Læknablaðið - 01.05.1923, Page 16
78
LÆICNABLAÐIÐ
Psoriasis — thymus. B. G. Gross, Deutsche med. Wochenschr.. 1922, nr.
36. Psoriasis sýnist stundum liggja í ættum og stafar ef til vill af óreglu
á efnabyltingunni. — Gross kom til hugar, aö ólag væri á secretio in-
terna og reyndi thymus-lyf. Fyrst lét hann sjúkl. eta kálfsthymus og
virtist þaö hafa góö áhrif. Síöan reyndi hann thymusextract (frá Kahl-
baum) og spýtti 1—2 ctgm. annan hvorn dag inn í vööva, alls 8—14
sinnum. Viö þetta batnaöi sjúklingunum, jafnvel þeim sem höföu veikina
meÖ versta móti. Óreynt enn hve lengi batinn helst. G. H.
Ký gigtarlækning. Fr. Peemöller, Deutsche med. Wochenschr. 1922,
nr. 36. „Viö langvinna liöa- og vöövagigt (ekki síst arthr. deformans)
er yatren-kasein langbesta lyfið, sem þekkist," segir Fr. Peemöller
yfirlæknir í Hamborg. Lyf þetta, sem búiö er til i Behringswerke, Mar-
burg, er eggjahvíta -f- desinfici'ens og fæst í ampullae meö mismunandi
skömtum. Hæfilegum skamti (1—2 cbem. til aö byrja með) er dælt inn
og þrútna þá veiku liöirnir og evmslast til mikilla muna, en þetta hjaðn-
ar svo aftur niður á 6—8 klst. Eftir 2—5 daga er nýr skamtur getinn, en
minni, því viökvæmnin fyrir lyfinu vex, Liöirnir losna og liðkast smám
saman viö þessa meðferð, og sársauki minkar, ef veikin er ekki þvi verri.
Mikill vandi er að gera skamtstæröina hæfilega, því hún er misjöfn eítir
mónnum og þarf sjerstaklega aö gá þess, aö gefa ekki svo mikið, aö
reaktio i liönum veröi mjög áköf. — Töluverð reynsla er komin á lyf þetta.
G. H.
Smágreinar og athug'asemdir.
Þreyta og orsakir hennar.
Einn háttvirtur stéttarbróðir geröi fyrirspurn um þetta. Eg biö Lbl.
fvrir svarið, ef ske kvnni aö fleiri vildu sjá þaö.
Orsakir þreytunnar eru tvenskonar: myndun skaölegra þreytuefna og
skortur næringarefna.
1. Þreytuefnin eru talin mjólkursýra og súr fosfórsúr sölt.
kreatinin o. fl. F.fni þessi myndast viö vöðvastarfiö og hafa lamandi áhrii
á vöðvana. Ef einföldu saltvatni er skolað gegnum vööva, sem tekinn er
að Jireytast, evkst starf hans á ný. Sé aftur þessum „þreytuefnum“ veitt
inn í vöðva þrevtist hann óöar.
2. Næring vöivans er fyrst og fremst fæöutegundir, sem leggja
orkuna til og þá aöallega svkur, sem flytst meö blóöinu, hins vegar súr-
efni. Ef skortur verður á súrefni myndast þreytuefnin örar. Alt sem
fjörgar blóðrásina i vöövum (t. d. rækilegt nudd) dregur stórum úr þreyt-
unni. Næringarefnin koma auövitað úr fæðunni og hún þarf að vera bæoi
góð og rífleg ef mikið skal vinna.
Svefnlevsi, andleg þreyta og heilabrot og rnikill hiti auka þreytuna.
Þetta er þá það helsta, sem bækurnar kenna, en i raun réttri er þaö
mjög ófullkomið. Þreytan er meginatriöi við alla vinnu, og þaö mun
hvergi nærri svo rannsakað sem skyldi.
Við hvíld og svefn hverfur þreytan eins og allir vita. Þreytuefnin hætta
aö myndast, skolast burtu og brennast, ný næring berst aö. En stuttar
hvíldir draga til mikilla muna úr þreytunni. Látlaus vinna er þvi venju-