Fréttatíminn - 08.06.2012, Síða 66
VELKOMIN Á BIFRÖST
Laganám með
tengingu við rekstur
Nám í viðskiptalögfræði er það eina sinnar tegundar hérlendis. Áhersla er lögð á
að nemendur fái þekkingu á viðskiptum og lögfræði og að þeir öðlist skilning á
samfélagi sínu og umhverfi. Við kennum nemendum að taka ákvarðanir, vinna með
fólki og fást við raunveruleg verkefni. Á Bifröst gefst nemendum einnig kostur á að
ljúka námi á skemmri tíma þar sem sumarnám er hluti reglulegs náms.
Viðskiptalögfræði við Háskólann á Bifröst er sett
saman úr greinum á sviði lögfræði, viðskiptafræði
og rekstrarfræði.
Opið fyrir umsóknir
til 15. júní á bifrost.is
Hljómsveitin Melchior hefur gefið út nýja fjórtán laga plötu.
Þ að er allt breytt. Ég hætti að reykja fyrir þremur árum. Nú leyfir maður sér ekkert
nema að fá sér í vörina og kokteil-
sósu öðru hvoru,“ segir Guðni Már
Henningsson útvarpsmaður á Rás
2.
Guðni Már verður sextugur á
morgun, laugardag. Mikið hef-
ur breyst síðustu árin hjá Guðna.
Hann breyttist úr áhugamanni um
tónlist í tónlistarmann, er fluttur í
Voga á Vatnsleysuströnd og tók upp
á því að eignast barn á gamals aldri.
Heilsufarið lagaðist sömuleiðis mik-
ið þegar hann lét af gömlum ósið.
„Það breyttist mikið þegar ég
hætti að reykja. Ég reykti líka
tvo pakka af vindlum í fjörutíu ár.
Reyndar hætti ég nú bara út af leti.
Ég fattaði það klukkan ellefu eitt
kvöldið að ég átti bara einn vindil
eftir og nennti ekki út í sjoppu eftir
fleirum. Svo var mér seinna gefið í
vörina og það var svo mikið kikk að
það varð ekki aftur snúið.“
Sjálfsagt er algengara að fólk um
sextugt hugsi frekar um golfferðir
til Spánar og sumarhús uppi í sveit
en bleiuskipti og dagvistun. Það á
þó ekki við um Guðna Má. „Ég er
búinn að sjá það að tilgangur minn
í lífinu er að brúa kynslóðabil. Ekki
bara í rokkinu því ég á sex mánaða
dóttur. Slátrið er ekki alveg orðið
súrt,“ segir Guðni Már og hlær.
„Svo er ég nýorðinn afi líka. Þetta
er mjög gaman.“
Það er músík í textunum
Guðni og félagar í hljómsveitinni
Tass eru að senda frá sér sinn
fyrsta geisladisk sem kallast Al-
múgamenn. Guðni er elstur í band-
inu en yngsti meðlimurinn er 23
ára. Hljómsveitin var stofnuð fyrir
tveimur árum til að fylgja eftir diski
sem Guðni og Birgir Henningsson
sendu frá sér árið 2009.
„Ég var frá vinnu í 2-3 mánuði
árið 2009 vegna veikinda. Það var
út af reykingunum. Við Biggi sett-
umst niður og sömdum einhver 20-
30 lög á þessum tíma og gerðum
plötu fyrir Samhjálp. Hún hefur nú
selst í um fjögur þúsund eintökum
og hefur aldrei sést í búðum. Þetta
er bara í gegnum símasölu,“ segir
Guðni.
Meðlimir Tass létu sér þó ekki
nægja að spila gömlu lögin þeirra
Guðna og Birgis heldur sömdu nýtt
efni sem nú kemur út.
„Biggi hóaði þessum krökkum
saman, hann þekkir svo marga.
Þetta eru flestallt synir og dætur
vina hans sem hann hefur verið að
fikta með í tónlist í gegnum tíðina.
Og svo er tengdasonur hans þarna
með,“ segir Guðni sem semur alla
textana við lögin á plötunni.
„Textinn verður alltaf til fyrst og
Biggi semur svo lögin við þá. Hann
segir að það sé músík í textunum.
Þetta er náttúrlega ferlega flinkur
lagasmiður, þessi gamli sjóari. Fyr-
ir utan það að hann þekkir alla og
getur reddað hlutum sem þarf að
redda.“
Æfingar fara alltaf fram á sunnu-
dögum. „Þegar ég er búinn í útsend-
ingu þá er farið og æft í tvo eða þrjá
tíma,“ segir Guðni sem fær ekki
að spila á trommur í bandinu. „Við
erum með fanta trommuleikara. Ég
fæ að spila á ásláttarhljóðfæri eins
og það heitir, ég fæ alla vega að sitja
svo það er ekki svo mikill munur.“
Útgáfutónleikar Tass fara fram í
Salnum í Kópavogi á morgun, laug-
ardag. Rúnar Þór og Hreimur Örn
hita upp fyrir Tass.
