Læknablaðið - 01.12.1922, Síða 11
LÆKNABLAÐIÐ
i85
spítalann kemur, fá þessir hjúkrunarnemar sömu kjör og danskir hjúkr-
unarnemar, sem fengist hafa jafnlengi viö hjúkrunarnám, ekkert tvo
fyrstu mánuSina**, 85 kr. á mánuöi næstu 4 mánuöi, og svo 100 kr. á
niánuði síöasta námsáriö. Annars njóta þeir sömu hlunninda og hér heima.
Auk þess geta hjúkrunarnemarnir, ef þær þurfa aö biöa stuttan tíma,
eftir aö þær eru komnar til Hafnar, búiö ókeypis í spítalanum, ])angaö
til þær taka til starfa.
Lg get eigi kallaö hjúkrunarnám þetta dýrt. Ef til vill getur hjúkr-
ttnarkvennafélagiö útvegaö einstaka hjúkrunarnema ókeypis far til Hafnar.
Námstíminn fvrir h é r a ö s h j ú k r u n a r k o n u r veröur 2 ár : 22
mánuöir á áðurnefndum spítölum og 2 mánuöir hjá „Líkn“ viö heima-
hjúkrun og á Hjálparstööinni fyrir tjerklaveika og jafnframt dálítiö
námsskeið viö matartilbúning handa sjúklingum. Kjörin fyrir héraðs-
hjúkrunarnemana á spítölunum veröa þau sömu og fyrir hina. En í þá
tvo mánuöi, sem þeir verða hjá ,,Líkn", fá þeir engin laun og verða aö
kosta sig þá aö öllu leyti.
Hjúkrunarkvennafélagið hefir auðvitað ekkert á móti þvi. að héraös-
hjúkrunarkonur fái 3V2 árs nám. Helst mundi þaö óska, aö allar hjúkr-
unarkonur fengju sömu hjúkrunarmentun; en við hugöum, að héruðin
hvorki gætu eða vildu, — að minsta kosti ekki fyrst um sinn, — borga
þeim |>au laun, sem hjúkrunarkonur meö //2 árs undirbúningi, ættu heimt-
ingu á. Auk ])ess laorgaði það sig betur fyrir almenning, hjúkrunarkonu-
stéttina og lækna, að fá hjúkrunarkonur með tveggja ára námstíma, en
konur, sem ef til vill ættu aldrei aö koma nálægt sóttarsæng og heföu alls
enga eða mjög litla tilsögn fengið viö hjúkrunarstörf. En hvað því viö-
víkur, aö héraðshjúkrunarkonur þyrftu betri undirbúning undir starf sitt
en spítalahjúkrunarkonur, þá get eg eigi verið á sama máli, af því aö
spitalahjúkrunarkonurnar eiga að kenna hjúkrunarnemum og þurfa þvi
sjálfar að hafa sem fullkomnasta mentun. En auk þess má búast við, aö
1 spítalana komi einkum þeir veikustu og erfiöustu sjúklingar. Loks geta
héraðshjúkrunarkonur, innan vissra aldurstakmarka, fullkomnaö nám sitt
seinna.
Við verðum a.ö vona, aö þegar læknar og almenningur úti um landiö
fer smámsaman aö venjast góðri hjúkrunaraðstoð, muni launakjörin einn-
ig veröa sæmileg. Ef til vill gætu menn hugsað sér, aö héruðin fengju
styrk úr ríkissjóði til aö launa hjúkrunarkonur. —
Christophine Bjarnhjeðinsson,
form. „Félags ísl. hjúkrunarkvenna".
Louis Pasteur. 1822—1922.
í ár er ioo ára fæöingarafmæli Pasteurs. Er þess minst víösvegar un,
lönd. Eins og mönnum mun kunnugt, var hann upprunalega efnafræö-
ingur, en fór snemma að gefa sig viö rannsóknum á vín- og ölgerö og
öðrum tegundum gerðar. LTppgötvaöi hann, aö geröir stafa af smáverum
"* Danskir lijúkrunarnemar fá engin laun fyrstu .( mánuðina.