Læknablaðið - 01.09.1922, Side 15
LÆKNABLAÐIÐ
I4£
Hann minnist á aö einföld jejunostomi, lítiö gat, sem gert er, svo að
næra megi sjúkl. án þess að contenta leiti út, nægi ef til vill til þess aö
lækna öll slík sár. Sjúklingurinn er þá næröur vikum saman gegnum
gatiö og ekkert látiö í magann og jafnframt liggur hann rólegur í rúmi
sínu. Þetta segir hann aö hafi máttug áhrif á hvert sár. Þegar sjúklingur-
inn er heill, er garnagatið grætt. — Meöferö gamla próf. Withs sýriist
vera að komast aftur til vegs og valda. — (Journal of. Am. med. Ass.,
1. júlí). G. H.
Berklaveiki í hundum og köttum. Petit fann, aö 10—15% hunda og katta
voru berklaveik. Dýrin smitast af mönnunum og geta líklega útbreitt veik-
ina. — (Journ. of Am. med. Ass., 1. júlí). G. H.
Trachoma í Kína. Li læknir segir, aö enginn sjúkdómur valdi jafnmiklu
fjártjóni í Kína eins og trachom. Millionir manna hafi oröiö blindir og
margfalt fleiri hálf-blindir. — (J. of Am. med. Ass., 8. júlí). G. H.
Einföld bólusetning við taugaveiki. Vaillant gaf 1236 íbúum í hjeraöi
einu i Frakklandi, þar sem taugaveiki lá í landi, pillur með drepnum taugav.
og paratyfus-sýklum. Var ein pilla af þessu „vaccin bilié“ tekin aö morgni
3 daga í röö (börn 2 daga). Engum varð verulega meint viö, en af þeim
sem þannig voru bólusettir sýktust 0.17%. Af óbólusettum 7.7%. — Ef
þessu má trúa, er hjer aö ræða um mikla uppgötvun (Journ. of Am. med.
Ass., 8. júlí). G. H.
Blóðvatnslækningu við mislinga hefir Degkwitz reynt á 1700 börnum.
Blóðvatniö er tekið úr sjúklingum í afturbata. 2.5 ccmt. af serum nægja
til að vernda barn yngra en 4 ára, ef ekki er lengur liðið frá smitun en
4 dagar, og er sá skamtur talinn verndareining. Séu 5—6 dagar liðnir frá
smitun þarf 5—6 ccmt., en fari tíminn yfir viku, hrífur blóðvatniö ekki.
D. liefir reynst smitunarhættan mest á undirbúningstímanum, og hann
telur hann venjulega ekki lengri en 4 daga(?). Ónæmið helst að minsta
kosti mánaðartíma. — Eflaust má þetta aö góðu gagni koma, en hand-
hægt verður það ekki, fyr en dýraserum fæst. - (Lancet, 25. maí). G. H.
Skólaskoðun. Dr. Stephani (Mannheim) hefir notað eftirfarandi „in-
spections“-aðferð til þess að meta holdafar og útlit skólabarna:
A. H o 1 d a f a r (birtu leggi beint á barnið) :
1. Gott: Rifin sjást ekki fyrir sig.
2. Meðal: Rifin neðan brjóstvartna sjást.
3. G r a 111: Rifin ofan lijóstvartna sjást, þar sem þau mæta brjóst-
beini.
B. Útlit:
1. Gott: Kinnar rjóðar og slimhúðir (augu, varir).
2. M e Ö a 1: Kinnar lítið eitt fölar, breytilegur andlitslitur. slímhúö-
ir fölar.
3. S 1 æ m t: Fölt útlit, fölar slímhúðir.
Aðferð þessi er svo einföld, og þó á góðum grundvelli bygð, að vel gæti
komið til tals að taka hana hér upp við skólaskoðanir. (Zeitschr. f. Schul-
hygiene 3—4, 1921). G. H.
Skírlífi og hórdómur. Miss Ettie A. Rout, læknir, orðskýrir þannig:
Skírlífi eru samfarir karla og kvenna, sem elskast, — hórdómur eru
samfarir karla og kvenna, sem ekki unnast, hvort sem þau eru gift eða
ógift.