Tónlistin hægir á öldrun
Hvernig er svo að vera að verða sex-
tugur?
„Ég lenti í krísu þegar ég varð
þrítugur. Þá fannst mér ævin vera
að klárast. Bernskan að baki og hin
villtu unglingsár og eitthvað sem
heitir fullorðinsaldur að taka við. Ég
hef nú bara ekki enn náð þessum
fullorðinsaldri og veit ekkert um
hvað hann snýst.“
Guðni Már viðurkennir þó fús-
lega að eitt og annað hafi breyst
eftir því sem árunum hefur fjölg-
að. „Jújú, maður er náttúrlega ekki
eins snöggur og áður og ég finn
að það tekur mig lengri tíma en
áður að labba upp í Útvarpshúsið.
Hins vegar finnst mér ég enn vera
tvítugur og það er kannski af því
að ég umgengst svo ungt fólk. Svo
sagði nú Brian Ferry um daginn að
tónlistin hægi á öldrun og ég greip
það á lofti.
Ég er bara voða feginn að hafa
fengið að lifa öll þessi ár. Það eru
forréttindi að hafa fengið að heyra
nýjar plötur með The Rolling Sto-
nes, Bítlunum, Megasi og Bjart-
mari. Það er mikið af fólki sem
hlustar bara á 300 ára gamla tónlist
með Beethoven og fleirum en ég
náði í skottið á Elvis. Ég náði U2. Og
ég náði Laxness. Svo missti maður
reyndar af því að fara á tónleika með
mönnum á borð við Bob Marley og
Johnny Cash en ég sé þá bara þegar
ég fer hinum megin við ströndina.“
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@frettatiminn.is
Stórafmæli Guðni már rokkar á SextuGu
Nýbakaður faðir á
sextugsafmælinu
Útvarpsmaðurinn Guðni Már Henningsson hefur í nægu að
snúast um þessar mundir. Hann verður sextugur um helgina
og treður upp á tónleikum í Salnum af því tilefni. Afmælisárinu
fagnaði hann með því að eignast bæði barn og barnabarn.
Guðni Már Henningsson gefur út plötu á sextugsafmælinu og fagnar áfanganum
með tónleikum í Salnum í Kópavogi. Hann eignaðist nýverið barn og barnabarn.
Ljósmynd/Hari
tónliSt ný plata frá melchior
Kammerpoppið þróað enn fremur
Fjórtán lög eru á nýju plötunni og fjallar hvert og eitt um ákveðinn stað og ákveðna stund.
h ljómsveitin Melchior á sér mörg líf. Hún naut mikilla vinsælda í kringum 1980,
gaf út plötur og hélt tónleika,
en hennar frægasta lag er Alan.
Langt hlé varð síðan á starfi henn-
ar en hún kom fram á ný árið 2009,
eftir tæplega þrjátíu ára hlé, með
nýtt og gamalt efni.
Ný plata kom síðan út í síðustu
viku, Matur fyrir tvo. Hún er tón-
listarlegt framhald plötunnar
Melchior sem kom út árið 2009.
Kammerpoppið hefur verið þróað
enn fremur og er útkoman fjöl-
breytni, ferskur stíll og sterk heild,
að því er fram kemur í tilkynn-
ingu. Á plötunni eru fjórtán lög
sem hvert og eitt fjallar um ákveð-
inn stað og ákveðna stund. Þarna
er spriklandi vor á Seltjarnarnesi,
þorrablót í Stuttgart og hvítvín-
sglas síðsumars á brautarstöð í Ba-
sel. Uglan er enn fremur náttúru-
þriller í Hjaltadal frá því í júlí 1970.
Að vanda er svo tímalaus sálmur á
plötunni. Melchior gefur plötuna
út en nýtt fyrirtæki, Kongó, dreifir
henni. Það fyrirtæki var sett á
laggirnar í kjölfar útgáfu metsölu-
plötunnar Hagléls en Mugison er
meðal eigenda þess.
Hefti fylgir plötunni Matur fyrir
tvo þar sem finna má texta laganna
á stóru og læsilegu letri. Hvert lag
fær sína síðu þar sem hljóðfæra-
skipan er tíunduð, staður lags og
stund, auk þess sem lítið málverk
eftir 10 ára listamann, Odd Sigþór
Hilmarsson, fylgir hverju lagi.
Hljómsveitin Melchior er skipuð
Hilmari Oddssyni, Hróðmari I.
Sigurbjörnssyni og Karli Roth,
sem syngja og leika á gítara og
hljómborð, Kristínu Jóhannsdóttur
söngkonu, Gunnari Hrafnssyni
bassaleikara og Kjartani Guðna-
syni trommuleikara. - jh
58 dægurmál Helgin 8.-10. júní 2012