innar sem er á flótta verkið á enda. Bæði verkin eru sviðsett í skandinav- ískum vetri; myrkri og snjó. Bæði nærast á stöðu kvenna í erfiðum hjónaböndum, ást í meinum gagnvart körlum sem eru samstarfsmenn. Hugur höfundanna er þó meira bundin við að koma áliti á þjóð- félagsmálum á framfæri. Marklund og kó beita forminu fyrir sig til að tryggja þekk- ingu á samfélagsmálum, pólitíska skoðun og í ljósi þeirra hatrömmu stöðu sem nú ríkir um öll Norðurlönd í málefnum inn- flytjenda er það engin furða. Kaaberböl er margreyndur höfundur og í samstarfi við Friis er hún að þreifa fyrir sér á nýjum vettvangi. Næturgala-sagan er feik- ispennandi og fyrsta flokks afþreying. Bækur Páll Baldvin Baldvinsson pbb@frettatiminn.is Konur í stórræðum Þær segja stelpurnar að hrunið hafi rekið þær aftur til prjónanna. Þetta fimmtándu aldar fyrirbæri hefur reynst okkur vel til fatagerðar í ríflega sex hundruð ár og því ekki nema von að út komi rit helguð prjónaskap. Frá Vöku Helgafelli kom nýlega bók af norskum stofni, Hlýtt og mjúkt fyrir minnstu börnin eftir May B. Langhelle, helguð prjóni fyrir minnstu börnin, í hent- ugu broti og full af fallegum uppskriftum. Í þakkarlista er vísað til norskra verslana og framleiðenda sem kemur okkar prjónafólki að litlum notum og hefði mátt staðfæra þann hluta verksins, en vafalítið er útgáfan vel þegin af þeim þúsundum sem eru stöðugt með eitthvað á prjónunum. -pbb Með sitthvað á prjónunum Bænakver gætu menn talið að ættu lítið erindi á markað þegar sól er að ná sem lengstum gangi og dagar sem nætur eru bjartastar. Bænin er raunar algengari en margir gera sér grein fyrir, við erum að biðja alla daga og öll ár, þótt bænakvak okkar sé minnst innan guðrækni. Óskir um giftu eru okkur svo eðlis- lægar, ekki síður en heitingin og hin svarta systir hennar – bölbænin. Sigurbjörn Þorkelsson hefur tekið saman fallega bók með bænum, kver er ekki hægt að kalla gripinn innbundinn með hörðum spjöldum. Langflestar bænanna eru eftir Sigurbjörn, en með slæðast eldri textar eftir valinkunna kirkjunnar menn. Bókin er 296 síður og gefur höfundur hana út sjálfur. -pbb Í bljúgri bæn Dagbækur Elku Björnsdóttur verkakonu frá árunum 1915 til 1923 eru einstök heimild um aðstæður verka- kvenna á öðrum og þriðja áratug síðustu aldar. Þær hafa þegar reynst fræðimönnum drjúg uppspretta þótt ekki sé fullausið. Elka er fædd í Lundarreykja- dal 1881 og fluttist til Reykjavíkur 1906 þar sem hún vann lengstaf við daglaunastörf þar til hún lést af erfiði og hörðum lífskjörum í mars 1924. Hún var lengi heilsulítil, við síldarsöltun á Hjalteyri sumarið 1915 taka að hrjá hana innanmein, utan þess að átan og saltið gera hendur stúlknanna við söltunina að flakandi sárum svo þær hverfa frá vinnu nær „yfirliði af kvölum í höndunum“ (bls. 90). Elka var bráðvel gefin manneskja og hana fýsti til mennta; sótti stíft alþýðufyrirlestra , mynda- og málverkasýningar, var andsnúin dansi, fór á fáar leiksýningar. Það er hversdagurinn og erfiðið sem á huga hennar. Dagbókin sýnir hve mikil samhjálp var þá með þurfamönnum. Hún er áhugasöm um garð- rækt, dýravinur, trúuð í þreytubasli sínu. Verkefnin eru fiskburður á handbörum úr lest („þrjú dægur samfleytt“ (bls. 75) lengst 16 klukkustundir, þá hvíld í 90 min. og svo unnið áfram), vinna á stakkstæðum, þvottar inní Laugum ( keyrður á handvögnum eða fluttur á þvottahestum), ofnaþrif, síldarsöltun og móvinna. Hún er virk í félagsstarfi Framsóknar og fleiri félaga. Elka les jöfnum höndum guðsorð, reyf- ara og ljóð. Hér eru heimildir um viðhald vinnufata og sparifatnað fátæklingar. Þessi heimur er stór – Elka fylgist fólki vestanhafs og austan, í nálægum og fjarlægum sveitum. Hún er göngukona um nágrenni bæjarins; suður í Sauðargerði , upp að Rauðará, út á Mela. Hér er að finna merkilegar heimildir um heilsufar, þrif, hýbýli. Útgáfa þessi er ekki fullnægjandi. Í inngangi segir Hilma að ekki hafi verið lagt í frágang textans með fullum skýringum og er það miður. Fjöldi fólks kem- ur hér við sögu og fátt um margt af því vitað; sýnir að Reykvíkingabækur Þorsteins Jónssonar eru brýnt efni. Þá er ritgerð Sigurðar Gylfa um sumt gagnleg þótt bæði myndverk Sölva Helgasonar og útúrdúr um utangarðsmenn eigi vart við í þessu samhengi. Í ljósi menningar-, félags-, og verkalýðssögu eru þetta lykilverk. Og þótt betra hefði verið að fá það fullrannsakað varðandi persónulitróf, með athuga- semdum um efnisatriði til skýringar, má treysta að útgáfan kalli á slíka vinnu og því mun nafn Elku standa skýrt; upplýst trúmennsku, gæsku og mann- kostum meðan þessi tunga er töluð og á henni hugsað. -pbb Engin kona var þar nema ég  dauði nætur- galans Kaaberböl & Friis Ingunn Ásdísardóttir þýddi. Mál & menning , 377 síður, 2012.  dagbók Elku alþýðumenning í þéttbýli á ár- unum 1915-1923 í frásögn Elku björnsdóttur verkakonu. Hilma Gunnarsdóttir og Sigurður Gylfi Magnússon tóku saman. Háskólaútgáfan, 330 síður, 2012. Liza Marklund Bæði verkin ... nærast á stöðu kvenna í erfiðum hjónaböndum, ást í meinum gagnvart körlum sem eru samstarfsmenn.  krossgötur Liza Marklund Anna R. Ingólfsdóttir þýddi. Undirheimar, 396 síður, 2012. Skráning hafin á skrifstofu Jónsmessuhátíð Útivistar 22.-24. júní Bókun á skrifstofu í síma 562 1000 eða á www.utivist.is Upplifðu Útivistargleði

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.