Læknablaðið - 01.10.1922, Blaðsíða 12
i5+
LÆKNABLAÐIÐ
Lkki veit eg, hversu læknar líta á þessar rannsóknir, og þaö auka-
erfiöi, sem þcim fylgir. Þær eru í byrjun og barnæsku, má þvi ekki til
mikils ætlast. Fyrir mitt leyti er eg þess fullviss, a'ð vel mega þær marka
tímamót i sögu lækna og heilbrigöismála hér á landi. Máliö er ekki að
eins gott mál, heldur ágætt, svo framarlega, sem vel er á því haldið.
Sjálfsagt gengur það misjafnlega fyrstu árin, en vonandi betur og bet-
ur er lengra líður og revnslan eykst.
G. H.
Læknafélag Reykjavikur.
Aðalfundur var haldinn í Læknafélagi Reykjavíkur mánudaginn g.
október 1922 á venjulegum staö.
1. Lagðir voru fram endurskoðaðir reikningar fyrir síðasta ár og þeir
samþyktir. Fundurinn samþykti um leið, að tillag félagsmanna þetta
ár, skyldi vera 20 krónur,
2. Skýrsla um umbúðasmiðinn. Formaður skýrði frá gerðum stjórn-
arinnar í máli þessu, gat þess hvernig umbúðasmiðurinn heföi varið dvöl
sinni erlendis og að hann væri nú hingað kominn og ætlaði að setja upp
vinnustofu fyrir sérgrein sina.
3. Stjórnarkosning: Formaöur var kosinn Matthías Einarsson með 9
atkv., ritari Halldór Hansen með 10 atkv., og gjaldkeri (endurkosinn)
Konráð Konráðsson með 12 atkv. — Endurskoðendur voru endurkosnir
með lófataki (Andrés Fjeldsted og Sæmundur Bjarnhéðinsson).
4. Próf. Sæmundur Bjarnhéðinsson flutti erindi um Útrýming holds-
veikinnar á Norðurlöndum, og birtist hér útdráttur úr ræðu hans:
Fyrirlesarinn benti í upphafi erindis sins á, að frarn yfir skýrslu hans
í íebrúarblaði Læknablaðsins hefði hann engu sérstöku við að bæta um
útbreiðslu holdsveikinnar hér á landi. Eins og sú grein bæri með sér
hefði tala holdsveikra verið i árslok 1S96: 237 eftir því sem nú er
kunnugt, en líklega ])ó heldur fleiri í raun og veru, en i árslok 1920 heföu
menn vitað að eins um 6 7 holdsveika a 11 s í landinu. Auðvitað mætti
búast við, að einhverir hefðu þá verið óþektir og ótaldir, vonandi væru
þeir ])ó eigi margir. Árangur baráttunnar gegn þessum sjúkdómi mætti
því teljast ágætur á ekki lengri tíma, og full ástæða til aö vona að okk-
ur takist að útrýma þessum leiða sjúkdómi úr landinu með sörnu bar-
dagaaðferð. áður margir tugir ára eru liðnir.
Éins og kunnugt er, er holdsveiki ókunn í D a n m ö r k u. nema þeg-
ar einstaka sinnum einn og einn sjúklingur kemur annarsstaðar frá. Þann-
ig var í sumar einn sjúklingur þar. nýlega fundinn, danskur maður, ný-
kominn frá Siam, hafði verið þar í mörg ár og tekið sjúkdóminn þar, en
var nú í ljóslækningum á Finsens Institut, hvernig sem ])að gengur
með árangurinn.
í Noregi, þar sem Danielsen hóf einangrunaraðferðina
skömmu eftir miðja síðustu öld — en sú aðferð til útrýmingar sjúk-
dómnum hefir verið tekin upp eftir Norðmönnum urn alla Skandinavíu,
ísland og Finnland, en auk þess víða um heim — voru þá um 3000